
Styttist í ykkur :-) mikið hlakka ég til að fá ykkur heim búið að vera alltof langur tími fyrir okkur hér á klakanum.
Veit að við Tanja Ósk, Gabríel Ingi og Anna Ósk bíðum bara við dyrnar um leið og þið og Amma og afi koma heim.
Kv,
Hele frænka
Hæ elskurnar, mikið var gaman að hitta ykkur um daginn, takk fyrir vöfflurnar og félagsskapinn;-)
Alltaf jafn gaman að fylgjast með ykkur.
stórt knús frá okkur í West Hartford
Kristín Halla, Kalli og mamman
Hæ elskurnar mínar, mikið eigum við eftir að sakna ykkar. Hafið það sem allra best í fríinu ykkar.
Kv,
Hele frænka
Hæ hó allir saman og gaman var að hitta ykkur í smáranum um daginn, hef ekki séð ykkur í mörg ár. En ég var að spá í það hvort að ég fengi nokkuð lykilorðið svo ég geti fylgst með ykkur
Kveðja frá Akranesi
Guðrún
Ég heiti ekki Jón Björk eins og ég skrifaði hér í skilaboðunum að neðan heldur Jóna Björk, mætti halda að ég kunni varla að skrifa mitt eigið nafn ha,ha,ha... ég bilast. ;-) Vildi bara leiðrétta villuna krúttpjakkarnir mínir. kv. Jóna Björk
Þið eruð langflottust. Jidúddamía er þetta bara hægt? Halla Stella, það mætti halda að mamma þín hafi bara ekkert komið nálægt getnaði þínum, bara verið beri fyrir pabba þinn....ha,ha,ha. En hún á svolítið í Kristian Óskari, það má nú. ;-) Kissiði pabba rembingskoss frá okkur hér í Eyjum og óskið honum til hamingju með afmælið í dag. Ætliði að gera það fyrir frænku því hún er svo langt í burtu? Við hittumst svo vonandi flótlega. Koss knús og risakremja frá okkur ÖLLUM. Kveðja, Jón Björk frænka og fjölsk.
Blessuð Írena og takk fyrir síðast:) Ég fann síðuna í gegnum Lindu og var að spá hvort ég mætti fá aðgangsorðið?
Bestu kveðjur
Erla
Hæ. hæ
Alltaf jafn gaman að skoða myndirnar af ykkur systkinunum, þið eruð svo miklar rúsínur. Kristian! pakkinn er nú aldeilis búinn að upplitast haha. Kv. af Skaganum Herdís og co
Hæ elskurnar mínar, jeminn hvað leikskólamyndirnar eru æðislegar :-)
Kv,
Hele frænka
Hæ hæ vorum að vafra á netinu og rákumst á síðuna ykkar í gegnum árgangsíðuna hjá mömmum okkar gaman væri að fá leyniorðið og skoða ykkur betur þið eruð meiri krúttin. Hafið það gott kv Linda og dæturnar
Hæ elsku Kristian Óskar og Halla Stella, æðislegt að skoða nýju myndirnar.
Kv,
Helena
hæ hæ, gaman að kíkja og skoða myndirnar. Þið eruð nú bara algjörar dúllur :) Greinilega frábær systkini.
Og til hamingju með afmælið um daginn, Halla Stella
Kveðja til gömlu,
Kristín og Ásdís Eva
Til hamingju með fyrsta afmælið!
Kærar kveðjur
Til hamingju með afmælið Halla Stella! Orðin rosalega stór! Allt, allt og langt síðan við sáum ykkur, þurfum að fara að hittast!
kv Gunna og co.
Elsku Halla Stella,
Innilega til hamingjum með daginn þann 16.feb orðin eins árs elsku stelpa og ég er ekki einu sinni búin að sjá þig live. En það verður breyting á því við erum á leiðinni. Hlakka mikið til að að sjá þig dúlla já og bróður þinn allt of langt síðan.
Kær kveðja frá dönsku krökkunum,
Brynja og allir.
afmælismyndir hvar eru þær þó að við getum ekki kvartað yfir leti við að setja inn myndir þar sem að við erum ekki mjög dugleg í því.
Kveðja anna og fjölsk
Til hamingju með 1s árs afmælið í gær Halla Stella! Tíminn er sko fljótur að líða! Hvað er að frétta? Byrjuð að labba? Íris er sko alveg róleg í tíðinni... gott mál :)
Það væri nú gaman að hitta ykkur frænkur við tækifæri...
Kossar og knús úr Vesturbænum...
Innilega til hamingju með prinsessuna, ótrúlegt að það sé strax komið ár síðan hún kom í heiminn. Hún er ekkert smá sæt hún Halla Stella :) Og stóri bróðir auðvitað líka. Sætar myndir af sætustu frænkunum. Sjáumst vonandi þegar við mæðgur komum á klakann eftir 10 daga.
Kveðja frá Köben
Bergþóra
Hæ elsku Kristian Óskar minn og Halla Stella ótrúlegt að það skuli vera afmæli á morgun hjá prinsessunni okkar. Tíminn er svo fljótur að líða. Hlakka til að sjá ykkur.
Kv,
Helena
Gaman að sjá nýjar myndir.
Sjáumst hress í íþróttaskólanum á eftir.
Knús
Anna Lilja
Vá fínar myndir af ykkur öllum. Ótrúlegt hvað Halla Stella er orðin stór greinilegt að það er allt of langt síðan ég sá hana síðast. Ekkert smá flottur strákur hann Kristian Óskar.
Hlakka til að hitta ykkur.
Knús,
Sigga og Ottó Andrés
Vá hvað prinsessan er með sítt hár, bara komin með teygju í hárið og alles :)
Flottar myndir af ykkur öllum.
Knús frá Köben
Bergþóra og Álfhildur Anna
Var að skoða nýju myndirnar, KOS ekkert smá duglegur alltaf að hjálpa til :-)
Kv,
Hele frænka
Hæ elsku dúllurnar mínar bið ykkur að kyssa mömmu ykkar og pabba frá frænku og biðjið þau að setja inn NÝJAR myndir. MISS you
Hæ elskurnar, gaman að skoða myndirnar ykkar, sæt jólafjölskyldumyndin af ykkur, svo myndarleg fjölskylda.
Hlakka til að hitta ykkur í næsta mánuði.
knús og kossar
Álfhildur og co.
Hæ litlu grallarar
Alltaf svo gaman að skoða myndir af ykkur. Vonandi fæ ég að hitta ykkur í lok feb.
kveðja frá Danmörku
Hæ elsku dúllurnar mínar!! Takk fyrir heimsóknina æðislegt að fá ykkur er búin að hugsa til ykkar í allan dag.
Kv,
Hele frænka
Gleðilegt árið! Var aðeins að kíkja á ykkur krúttin öll fjögur ;D!