
Halló!!
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla allir
. Núna verð ég 2 ára á þessu ári
. Ég er ennþá hjá dagmömmu en það styttist í að ég komist inn á leikskólan. Ég er orðinn rosa duglegur að kubba og lesa bækur með mömmu og pabba, ég reyni eins og ég get að segja hvað hlutirnir heita en er annars ekkert að stressa mig á að fara tala. Ég segji voff voff, bíbí og ýmis hljóð og nokkur orð. Ég get alveg bent á eyru,munn,tásur, nef og augu og skil vel fyrirmæli. Ég er að nota púst núna næstu 3 vikurnar því ég var búinn að vera með svo mikinn hósta síðan fyrir jól og ekkert að losna við hann. Á föstudaginn gisti ég heima hjá ömmu og afa og var rosa duglegur þar en fannst svakalega gaman að koma heim í gær og sjá allt dótið eins og ég hefði ekki séð það í marga daga og varð að halda á uppáhaldsbílunum mínum og leika með þá
!

Ég fór í sund með mömmu og pabba í gær og það er hægt að sjá nokkrar myndir og myndbönd frá því í gær. Ég elska vatn og því varð ég mjög spenntur þegar mamma spurði eigum við að koma í sund. í dag fer ég svo í afmæli til Arnars frænda
sem verður 3 ára .
Nóg í dag
kveðja Aron Logi
Halló,halló!
Þetta ár er búið að líða frekar hratt, svo stutt síðan ég var 1 árs í mars. Fór í aðgerðina í október og hefur augað lagast mikið eftir það, læknirinn er ánægður með niðurstöðuna og segjir þetta nærri lagi. Ég er búinn að fara í skoðun til læknisins tvisvar sinnum eftir aðgerðina og var hann bara ánægður með mig
, svo lítur hann á mig á næsta ári´. Ég var í ungbarnasundi í haust og fynnst rosalega gaman að komast í sund með mömmu og pabba og fá smá útrás. Ég er rosalegur tívolí maður og breyti húsgögnunum í rennibraut og bý til fjöll og brekkur fyrir bílana mína. Ég er farinn að segja aðeins fleiri orð , nýjustu eru blóm og bók. Ég segji t.d bæ og vinka,Hæ,amma,mamma,pabbi,nei,váá , voff,víí við flugvél og eitthvað sem er gaman eða renna sér,dót,detta,kallinn er voða mikið núna og bendir á alla jólakarla sem eru heima og eitthvað fleira.
Á aðfangadag vorum við hér heima með Freydísi og Leif afa og ég fékk svo mikið af gjöfum að ég vissi ekki hvað ég átti að leika mér með en allt var mjög spennandi meira segja sokkar sem ég fékk. Það þarf ekki að vera mikið til þess að gleðja mig
því það var allt vááá,vááá. ´Daginn eftir var dótið líka jafn spennandi og daginn áður , þá var allt aftur mamma vááá. Tjaldið sem Heiða frænka og Davíð gáfu mér var samt mest váá og fór ég með sængina mína og bangsan þangað inn og kúrði smá.
Ég er í fríi núna hjá dagmömmunni frá því 22.des og byrjar hún aftur 2.janúar, pabbi er heima með mig því mamma þarf að vinna eitthvað en pabbi er í smá jólafríi frá skólanum milli jóla og nýjárs.
Nóg í bili
Aron Logi
Smá krúttleg gullkorn!
Aron Logi var að fara með mömmu sinni út í morgun og heldur auðvitað á uppáhalds bangsanum sínum, en þá missir Aron Logi bangsan sinn og mamman tekur ekkert eftir því að hann lendir á milli í millidyrahurðinni uppi hjá okkur. Aron Logi hristir höfuðið , víbrar allur og segjir neiiiiiii!!!!!!! ég horfi til baka með hann í fanginu og sé að bangsinn er fastur og hann fær að bjarga bangsanum þvílíkt feginn 
Aron Logi er einn heima með mömmu sinni og situr að leika sér og heyrir að hurð er skellt (nágrannarnir), hann hleypur fram og segjir pabba!! en svo sér hann að enginn var að koma og segjir hva hva , mamma!!
