Snævar og Auður Helga Valdimarsbörn Steffensen
Snævar og Auður Helga Valdimarsbörn Steffensen
 
 
 

Gestabók

Hildur Hallvarðsdóttir

Alltaf gaman að skoða myndir af ykkur,vantar bara myndir af þér Guðrún mín,langar að sjá bumbumyndir:-)
Ég hitti mömmu þína og pabba og frétti af heimkomu þinni í sumar....hlakka til að sjá ykkur,sláum til grillveislu:-)

Skrifağ şann 2. May 2008 12:24.

Eiríkur Stefánsson

Takk fyrir síðast frændi, það var gaman að hitta þig.

Skrifağ şann 29. April 2008 15:47.

Jógó

Velkomin til baka :), hlakka til að sjá nýjar myndir af Snævari og bumbunni :) og auðvitað foreldrunum!
Knús frá Gautaborginni

Skrifağ şann 17. April 2008 18:11.

Birna bjé & co

Þó að allir fagni ykkur á Íslandi þá fögnum við ykkur í Álaborg. Gott að fá ykkur aftur í bæinn.
Náum vonandi að hittast fljótlega, látið ykkur batna af kvefinu ;)

Skrifağ şann 17. April 2008 16:25.

Sigga

Elskurnar, mikið var yndislegt að hitta ykkur og að hafa ykkur hér heima. Ég var líka svo glöð að þið komust í ferminguna hans Harðar. Knús og kossar, ykkar Sigga

Skrifağ şann 17. April 2008 12:11.

Dandý

ætlaði að fá passann til að skoða drenginn. :o)

Skrifağ şann 20. March 2008 13:32.

Dandy

Skrifağ şann 20. March 2008 13:31.

Anna Sóley

Vildi bara kvitta fyrir innlitið þú ert aldeilis orðinn stór og duglegur strákur og innilega til hamingju öll með bumbutrítluna:) Snævar Gils er alveg sammála þér að skúffur,matardallar ofl er miklu meira spennandi og skemmtilegra heldur en dótið sitt. Væri nú aldeilis gaman að hafa mafíuhitting þegar þið verðið hér heima á klakanum.
Bestu kveðjur Anna Sóley og co.

Skrifağ şann 9. March 2008 09:53.

Hrefna

Hæ :) Og takk fyrir síðast.
Yndisleg helgi sem við áttum hjá ykkur, erum mjög ánægð að hafa drifið okkur.
Snævar alger gullmoli, heillaði okkur upp úr skónum með persónutöfrum sem hann hefur erft frá foreldrum sínum.
Hlökkum til að sjá ykkur vonandi um páskana, Hrefna.

Skrifağ şann 5. March 2008 17:12.

Erla og Ingibjörg Lilja

Hæ Guðrún mín og takk fyrir kvittið :) hef ekki skoðað lengi hjá ykkur. Til hamingju með óléttuna.. en gaman :) Snævar orðinn svo stór og sætur, örugglega algjör prakkari. Hafið það gott og gangi þér vel. Bestu kveðjur frá okkur mæðgum

Skrifağ şann 5. March 2008 12:58.

Þóra Björk og Kolbeinn Óli

Hæ elsku vinir!!
Langt síðan ég kíkti á síðuna ykkar. Hann Snævar verður ekki minna sætur með tímanum, haha. Og svo litla SNÚLLAN í bumbunni, júhú!!
Kossar og knús Þ & K

Skrifağ şann 5. March 2008 10:46.

Sif frænka

Elsku Snævar. Þar sem þetta er þín gestabók langar mig að segja þér hvað mér finnst gaman að sjá þig stækka og þroskast. Svo ertu alltaf svo fyndinn á myndunum þ.a. ég kemst alltaf í gott skap við að sjá þær (í þau fáu skipti sem ég er ekki í góðu skapi fyrir!) Hlakka alltaf til að sjá nýjar myndir, vertu góður og skemmtilegur við mömmu og pabba. Sjáumst fyrr en varir.

Skrifağ şann 28. February 2008 01:51.

Sigga

Þetta er skemmtilegar myndir allar saman og Guðrún, þú ert svo sæt svona á þig komin. Ég sé ekki annað en að þú sért fædd í hlutverkið. Knús frá Siggu og Co

Skrifağ şann 22. February 2008 13:52.

Hrefna

Alltaf jafn gaman að fylgjast með ykkur og nú þorir maður ekki öðru en að kvitta fyrir sig :)
Flott ertu Guðrún , blómstar með prinsessu kúlu og myndir að litla lukkutröllinu gleðja mikið.
Nú förum við að banka uppá hjá ykkur á næstu vikum, hlakka mikið til :)
Kossar og knús, Brúnastaðagengið .

Skrifağ şann 21. February 2008 21:39.

Jógó

Þú lítur rosa vel út Guðrún :):), og náttúrulega prinsinn líka :). Væri gaman ef þið skelltuð ykkur í heimsókn yfir sundið þegar við erum flutt í nýja húsið (ef þú verður ekki orðin of þung á þér...)
Knús Frá Gautaborg

Skrifağ şann 21. February 2008 10:34.

Rut Þórarinsdóttir

Hæ hæ
Sætar bumbumyndir Guðrún !! Æðislega þar sem Snævar er að hlusta á bumbuna.
Rut

Skrifağ şann 20. February 2008 11:54.

Sigrún, Gunnhildur og Bryndís

Æðislegar myndir!! :-)

Allt gott að frétta héðan fyrir utan hor og kvef dætranna.
Farið að tísta í mér af tilhlökkun að komast á skíði!! Er búin að vera að gera skíðaæfingar á stofugólfinu ......bara svona til að rifja upp hinn undurfagra Kellingarfjallastíl! :-)

Ástarknúskveðja frá stelpunum á Bif.

