

jiiiii... mar getur bara endalaust skoðað myndirnar af þér litla sæta sæta;) Við litla famílan erum annars á leiðinni vestur á eftir þannig við kíkkum á þig í næstu viku ef við megum;) Knús þangað til ;o)
Innilega til hamingju með litlu prinsessuna.
Fær maður Lykilorðið svo maður geti séð myndir ????
kv hansína og Gunnar Jónas
til hamingju með prinsessuna elsku Lísa og Rúnar ;) algjört æði og ekkert smá flott videóið af henni hehe..
gangi ykkur vel og við sjáumst :)
Bara að hafa slóðina rétta!
Hæ, hæ elsku Lísa og Rúnar!
Innilega til hamingju með litlu, fallegu stelpuna ykkar. Svo sæt litla snúllan, enda ekki við öðru að búast!
Við kíkjum nú yfir götuhornið þegar að við komum í fjörðinn, hvenær sem það nú verður, allt brjálað í framkvæmdum þessa dagana. m.a. ekkert þak á húsinu akkúarat þessa stundina! Brjálað fjör sem sagt hjá okkur!
Gangi ykkur ofsalega vel í foreldrahlutverkinu sem er það besta og mikilvægasta í heimi!
Kv. Anna, Marri, Ólöf, María og Aron.
Til hamingju með litlu snúlluna! Sammála því að þetta er klárlega tilgangur lífsins ;) yndislegt að fá börnin í hendurnar í fyrsta skiptið.
Gangi ykkur allt í haginn! Kv. úr Reykjavíkinni, Helgi T.
ohhh myndbandið er ekkert smá krúttlegt =) algjör mús litla snúllan ykkar =) vonandi gengur allt vel =)
kveðja
Una,Amalía Björk og Gabriel Eggert
Hæ elsku fjölskylda...
ég nældi mér í lykilorðið til þess að fá að skoða prinsessuna:) Hún er algjör gullmoli* Alveg ofsalega sæt:)
Gangi ykkur súper vel þangað til næst;)
knús og kossar til ykkar***
kveðja Þórunn og Natalía Nótt
Vá! Til hamingju með prinsessuna hún er æðisleg :0)
kveðja Hulda og Jói
Jedúddamía :) Hún er æðisleg! Og fékk greinilega eitt frá mömmu sinni og það er að finnast gott að láta nudda sig og dekra við sig :) Hahahaha... bara fyndið myndband. Var þetta kannski fyrsta brosið eða? Og svoleiðis alveg út að eyrum :)
Kveðja,
Berglind
Æææææ...var að lesa fæðingarsöguna. Þið eruð náttúrulega sætasta og samheldnasta fjölskylda í heimi! Alveg æðisleg :)
Hugsa svooo mikið til þín Lísa! Nú er sko heimurinn bestur og þú átt það svo skilið að njóta þess elsku dúllan mín...Knús :*
Jiiii minn einasti! Sit hérna með tárin í augunum að dást að litla kraftaverkinu ykkar..hún er algjörlega fullkomin! Til hamingju með hana! Maður finnur alveg í gegnum myndirnar hvað allir eru glaðir með hana, amma Jónína sérstaklega :)
Ég ætla sko að halda áfram að fylgjast með hérna og dást að litlu dúllunni, verið dugleg að setja inn myndir! :)
Riiiisa knús og milljón kossar,
Eva
p.s. bestu bestu kveðjur og hamingjuóskir til ömmu Jónínu og afa Hauks :)
Krúttaralegt myndbandið :) XXX
Ohhhhhh jiiii minn,,en fyndið myndbandið,,veit ekki hvað ég er búin að horfa á það oft! ÞÚ ERT SVO MIKIL MÚSSSSS!!!
Vá hvað við erum búin að horfa á myndbandið oft og hlægja :)
Þú ert alveg yndisleg og við hlökkum svo til að máta þig :)
Kveðja frá Nesk
Til hamingu með síðuna. Bara gaman að geta fylgst með ykkur
Það er mjög gaman að fylgjast með ykkur, það geris mikið á einum sólarhring - myndbandið var skemmtilegt ;-)
hæ lísa skvísa til hamíng með litlu stelpuna ðína bless bless halla karen
HEHEHE VIÐ ELLEN ERUM BÚNAR AÐ HLÆGJA MIKIÐ AF MYNDBANDINU :) ERT SVO MIKIL MÚS ÞAR AÐ BROSA SVONA Í ÞVÍ ..
SVO ERTU BARA SÆTARI OG SÆTARI EFTIR ÞVÍ HVAÐ MYNDUNUM FJÖLGAR OG DAGAR ..
ERT ALLGJÖR GULLMOLI :)
LÁTTU MÖMMU ÞÍNA KNÚSA LÆRIÐ ÞITT FYRIR MIG
KVE'JA LÓA OG ELLEN HELGA
Hæ sætu foreldrar og til hamingju með krúttið.
Hún er bara sæt og myndbandið er frábært.
Hlakka til að fylgjast meira með.
Kveðja frá Ísó
Hæ, hæ!
Var að kíkka á myndirnar af litlu snúllu og vá hvað hún er nú lik pabba sínum!
Njótið nú tímans sem framundan er og ég kem pottþétt og fæ að kíkja á þá stuttu þegar við verðum í firðinum fagra.
Annars er nú að bætast í hópinn hjá okkur því það er drengur væntanlegur í desember (er komin ca.32 vikur núna) þannig að alltaf er nóg að gerast!
Bestu kveðjur úr Kóp. Jóna.
Takk fyrir kveðjurnar allir saman. Yndislegt að sjá hve margir eru að hugsa til okkar.
Kveðja frá okkur til ykkar...Lísa, Rúnar og prinsessan
Hæ hæ elsku Lísa og Rúnar,
innilega til hamingju með litlu prinsessuna! Aldrei að vita nema að maður kíki á ykkur þegar við förum í fjörðinn.
Bestu kveðjur til allra, Hrönn, Þengill og börn.
Komið þið sæl kæru vinir.
Innilega til hamingju með litlu dömuna ykkar, hún er voða mikil dúlla. Gangi ykkur vel með hana og skilið innilegri kveðju til ömmu Jónínu og Hauks afa.
Jiiii hvað snúllan er falleg;) Innilega til hamingju enn og aftur ;o) Getum ekki beðið eftir að kíkka til ykkar. Hafið það gott-Knús
Til hamingju með litlu prinsessuna ykkar elsku Lísa og Rúnar. Kossar og knús Kata Rós og Daniel
Úff vorum að skoða þessa gullfallegu stúlku og segjum eins og fleiri...það bara koma tár!! Fyrsta myndin af nýbakaðri mömmu fær 10 og myndin af ömmunum 9,5 - algjör snilld:)
Elskurnar gangi ykkur vel og vonandi sjáumst við fljótlega!
G, G og G.
Elsku litla fjölskylda, innilega til hamingju með prinsessuna... hún er algert cutie pie:)
kveðja Heiða
Ótrúlega mikil dúlla, prinsessan ykkar:) Gangi ykkur sem allra best - hlökkum til að sjá ykkur þar sem við getum montað okkur af kraftaverkunum okkar. Pabbarnir eiga kannski bara meira í börnunum sínum ??? ;)
Hæ hæ, jiii hvað hún er falleg! Innilega til hamingju með hana, þú hefur bara drifið í þessu fyrir settan dag, nú þarf ég að fara að koma með minn/mína! Knús úr höfuðborginni, Erla bumba.