Halló!
Á þriðjudags morgun fór ég með mömmu og pabba á barnaspítala Hringsins í aðgerð til að laga á mér augað. Aðgerðin tók rúmmlega klst og gekk vel að sögn læknisins. Ég var svæfður , fékk verkjalyf og svaf svo í 2 og hálfan tíma eftir aðgerðina á vökudeildinni, þeim fannst ég vera búinn að sofa svo lengi að ég var vakinn. Þriðjudagurinn var mjög erfiður, ég ældi og vildi ekkert með þessar umbúðir hafa og leið bara mjög illa og vildi ekkert borða fyrr en um kvöldið. Ég var með í nokkra tíma næringu í æð og fannst alveg skelfilegt að hafa þetta á hendinni á mér og gat ekkert sofnað aftur fyrr en þetta var tekið af mér en þegar það var tekið var ég búinn að gráta svo mikið að blóðið spíttist út um allt svo ég setti blóð í mömmu og ældi á mömmu og út um allt. Miðvikudagurinn var svo miklu betri og var mér farið að líða mun betur og gat eitthvað farið a leika mér við allt þetta dót á spítalanum en ég var samt ekki sáttur með umbúðirnar og klæjaði undan þeim, hjúkrunarkonurnar þurftu oft að laga umbúðirnar þegar ég sofnaði, þær settu líka plástur yfir bangsan minn, mér til mikillar gleði, svo ætlaði mamma að taka plásturinn af bangsa litla í dag og mér leyst ekkert á það,hehe. í gærkvöldi og í morgun klæjaði mig ennþá meira en Haraldur kom að taka þetta af mér í dag og það var frekar sárt og svo setti hann einhvern vökva í augað mitt sem mamma og pabbi þurfa að halda áfram næstu 2 vikurnar að setja í mig 3 sinnum á dag. Augað mitt er smá bólgið núna og rautt en hann ætlar svo að kíkja á það eftir 2 vikur, þannig það er ekkert að marka þetta eins og er. En við fjölskyldan erum mjög ánægð að vera komin heim 
Halló!!
Sumarið er búið að vera mjög skemmtilegt, fékk að vera mikið úti og fórum í ferðalög. Íris og Elísabet voru að passa mig á meðan Óla dagmamma var í sumarfríi, Við fórum alltaf á róló, út að labba, fórum einu sinni í sund og það var rosa fjör. Ég byrjaði aftur hjá ólu 15.ágúst en það var líka geggjað gaman að koma aftur til hennar, mamma hélt ég yrði eitthvað smeikur en ég vissi alveg hvert ég var að fara um leið og við beygðum heim til hennar. Þegar ég kom inn til hennar missti ég mig og sagði váá váá dót dót, haha eins og ég eigi ekkert dót heima hjá mér
! Á laugardaginn byrja ég í nýju framhaldsnámskeiði í sundi , það verður í 10 vikur og verður bara fínt að komast út um helgar og eyða þessari svakalegu orku sem ég hef, pabbi segjir að ég fái þessa orku frá Guðna afa, haha
. Mamma og pabbi keyptu handa mér eina Dóru spólu í Hagkaup í gær , hún er á íslensku og það var bara spennandi að horfa á hana. Þegar ég kem heim til ömmu og afa þá leita ég af Teletubbies spólunni og stend við sjónvarpið og segji HÆ og veifa, þá á að setja spóluna í. Ég er farin að tala nokkur orð , segji t.d Hæ, mamma,amma,pabba,váá við eitthvað spennandi, vííí við flugvél og róla sér, dót, detta,hva,mjá,gagg við hanan í garðinum við hliðina á ömmu og afa, nei, voff og man ekki fleiri eins og er.