Skrifağ şann 20. February 2008 10:05.

Tinna

Halló! Ég sé að hér eru miklar umræður um kvitt svo ég kvitta hér með fyrir mig ;-) Ég er alltaf óttalega feimin svona á netinu og ekki dugleg að láta vita af mér. Ég kíki hérna inn einstaka sinnum og sé að allir dafna vel, mjög vel meira að segja...Til hamingju með bumbuna!! :-) Þið eruð ótrúlega falleg fjölskylda á allan hátt og ég óska ykkur alls hins besta!
kær kveðja,
Tinna (deCode)

Skrifağ şann 18. February 2008 00:02.

Bára frænka

Hæ Guðrún og Snævar sæti frændi. Til hamingju með bumbutrítluna Guðrún mín. Það eru spennandi tímar framundan hjá litlu fjölskyldunni! Hafið það gott í Danaveldi.
Kveðja frá Tómasarhaganum

Skrifağ şann 14. February 2008 16:30.

harpa og elisa

hæ kæra fjölskylda.Skemmtilegar myndir að venju.Elísu finnst þetta svo gaman að það heyrist varla andardráttur á meðan. Enda Snævar sæti mikill vinur. Við sjáumst næst á Islandi kæru vinir.Risaknúsogklemm frá Odense.

Skrifağ şann 9. February 2008 09:32.

Rut Þórarinsdóttir

Hæ hæ
Ég tek á mig sök, ég kíkti þegar ég sá að á msninu stóð 20 vikna sónar væri að baki. Gleymdi að kvitta !!! EN!!!!!!!! Til hamingju með stelpuna :) Æðislegt að fá bæði kynin svona bara nætum því í einum pakka. eða næstum því
tíhíhíhí!

Skrifağ şann 8. February 2008 17:04.

Guðrún Ragna

En gaman að heyra að það sé stelpa á leiðinni :)
Verður án efa megakrútt eins og bróðir hennar!

Vona að þið hafið það sem best.
Kveðja,Guðrún Ragna

P.s. ég kíki á siðuna flesta daga...af algjörum "heimasíðu rúntvana" til að athuga hvort það sé eitthvað nýtt. Svo þið getið talið mig sem 1 á hverjum degi :)
Kvitta svo þegar ég sé nýjar fréttir eða myndir ;)

Skrifağ şann 7. February 2008 12:16.

Steinþór

vááá yndislegt að fá þessar fréttir af vísitölufjölskyldunni. Hrikalega spennt að sjá stelpuútgáfuna frá ykkur;-)
Steinþór varð einmitt mjög spenntur þegar ég sagði honum að þetta væri stúlka;-) Að eignast stúlku núna er örugglega svona tilfinning eins og eignast fyrsta barn, að halda að maður kunni ekki neitt en þú manst hvernig það var svo þegar Snævar kom bara eins og þú hafir aldrei gert annað.
þúsundogtrilljón hamingjuóskir
Gyða og Steinþór

Skrifağ şann 7. February 2008 10:17.

Guðrún mamma Snævars......aftur :)

Jú, rétt skal vera rétt......elsku Hanna Líba kvittaði fyrir sig. Enda kostakona þar á ferð :)

Skrifağ şann 7. February 2008 09:23.

Guðrún mamma Snævars

Í gær skoðuðu 25 manns síðuna - næstum því met frá því Snævar fæddist. En ENGINN kvittaði! Gasaleg spæling hér á bæ og þeir sem vita uppá sig "sökina" vinsamlega taki sig á! OG HANA NÚ!!!

Skrifağ şann 7. February 2008 09:20.

Sif frænka

Var að kíkja á nýjustu myndirnar, maður bíður alltaf spenntur eftir nýjum myndum. Alltaf jafn gaman, frábært að sjá hvað Snævar stækkar og mannast, vildi bara að maður væri nær. Elsku Valdimar, til hamingju með daginn og glaðan haginn!!! Og duglega litla systir, gangi þér vel með allt.
Ykkar Sif.

Skrifağ şann 6. February 2008 00:45.

Berglind "kór"

Hæ hæ :) Til hamingju með 1 árs afmælið hjá kappanum og til hamingju með bumbubúann ;)

Kveðja frá þarnæstu götu.

Skrifağ şann 5. February 2008 20:59.

Sif guðfrænka

Elsku Snævar.
Ég vona að þú hafir það virkilega gott og að þú sért góður, þægur og skemmtilegur drengur (af myndunum að dæma ertu það!)
Bið innilega að heilsa foreldrunum, kysstu pabba þinn frá okkur á afmælisdaginn!!!
Hinir jólasveinarnir biðja að heilsa
Knús, Sif

Skrifağ şann 30. January 2008 22:40.

Steinþór

Verð að viðurkenna að ég hef oft skoðað heimsíðuna án þess að skrifa í gestabókina og hef mikið gaman af, því káti Snævar er mikill gleðipinni. Sá það bara núna nýlega að það er skemmtilegt að fá nokkrar línur í gestabókina frá þeim sem fá að njóta þess að fylgjast með. Steinþór fékk fyrstu tönnina 15. janúar og ætlar að reyna að fá næstu tönn 5. febrúar;-) Stuðkveðjur Steinþór og mamman.

Skrifağ şann 22. January 2008 12:46.

Helga Antons

Til hamingju með daginn drengur og til hamingju með bumbukrílið :)

Skrifağ şann 18. January 2008 09:39.

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17