

Við höfum haft það fínt hér í Álaborg og alltaf eitthvað nýtt að skoða á hverjum degi. Við höfum verið að fara á nýja rólóa á hverjum degi. Óli Viðar fílar þetta í botn og fæst ekki inn því það er svo gaman úti enda er hann algjör útikarl. Við fórum í fyrradag í City Syd að kaupa mat, föt og skó æ það er æðislegt að versla he he já karlarnir fíla það ekkert sérstaklega en ég er sko til í það hvenær sem er. Síðan fórum við á róló í gær og þá hitti Óli Viðar sex krakka og hann ljómaði af gleði. Það voru tvær dagmömmur með krakkana sína. Það findna við þetta var að Óli Viðar talaði bara dönsku eins og krakkarnir. Hann hermdi eftir þeim og gerði allt eins og þau. Í dag fórum við síðan að gefa öndumum brauð, spiluðum krikket o.m.fl. Það er alveg yndislegt að vera hér og geta verið svona mikið úti. Það er búið að vera fínt veður 13-27 C þannig að maður hvartar ekki neitt.
Við höfum sett inn fullt af nýjum myndum og líka eitt myndband þannig að endilega kíkið og skiljið eftir kveðju ef þið kíkið á þær. Við ætlum að vera dugleg að setja inn myndir hér.
Við biðjum að heilsa heim á klakann
Skrifa athugasemd