

Til hamingju með fallega nafnið á dúllunni. Guð sé lof fyrir heimasíðuna því annars sæi maður ykkur aldrei :)
kv. Sigga innilokaði neminn í tölvulandi
Til hamingju með fallega nafnið þitt :)
Gaman að fylgjast með þér og skoða allar fallegu myndirnar af þér litla dúlla.
Kv Sylvía og strákarnir
Kæra Lísa
Óskum ykkur innilega til hamingju með prinsessuna ykkar,til hamingju með nafnið hennar, hafið það gott og njótið þess að vera til.
P.S Bestu kveðjur frá Auði Guðjónsdóttir með ósk um velgengni.
Kveðjur Hugrún,Evert,dömurnar og Jóhannes Páll sem nú er staddur á sjó.
Til hamingju með daginn kæra fjölskylda og til hamingju með fallega nafnið þitt Karen Helga.
Kærar kveðjur frá Akureyri
Auðunn, Birna og Björn Ægir
Hæ hæ kæra fjölskylda.
Innilegar hamingjuóskir með fallega nafnið þitt Karen Helga og foreldrar til hamingju með daginn, bestu kveðjur í fjörðinn, Edda, Guðjón og Ingó
Til hamingju með nafnið þitt og daginn. Sendu pabba þínum svo afmæliskveðju:)
Kveðja úr pestarbælinu í Keflavík
Hæ aftur fallega fjölskylda!
Innilega til hamingju með fallega nafnið þitt Karen Helga. Það er alveg æðislegt og fer þér einstaklega vel :)
Það er greinilegt að dagurinn hefur verið yndislegur.
Já Lísa mín! Það er sko stutt í jólin :) Þetta verða æðisleg jól hjá ykkur með litlu dúlluna...
Hafið það ofboðslega gott!
Knús og kossar,
Eva
Oh takk fyrir þessa fallegu kveðju Þyrí mín. Vonandi kemuru fljótt í fjörðinn til að kíkka á gimsteininn okkar. Knús frá okkur
XXX
Hæhæ sæta stelpa, til hamingju með fallega nafnið þitt Karen Helga. Skilaðu afmæliskveðju til pabba þíns og kveðju til mömmu þinnar.
kveðja Hanna Dögg, Birgir Már og Karen Dögg
Kæru Lísa, Rúnar og Karen Helga til hamingju með daginn.
Frábært nafn á litlu prinsessunni. Held það verði erfitt að ná systur minni niður úr skýjunum í dag en mætti reyna það á morgun.
"Megi hver sekúnda færa ykkur gleði,
hver mínúta von,
hver klukkustund þolinmæði,
hver dagur undur,
og árið vera fullt af frið og ást".
Kærar kveðjur,´
Þyrí
Til hamingju með nafnið þitt fallega Karen Helga - hlökkum til að sjá þig í skírnarkjólnum :) XXX Þórey og Þórir
Hæ hæ
Mikið er þetta fallegt nafn á dömuna - Karen Helga er alveg dásamlegt og fer henni vel! Bestu kveðjur til ykkar allra!!!
Knús
ÞorgerðurBen
p.s. Rúnar minn - til lukku með daginn ;-)
Til hamingju með fallega nafnið þitt Karen Helga =) eigið góðan dag =)
Knús á ykkur
Una,Amalía Björk og Gabriel Eggert
hæhæ Karen Helga:) til hamingju með fallega nafnið þitt krúsídúlla:*** bestu kveðjur frá okkur;) Auður,Elfar,Jóhann Sverrir og Kristófer Smári
Hæ hæ Karen Helga
Innilega til hamingju með nafnið þitt, það fer þér ekki smá vel.
Kveðja Inga Hilda og co
Elsku fjölskylda til hamingju með daginn og þetta gullfallega nafn.
TILHAMINGJU MEÐ FALLEGA NAFNIÐ ÞITT KAREN HELGA :)
FER ÞÉR SVAKA VEL AÐ HEITA ÞETTA .
HLÖKKUM TIL AÐ SKÍRA OKKAR DÚLLU Á MORGUN .