Þegar við förum heim til ömmu og afa þá er aðal málið að hlusta á hanan hjá nágrönnunum og svo járnkarlinn í garðinum hjá ömmu og afa, við fórum líka nokkrum sinnum í pottinn í sumar í góða veðrinum , það var bara spennandi. Maður verður ekki sáttur þegar amma er í pottinum og ég get ekki farið í hann því hún vil hafa hann svo heitan , haha
. Ég vil helst vera úti að leika mér og elska bolta og alla bíla og toppurinn er að fá að fara inn í módel herbergi hjá Guðna afa og sjá flugvélarnar það er sko vííí vá ´víí!!
Næsta mál á dagskrá er svo að fá tíma í 18 mánaða skoðun og sjá hvernig ég er að standa mig og mæla hvað ég er stór en ég er búin að lengjast mjög mikið
mamma og pabbi skilja ekki alveg hvaðan ég fæ þessa lengd mína.
kíkjið svo endilega á myndir og myndböndin 
Kveðja Aron Logi
Halló!!
í síðustu viku var Elísabet að byrja að passa mig og þá fékk ég að vera úti með henni eiginlega allan daginn, bara gaman. Þegar mamma kom að ná í mig var ég alltaf búinn á því en á kvöldin næ ég í sængina mína og bangsan og byrja að kúra mér um allt hús . Mér finnst rosa gott að láta setja krem á mig eftir langan dag og þegar mamma segjir viltu koma í bað þá ræð ég ekki við mig af spenningi og hleyp inn á bað og það er ekkert aftur snúið , mér finnst líka best í heimi að fara í sund og er alveg óður í lauginni.
Ég er voða líkur Heiðu frænku í hegðun eins og til dæmis elska bangsa eins og hún , mikill kúrari,nota snuð, er eldsnöggur með svalan, þoli ekki að vera í vettlingum, leiðinlegt að láta klæða mig, vil helst vera bara á bumbunni, klæði mig úr sokkunum ef ég get, sef um allt rúmið mitt og í algjöri kleinu , hreyfi mig mikið á nóttinni og helst ekki með sængina á mér. Man ekki meira eins og er en þessi atriði eru hvorki lík mömmu né pabba. Reyndar á ég eitt sameiginlegt með mömmu það er að hafa æði fyrir reimum , sat inn í andyri hjá ömmu og afa í gær að dunda í reimunum í skónum en það gerði mamma alltaf.
Ég er mikill dansari og dilli mér oft við þegar siminn hjá mömmu hringir og svo er í uppáhaldi Mickey mouse clubhouse en það er á playhouse disney stöðinni minni sem er í uppáhaldi og svo stafalögin , t.d þegar ég hlusta á A lagið þá segjir ég A, svaka klár
. Mér finnst líka voða gaman að dunda mér að skoða bækur og líka gaman ef mamma eða pabbi lesa þær fyrir mig.
Núna er mesta sportið hjá mér að fá að drekka úr svalafernu, amma kenndi mér það og er voða montinn með það 
kveðja Aron Logi
Halló,halló!
Þann 1.júní varð ég 15 mánaða gamall en núna í vikunni hef ég tekið miklum framförum að ganga. Núna er ég farinn að ganga miklu meira heldur en að skríða, er að fara hætta því bara alveg. Ég var kominn í helgarfrí á miðvikudaginn en mamma var heima með mig á fimmtudaginn því þá var frí og pabbi var að vinna þá og með mig heima í gær en þá fórum við í heimsókn til Leifs afa, Björk ömmu og Guðna afa. Mér finnst rosalega gaman að vera úti og er ekki lengi að láta mig hverfa ef ég heyri að það er opið út en Dagmamman segir að ég sé eins og lax að komast út í vatnið , svo spenntur er ég
. Mamma og pabbi eru að vona við getum farið í tjald eftir 2 vikur á ættarmót ef veðrið fer að skána, það væri geggjað að fá að vera úti bara allan daginn
Nóg í dag, Aron Logi
Halló,halló!
