

Vá! Geggjað jólahúsið ykkar :) Christmas vacation hvað segi ég nú bara! :-)
Litla jólastelpan er yndisleg eins og alltaf!
Knús til ykkar litla fjölskylda,
Eva
Hæ sæta jólafjölskylda
Vá hvað þú Lísa söngst rosalega vel í gær maður fékk alveg gæsahúð og meiri segja tókst þér næstum að koma mér í jólaskap:)
Enn svo var hún Karen ekki smá góð í kirkjunni það heyrðist bara aldrei neitt í henni, ég hefði alveg viljað sjá frændann hennar hann Víking getað gert það sama
Kveðja Inga Hilda
Oh hvað þetta var fallegt af þér Bökka mín. Takk fyrir og takk fyrir að koma í kirkjuna. Knús til þín frá okkur.
XXX
Hæ hæ Karen Helga sæta stelpa!
Það var voða gaman að sjá þig í kirkjunni í kvöld, þú varst ekkert smá stillt og góð að hlusta á mömmu þína og alla í kórnum syngja, ætli þú verðir ekki bara söngkona eins og gamla : )
Flottar myndirnar af þér litla kúrumús : )
Barnið hefur lært að brosa og brosin
kveikja stjörnuljós í hjörtum okkar.
Hamingjan fyllir herbergið.
Að hverju erum við að brosa?
Við vitum það ekki og okkur er alveg sama.
Við eigum einfaldlega tjáskipti
og brosin eru hin sýnilegu tákn
um gleði okkar og ást.
(Joan Lowery Nixon)
Mig langaði bara að láta þetta fylgja með því ég veit að þetta á vel við : )
Kossar og knús
Björk og Embla
Hæ hæ Dúlla ekki smá flottar myndirnar af þér mér langaði bara aðeins að kvitta bæbæ kv. Sæunn.
varð nú bara að kvitta fyrir mig, þið eruð sætasta fjölskyldan ever hlakka til að geta dekstrað við nöbbu alveg eins og Helga nafna mín gerin enn þann daginn í dag... hlakka til að sjá ykkur á eftir kv.>Helga pelga
Hæ og hó. Við kíkjum hingað regluega en gleymum oft að kvitta. Þið eruð bara yndisleg. Við verðum fyrir norðan um jólin frá 15.-27.des, ef þið farið e-ð til Akureyrar þá væri æðislega gaman að hittast. Knús Erla og co.
þú ert nú meiri gullmolinn :) og ekkert smá flott jólahúsið ykkar.. :) vonandi komst skírnargjöfin til skila? ;) love from Stokkseyri :*
Hæ Karen Helga og takk fyrir síðast. Það var ansi gaman að hitta ykkur. ´Viltu biðja mömmu þína að senda okkur lykilorðið á síðuna, hún hélt hún vissi það en svo er greinilega ekki. Okkur langar svo að sjá myndirnar af þér
kv. Örn og Eyrún
Sko vatn og börn það er það eina sem virka. Og nú þarf bara góða innilaug í Ólafsfjörðinn, betra að baða í lauginni en sulla allt út heima!
Flottur geispi, nafna!
Hæ krútta litla rosa flottar myndir ;-*
Vá hvað jólahúsið er fallegt hjá ykkur ;)
Og litla daman alltaf jafn flott líka. Hún er eitthvað svo mikill karakter þó hún sé svona lítil :)
Jólakveðjur til ykkar,
Eva og ungarnir
Hæ hæ sætu, Karen Helga er nú meira bjútíkvínið, á nú ekki langt að sækja það:O). Hlakka til að koma í heimsókn í fína jólahúsið ykkar, teljum dagana í norðurferð! Hafið það gott, Jónína og stelpurnar.
Vá, hvað húsið "okkar" er fallegt ;)
Það alveg flæða fram minningarnar af því þegar mamma var að skreyta og bara hvað var yndislegt að búa í þessu húsi, (já ok, ég veit að þetta er væmni.is en það má alveg stundum:)
Bestu kveðjur,
Gullý.
