

Velkomin á heimasíðuna okkar
Við erum bræðurnir Mikael og Aron Lindberg Jónassynir.

Mikael
Ég heiti Mikael Lindberg Jónasson og kom í þennan heim þann 12. febrúar 2009 klukkan 18:34. Ég vó 3505g og var 51cm að lengd.
Ég var með frekar mikið dökk brúnt hár og mjög dökk augu, það var eiginlega ekki hægt að greina neinn lit á þeim.
Ég grét rosalega hátt og kröftuglega frá því að ég fæddist og hætti ekki fyrr en það var komin nótt. Mér fannst alveg nauðsynlegt að allur heimurinn væri með það á hreinu að ég væri mættur.

Aron
Ég heiti Aron Lindberg Jónasson og kom í heiminn 1. Júní 2011 klukkan 22:35. Ég vó 4040g og var 55cm að lengd.
Ég var óttalega líkur honum bróður mínum þó ég hafi kannski verið með aðeins minna hár og ekki alveg jafn dökkt.
Eftir að vera búin að láta bíða eftir mér í 10 daga lá mér rosalega á að koma í heiminn. Mamma var ekki nema í 20 mínútur á spítalanum áður en ég fæddist. Ég vildi líka merkja mitt svæði vel og vandlega og kúkaði tvisvar sinnum á pabba minn á fyrstu mínútum lífs míns.