Núna fer sumarið vonandi að koma en í dag fór ég með mömmu og pabba að skoða dýrin í dýragarðinum í Njarðvík en ég talaði við þau með því að segja úúúúú og var ekki sáttur þegar mamma og pabbi vildu fara. Við fórum í pottinn heima hjá ömmu og afa þrátt fyrir að þau væru ekki heima en Heiða og Karen frænka voru að keppa á golfmóti á Akranesi og þau voru í sumarbústað í Hvalfirðinum. Ég hef oft séð Björk ömmu fara á kvöldin í pottinn en ég hef aldrei farið í hann sjálfur en fékk það í dag og fannst það rosalega skemmtilegt, ætlaði bara stinga mér og synda í pottinum
!
Núna er ég á fullu að æfa mig að ganga en ég kemst samt miklu hraðar skríðandi en ég hef tekið 50 skref inn í stofu heima og er farinn að vera miklu öruggari og labba hraðar líka, en mér finnst samt ennþá miklu fljótlegara að skríða um allt hús. Ég vil helst ekkert láta pína mig í að labba heldur geri ég þetta þegar mér dettur í hug.
Núna er ég að fá fjórar augntennurnar upp á sama tíma, síðast fékk ég líka fjóra jaxla upp í einu en þá varð ég smá veikur með eyrnabólgu og fékk krem við því en það lagaðist en svo seinna fóru mamma og pabbi með mig til læknis til að athuga eyrun mín en læknirinn vildi ekkert gera þó svo að ég væri með smá vökva inn á öðru eyranu, hann vildi bíða og sjá hvort þetta myndi ekki lagast í sumar. Svo fórum við til aunglæknisins í apríl og hann vill láta laga augnlokið mitt sem fyrst og erum við bara að bíða eftir að fá hringingu frá barnaspítalanum.
Annars er ég rosa duglegur hjá Ólu dagmömmu, duglegur að borða og leika við börnin. Þegar það er ágætt veður förum við út að leika og finnst mér það skemmtilegast en þá er ég líka rosalega þreyttur þegar ég kem heim og fer oftast að sofa kl 8. Við mamma förum alltaf í hverjum mánuði á bókasafnið að velja bækur og ég elska að skoða bækur heima og sérstaklega að skoða dýrin 
Jæja vonum að sumarið sé komið núna
Meira seinna
Kveðja
Aron Logi
Halló,halló! 
Eins og ég sagði frá í síðast þá byrjaði ég hjá dagmömmu 4.apríl en eftir þessa fyrstu viku hjá dagmömmunni fékk ég smá hita, hor og leiðindi og svo er ég að fá 4 jaxla upp á sama tímanum, mér finnst vont að tyggja mat en þetta er eitthvað að lagast. Ég fór því ekki til hennar síðasta mánudag en svo héldu mamma og pabbi ég væri orðinn góður og fóru með mig á þriðjudaginn til hennar en þá hringdi hun í mömmu því ég var svo mikið grey bara eftir að hafa lítið sem ekkert borðað og sofið en svo var pabbi heima með mig á miðvikudaginn en þá var ég með engan hita heldur bara verki í tönnunum en þá áttum við tíma hjá Haraldi augnlækni, það sem kom út úr því er að ég er að fara í aðgerð á auganu mínu sem fyrst , það kom mömmu og pabba frekar á óvart en samt smá léttir að það eigi að drífa í þessu því augað er ekki búið að vera lagast eins og hann bjóst kannski við að mundi gera. Svo kíktum við á domus medica til læknis þar til að athuga með eyrað mitt en það var bara smá vökvi inn á hægra eyranu sem kemur vegna kvefs og smá rauður í hálsinum en það lagast bara að sjálfu sér.
