







Hér fyrir neðan eru mamma mín og pabbi. Þau heita Guðbjörg Hulda og Kári og búa í Klettakór í Kópavogi, þar sem pabbi minn ólst upp. Mamma er hinsvegar sveitapía, frá Egilsstaðakoti sem er bóndabær rétt austan við Selfoss.

Stjörnuspá fyrir 24. október
Þú ert fæddur undir áhrifum andstæðra afla. Annars vegar blíðlyndur, alúðlegur, réttsýnn og hreinlyndur en á hinn bóginn afar kröftugur og einbeittur ónærgætinn og harðsnúinn í samskiptum við aðra. En persónuleiki þinn er mjög heillandi og seiðmagnaður. Þú munt lenda í mörgum ástarævintýrum en hjónabandið verður farsælt.
Ólafur: Er í höfuðið á pabba Kára sem lést úr krabbameini fyrir aldur fram og merkir bæði forfaðir og erfingi
Veigar : Er í höfuðið á foreldrum mínum Ellu Veigu og Einari og þýðir kröftugur hermaður