

Þá erum við kominn heim frá Álaborg en við hefðum viljað vera miklu lengur það var svo gaman og heitt allan tímann. Við erum að tala um það að við vorum í 25 C hita og flottheitum allan tímann. Vá hvað ég væri til í að vera þarna í allt sumar. Flugið gekk mjög vel og Óli Viðar svaf meira og minna allt flugið.
Við fórum niður í bæ á föstudeginum og löbbuðum um og kíktum í búðir. Á laugardeginum fórum við í City Syd sem er stór verslunarmiðstöð og þar keyptum við meira af fötum og mat. Síðan á sunnudeginum fórum við í þennan svaka flotta dýragarð. Hann var æðislegur og þetta var meiriháttar stuð fyrir Óla Viðar. Þar gat hann klappað dýrum, séð þau ofan og neðansjávar o.fl. Hann fílaði ísbirnina alveg í tætlur. Síðan eyddum við sunnudeginum í rólegheitum þangað til við fórum aftur heim til Íslands.
Núna getum við ekki beðið eftir að fara aftur út til Óla Péturs, við söknum hans svo mikið. Það er alltaf svo gaman hjá okkur, við skemmtum okkur alltaf svo vel öll saman.
Góða nótt til þín pabbi frá okkur. Við elskum þig og vertu duglegur að læra. Þetta er allt að verða búið.
Gugga og Óli Viðar
Við biðjum líka að heilsa öllum hinum.
Den nęste.......winter hahaha skal lille drengen har to far i Danmark. En i Aalborg og den anden i Horsens. De er fantastisk.
Žżšing frį Sibba. Ég held aš ég hafi veriš aš skrifa aš nęsta vetur veršur litli mašurinn meš tvo pabba ķ Danmörku, einn ķ borg Įlanna og hinn ķ hrossanesi. Žaš er frįbęrt. Vonandi verša dönskuprófin aušveldari en žetta hahahaha.