Á fimmtudaginn fór ég svo til Ólu og ældi þá
slími hjá henni sem var ekki gott en fyrir utan það var ég hress hjá henni þann dag. Pabbi ákvað að vera heima með mig á föstudaginn sem var gott því seinnipartinn fékk ég svo aftur hita en annars var ég buinn að vera alveg hitalaus í nokkra daga. Horið mitt er hætt að vera grænt sem er gott því þá er ég að lagast og er farinn að borða mat sem þarf að tyggja líka. Ég ætla vera kominn með allar tennurnar fyrir sumarið , koma alltaf svo margar niður á sama tímanum.
Ég gekk 9 skref í vikunni hjá pabba, rosa duglegur og svo er ég farinn að standa upp hvar sem er og tek svona nokkur skref þegar mér dettur í hug sjálfur en mér finnst leiðinlegt þegar fólk er að pína mig í það. Mamma og pabbi ætla vera alveg inni með mig í dag svo ég fái ekki aftur hita enda er veðrið ekkert spennandi til að vera fara út í . Næsta vika verður stutt og svo kemur páskafríið og kannski við gerum eitthvað skemmtilegt saman þá svo ég ætla ekki að vera veikur þá 
kveðja Aron Logi
Halló,halló!
í síðustu viku byrjaði ég í aðlögun hjá Ólu dagmömmu , pabbi fór með mig því mamma byrjaði að vinna í mars. Það gekk alveg rosa vel í aðlögun og fannst rosa gaman að sjá önnur börn og leika með þeim. Á mánudaginn byrjaði ég svo alveg hjá ólu og ég er ekkert að væla þegar mamma fer heldur flýti ég mér beint í dótið eða beint að fá hafragraut hjá henni og er bara rosalega ánægður og glaður og er voða mikið hlægjandi og í góðu skapi. Ég er hjá ólu frá rétt fyrir 8 og alveg til rétt yfir 4 en þá sækir mamma mig en þá finnst mér voða gott að fá stórt knús frá mömmu því hún þarf að fara með mig svo á annan stað 3x í viku í pössun því þá fer hún að vinna meira, alveg brjálað að gera. ég er farinn að sofa fyrr á kvöldin heldur en áður því ég er mjög þreyttur eftir daginn hjá Ólu, ég er farinn að leggja mig helst bara einn góðan lúr yfir daginn Í vagninum eins og hin börnin.
Mamma og pabbi hafa farið með mig nokkrum sinnum í sund núna síðastliðnar vikur og það er best í heimi, síðast faldi ég mig inn í skáp í sundlauginni og mamma fór að leita af mér og svo stakk ég af inn í sturtuklefann,híhí
en annars er ég bara í kútnum mínum í vatnaveröld á fleygi ferð!
Núna segi ég mamma,amma,pabba,takk,burrr,aaa og fleiri hljóð sem líkjast orðum en þetta er allt að byrja að koma núna og ég var svo duglegur að ég fór að ganga frá dótinu mínu í kassan um síðustu helgi með hjálp pabba en mamma og pabbi voru rosa hissað á því. Ég get líka alveg kastað bolta á milli og náð í eitthvað sem ég skil hvað heitir eins og bolti og þannig sem ég þekki. Við mamma förum reglulega á bókasafnið að ná í nýjar bækur og svo lesa mamma og pabbi stundum fyrir mig. Núna er bara næsta verkefni að æfa sig að labba en eftir að ég byrjaði hjá ólu þá hafa mamma og pabbi séð mikinn mun hvað ég reyni meira að labba því auðvitað vil ég vera eins og hin stóru börnin eða stelpurnar
er eini prinsinn í hópnum hjá henni. Ég get labbað með bílinn minn og göngudót og sleppi mér á milli húsgagna, hef mest tekið 2 skref alveg óstuddur svo þetta fer örugglega að koma.
Nóg í bili
Aron logi