

























Endilega kvittið svo í gestabókina svo við getum fylgst með hverjir eru að skoða síðuna okkar.
MAMMA ER KONAN...
... sem kemur manni í heiminn með mikilli
fyrirhöfn fæðir mann og klæðir og veitir all þá
hlýju og ástúð sem lítið barn þarf á að halda.
Þegar maður eldist og ætti kanski að getað
hugsað meira um sig sjálfur,
til dæmis að vera í hreinum fötum,
og lagað til í herberginu sínu
leyfir mamma manni það ekki
því hún er vön að hugsa svo vel um barnið sitt.
Mamma er alltaf til staðar með útrétta
hjálparhönd þegar á þarf að halda,
þerra tárin þegar það er leiðinlegt
og gleðst með manni þegar gaman er að vera til.
MAMMA ER BESTA KONA Í HEIMI !!!
PABBI ER MAÐURINN...
... sem verður svo montinn þegar maður fæðist
að það mætti halda það hafi ekki fæðst barn áður.
En það tekur hann bara nokkra daga
að komast niður á jörðina aftur.
Honum finnst skrítið að lítið barn
skuli ekki getað sofið alla nóttina
og kúkað í klósett eins og annað fólk.
Samt veit hann allt!! svo þegar maður
verður aðeins eldri og það er hægt að fara
að leika við mann og kenna manni ýmislegt
finnst honum rosa gaman.
Pabbi er alltaf til staðar með styrka hönd
þegar á þarf að halda.
PABBI ER BESTI MAÐUR Í HEIMI !!!