

14 okt - Fengum við Kiddi mjög óvænt en svo svo svo velkomið jákvætt á prófi.
4 nóv - Fórum í snemmsónar. Lítil baun með hjartslátt. Erum þá komin 9 v & 4 d. Fannst 10 cm cysta á hægri eggjaleiðara Guðjón vill að í 12 vikna sónar fáum við sérfræðings álit.
22 nóv - 12 vikna sónar uppá LHS. Skoppandi kríli. Áttum að fá álit hjá sérfræðingi en sónartæknirinn sagði að enginn sérfræðingur væri á svæðinu svo við vorum bara send heim.
24 nóv - Mæðraskoðun 1. Fenguð hana Ingibjörgu ljósmóður :D
FLOTTUR hjartsláttur hjá krílinu og fer mjög vel um það.
29. nóv - Skoðun uppá LHS vegna verkja í cycstu (blöðrunni á eggjastokk) og ákveðið að framkvæða aðgerð.
30 nóv - Kviðarholsspeglun, aðgerð vegna cystu(blöðru á eggjastokki). Hægri eggjaleiðari og eggjastokkur tekin, ásamt 18 cm blöðru. Auður smith var skurðlæknirinn og sagði að allt hafi gengið eins og við vildum og hún hafi ekki þurft að koma neinstaðar nálægt leginu. Í raun sagði hún að krílið hafi meirað segja fært sig aaaðeins til hliðar svo að Auður fékk smá extra pláss.
10. des - Skoðun hjá Auði Smith, allt lítur vel út og grær vel. Fengum flottar sónar myndir af skoppandi krílinu okkar. Þarf að mæta aftur í skoðun 1-2 mánuði eftir fæðingu.
20 des - Mæðraskoðun 2. Lítur allt vel út og flottur hjartsláttur og nóg af legvatni:)
14 janúar - 20 vikna sónar. Allt lítur mög vel út og þetta er skvísa
!!!
21 febrúar - Mæðraskoðun 3. Lítur allt vel út. Skvísan í meðal stærð og sterkur hjartsláttur !
21 mars - Mæðraskoðun 4. Lítur allt vel út áfram. Mjög kröftugur hjartsláttur og enn í meðal stærð !!
11 apríl - Mæðraskoðun 5. Lítur allt mjög vel út og mjög kröftugur hjartsláttur hjá skvísunni. Hún er heldur ekkert að bíða með neitt og er búin að skorða sig í grindina.
19 apríl - Aukaskoðun hjá Ljósmæðranema - Rifjað upp fyrstu vikurnar og ný skýsla gerð. Svaka fjör. Hjartsláttur flottur og skvísan komin allveg niður í grindina, pikkföst.
28 apríl - Mæðraskoðun 6 Allt lítur mjög vel út. Ingibjörg segir okkur að hver dagur sé plús og skvísan hafi það mjög gott. Mældist aukandi bjúgmyndun, en ekkert alvarlegt.
12 maí - Mæðraskoðun 7 Lítur allt vel út. Legbotn mældist aðeins yfir venjulegu kúrfunni.
Flottur hjartsláttur hjá skvísunni. Nú bíðum við bara spennt eftir henni!!
17 maí - fórum við uppá fæðingargang LHS eftir að ég var búin að ræða við heilsugæsluna og ljósmæðurnar þar vildu að ég færi i skoðun því ég fann svo litlar hreyfingar. Var sett í monitor og þar mældist hraður hjartsláttur hjá skvísunni en góðar hreyfingar.
Vildu fá okkur aftur seinnipart dags í monitor og hjartslátturinn ennþá hraður.
18 maí - Þriðja monitor skráning uppá LHS og hjartslátturinn hjá skvísunni að fara á rétt ról svo við vorum bara send heim.
24 maí - Kíktum við uppá LHS því ég var með mikinn höfuðverk sem verkjalyf virkuðu ekki á og fann ennþá litlar hreyfingar. Kom allt vel út og hreyfingar mældust góðar og höfuðverkurinn líklegast bara þreyta
26.maí - Mæðraskoðun 8 Lítur allt vel út. Hjartslátturinn hjá dömunni aðeins hraðari en venjulega, en er að jafna sig. Legbotninn mældur 38,5 sem er nákvæm meðgöngulengd þannig hún er ennþá aðeins yfir kúrfunni semhún var á.
Bíðum enn spennt og erum jafnan fegin að hafa náð 37 vikum. Hvað þá 38!
30 maí - Hafði samband við ljósmóður á heilsugæslunni útaf grun um að legvatnið læki. Hún taldi það ekki geta verið því það kæmi svo lítið, engar "gusur" eins og hún vildi orða það. Komin með óreglulega samdráttaverki og mjög væga.
31 maí - Förum við uppá LHS, grunaði enn að legvatnið læki. Þar kom í ljós að legvatnið var í raun"farið" því það var ekkert vatn eftir í leginu nema smá belgur fyrir framan höfuðið á skvísunni. Við erum innlögð á Fæðingargang kl 8 um kvöldið.
1 júní klukkan 00:49 fæddist Kamilla Rún Kristinsdóttir 