Ellen Helga verður glöð með þetta nafn :)
kveðja Lóa og co
Hæ elskurnar - stór dagur í dag.
Til hamingju með daginn Rúnar, góður dagur;-)
Til hamingju með skírnardaginn....hlökkum til að heyra nafnið hennar.
Yndislegur dagur í Hollandi, sól, logn og 12 gráður - vonum að það sé eins fallegt í firðinum í dag.
Knúz og kossar, Helena, Mái og Embla
Hæ elsku sæta fjölskylda!
Til hamingju með daginn Rúnar! Greinilega stór dagur í dag hjá litlu fjölskyldunni. Hlakka of mikið til að vita nafnið. Held ég sitji bara hérna og refreshi þar til einhver hefur sett inn nafnið! Haha...
Risaknús til ykkar allra frá Danmörku,
Eva
Dagurinn runninn upp... Til lukku með pabba litla dís - hlökkum til að kíkja hér seinna í dag og vita með vissu fallega Þóreyjarnafnið þitt ;) Eða er það kannsi Elley!!! Sendum kossa og vonum að þið eigið góðan dag. XXX ÞSS og strákagengið
Það mætti halda að ég væri fljótfær, sendi alltaf fyrsta skeytið án þess að skrifa nokkuð!!
Hlakka til að heyra nafnið þitt á morgun, vona að dagurinn verði ykkur góður. Sjáumst svo um jólin, hlakka mikið til. Rúnar, til lukku með morgun daginn.
Bestu kveðjur úr pestabælinu í mosó, en RV er búin að vera með hita, hósta og kvef í viku. Er nú öll að hressast.
Jónína og co
vá hvað mamma þín og pabbi eru dugleg að setja inn vidjó af þér :) gaman að fá að sjá svoleiðis :) og þú stækkar bara og stækkar... en gangi ykkur vel í skírninni, bíðum spennt eftir að fá að vita nafnið :) knúsknús :*
Sæl kæra fjölskylda.
Litum yfir dagbókina og albúmið og ljóst að hér er allt í góðum málum, hvað annað. Falleg Dúlla sem eflaust á eftir að fara um svæðið á skíðum með Hauk afa á hliðarlínunni hvetjandi sem aldrei fyrr.
Gaman að sjá myndir af fólki sem ég hef ekki hitt lengi og bið fyrir bestu kveðjur til Liesel, Jóhanns og Sigrúnar.
Vonum að þið eigið góða helgi og hlökkum til að fá að vita nafnið.
Edda, Guðjón og Ingó.
Ég varð nú að kíkja á litlu prinsessuna, hún er algjör bjútíbomba :) ekkert smá sæt litla skvísan.. Til hamingju með hana :) Hafið það gott
kveðja Hildur og gríslingarnir á Dalvík
(reddaði mér líka lykilorðinu hjá ykkur langaði svo að sjá skvísuna)
Hæ hæ rosalega flottar myndir af þér skvísa endilega kíktu á heimasíðuna mína, sjáumst aftur á fimmtudaginn sæta, þá verðuru komin með nafn.. Mig hlakkar sko til.. Sjáumsr:D
ÚPPS smá ruglingur ég fæ nafnið mitt 25 nóv :) enda máttu vera á undan :) 1 deigi enda komstu einum mánuði á undan :)
kveðja :)
krúttbomba litla
æðislegar nýju myndirnar af þér ert greinilega að blómastra þarna í snjónum :)
lillan okkar elskar líka baðið góða .
sé að við fáum nafn sama dag :) humm ætli við eigum nokkuð að fá það sama :) hlökkum til að heyra hvað þú átt að heita :)
kveðja úr rvk Lóa og co
Hæ elsku yyyyyyndislega dúlla!
Ég elska að kíkja á þig og sjá fallegu myndirnar af litlu fallegu dúllunni! :) Þú ert algjört æði og ég vildi að ég gæti komið og knúsað þig smá...
Hlakka hrikalega til að heyra nafnið!
Knús og milljón kossar (knúsaðu mömmu líka extra fast frá mér!) :)
Eva