MIKAEL BREKI & SIGMUNDUR LOGI
 

 

preview photopreview image  

 

Við erum svakalega góðir bræður



Ég heiti Mikael Breki Þórðarson og var svo sannarlega að flýta mér í heiminn því ég fæddist eftir aðeins 37 vikna meðgöngu.  Það var þann 20.febrúar sem mamma og pabbi fóru upp á F.S.A og klukkan 20.52 fengu þau mig í fangið með aðstoð ömmu Bryndísar og yndislegu ljósmóðirinni Maríu.  Ég var minnsta barn sem foreldrar mínir höfðu séð en auðvitað það fallegasta.  Því miður stoppaði ég stutt á bringunni á mömmu því ég þurfti að skunda upp á barnadeild þar sem ég var aðeins 46 cm á lengd og vigtaði ekki nema um 2165 gr. eða um 8 og 1/2 mörk. Síðan þurfti ég glúkósa í æð þar sem blóðsykurinn var einum of lár.  Mamma og pabbi voru auðvitað mikið hjá mér og fengu mig síðan til sín eftir um þrjá daga og við fengum öll að fara heim eftir um 6 daga á sjúkrahúsinu.  Þrátt fyrir að ég væri léttburi var ég voðalega mannalegur og með mikið svart hár.  Flestir sögðu að ég væri alveg eins og pabbi minn en mamma er alveg á því að eiga allavega munnsvipinn

Pabbi minn heitir Þórður Sigmundur Sigmundsson, kallaður Tóti og mamma mín er Birna Baldursdóttir.  Ég er fyrsti engilinn þeirra og eru þau voðalega montinn af mér



Ég heiti Sigmundur Logi Þórðarson  ;) Ég kom í heiminn þann 27.janúar eftir 39v.+2d. meðgöngu og gekk fæðingin svakalega vel.  Mamma, pabbi og amma Bryndís fóru upp á F.S.A. um kl. 21.15 og tók Malla ljósmóðir svo á móti mér þegar ég kom í súpermanstellingu (hendin kom með höfðinu) kl. 00.08 og mamma fékk mig beint í fangið. Þar var ég í dágóðan tíma enda fannst mér voðalega gott að totta bobbann hennar múttu;)  Ég mældist svo 3155 gr. og 51 cm.  Sem er mun stærra en læknarnir gerðu ráð fyrir.  Við mútta gistum svo eina nótt saman upp á sjúkrahúsi og fengum svo að fara heim þar sem allt gekk svakalega vel.  Í þetta sinn segja margir að ég sé líkari múttutúttu en pabba en samt líka líkur stóra brósa.  Ég fékk allavega lengdina á puttunum og tásunum hennar mömmu..... ;)

 

 

preview image 

 



Heimsóknir í dag: 10
Heimsóknir frá upphafi: 28281