Vá, Undralandið ekkert smá flott og Karen Helga er auðvitað alltaf jafn falleg...já og þið líka
Fannst ekkert smá krúttlegt að sjá rósirnar í skálinni - minnti mig bara á ömmu Evu :)
Nú styttist í að við komum aftur, vei vei :)
HM, flott hús og Rúnar, það fer að minna óneitanlega á ákveðið hús í bíomynd nokkurri sem oft hefur verið horft á hér. Hringir nafnið Griswold nokkuð svo sem einni bjöllu?!
Hæ sætu!
Fann síðuna ykkar hjá Önnu Siggu og ákvað að kíkja, það er svo gaman að fylgjast með. Karen Helga er ekkert smá flott ;)
Mín stelpa Ísold Assa er bara mánuði eldri, þau eru alltof fljót að stækka...
kv. Gása
halló
sé þú ert alltaf jafn róleg á skreytingum og annað!! ;)
en gaman af þessu, húsin ykkar systkina mjög lagleg.
Spurning hvernig Garðstígurinn tekur sig út í ár!??
see you soon
Ekki málið elsku vinkona, ég mæti. Þú bókar bara flugið :-D Dí hvað ég finn til með þér, reyndu að vera þolinmóð og fara varlega. Bataknús til þín frá mér.
Lísan
Húshjálp óskast
Óska eftir að fá eitt stykki Liz til að þrífa, baka, sauma og skreyta fyrir jólin......flug til Hollands innifalið í laununum....
Luv, H
Geturu ekki aðeins komið til mín og sett upp seríurnar fyrir mig!! Ég fékk bara samviskubit, og er að spá í að taka mínar niður, þegar ég sá hvað þínar eru fínt settar upp!! Ég er sko búin að þrífa gluggana... já og við mamma í sameiningu!!
En hvað ég held að þetta fæðingarorlof sé nú gott fyrir þig sæta mín.. Sé alveg að þú blómstrar:) Flott kakan!! Dí þú kannt nú bara allt!! Tek sko vel undir með hinum sem eru búnar að kalla þig ofurkonu;)
Knús og kossar.. er alveg að fara að hringja:)
XXX
Til hamingju með fallegt nafn Karen Helga. Og Lísa, voðalega hefur þú verið iðinn við saumaskap í gegnum tíðina... Þú ert ofurhúsmóðir. Ótrúlega gaman að skoða myndirnar og ég hlakka til að hitta ykkur næst og fá að halda á litlu. Og mikið er orðið jólahuggulegt hjá ykkur.
p.s. Ég á líka slatta af litlum sætum kjólum síðan ég var lítil. Kann samt ekki alveg við að setja Jökul í þá.
Hæ skvís, þú ert nú meiri dúllan :) Bið að heilsa mömmu þinni og hlakka rosalega til þegar ég get komið norður að knúsa þig :) Já og til hamingju með nýja flotta nafnið, rosa flott :)
Jólaknús :)
Berglind frænka
kvittikvitt :) flottar nýju myndirnar dúlla :)
Hæ hæ Lísa má ég nokkuð fá að kíkja á litlu dúlluna þína en gæti ég þá fengið pw hjá henni ég lofa að segja ekki neinum kv. Sæunn:)
Hæhæ, vorum að skoða nýju myndirnar af þér. Þú ert algjör dúlla.
:) Það var æðislegt að fá þig og mömmu þín í heimsókn um daginn. Við verðum nú að fara heimsækja ykkur og taka út jólaskreytingarnar hjá foreldrunum þínum.
kveðja Hanna Dögg og Karen Dögg
Flottar tungur á ykkur mæðgum!
Úpps gelymdi að kvitta með nafni :) heheehe
Innilega til hamingju með nafnið Karen Helga, ofsalega fallegt nafn :)
Þið eruð svo sæt fjölskylda :***
'otrúlega flottar myndir af skírninni,, þetta er svo yndisleg stund :)
Vonandi að við sjáumst nú fljótlega!! (kannski á e-h litlujólum) :)
Halló unga fólk, það er alveg ótrúlegt hvað þessi litla dama stækkar og braggast, ég sakna ykkar allra og vonandi sjáumst við sem fyrst.