Óli Viðar og Ragnar Guðberg
 

Farinn til Danmerkur.

Pabbi skrifar þessa færslu því að ég og mamma og afi og amma erum á leið til Danmerkur að hitta Óla pabba í Álaborg í Danmörku og erum í flugvélinni þegar að þetta er skrifað hehehe.

Það verður aldeilis gaman að hitta Óla pabba og komast líka aðeins í annað umhverfi og sérstaklega smá hita líka. Pabbi sagði að veðrið á Íslandi eigi að vera ekkert sérstakt á meðan að við verðum úti og við sjáum til hvernig það fer. Pabbi skutlaði okkur upp í flugstöð í hádeginu en Malli frændi sækir okkur svo þegar að við komum heim á mánudaginn.

En núna læt ég þetta gott heita og mamma kemur örugglega með skemmtilega ferðasögu þegar að þau koma heim. Bless öllsömul:)

8. May 2008 - 17:39



Athugasemdir

Skrifa athugasemd


Nafn


Texti