

Takk fyrir kaffið Snævar og gott spjall. Sjáumst aftur hressir.
p.s. Pönnukakan var líka fín.
var að skoða myndir og vildi bara senda kveðjur :) þið eigið æðislega fallegan strák !
Takk fyrir samveruna í dag. Hlökkum ekkert smá til að heyra nafnið á prinsinum. Efumst ekki um að það verður eitthvað sem sæmir honum vel. Gangi ykkur vel á laugardaginn og sjáumst hress á þriðjudaginn í næsta göngutúr.
Kveðja úr Garðabænum
Hann er voðalegt krútt strákurinn ykkar og dafnar greinilega vel. Vona að heilsan á mömmunni sé að koma til - ótrúlegt hvað þú hefur þurft að ganga í gegnum upp á síðkastið. Sjáumst nú samt vonandi í labbitúr fljótlega.
kv. Freyja og Heimir Andri 5 vikna+
Hæ litla fjölskylda. Púff það á ekki af ykkur að ganga! Vona að þetta fari nú allt upp á við úr þessu. Hafið það sem allra best
og knús til litla mannsins.
Kv
Dagmar
Halló dúllurnar okkar:O) Innilega til hamingju með sæta sæta strákinn, hann er æðislegur:O) Farið nú að kíkja til okkar í heimsókn svo að við getum fengið að knúsa hann aðeins:O)
Ja hérna! Þvílíkt og annað eins sem lagt er á eina fjölskyldu! Það þýðir víst ekkert annað en að taka Pollýönnu á þetta þegar ástandið er svona! Vona að þið hressist sem fyrst.
Kveðja
Selma og litli kútur
Úff... það hefur aldeilis mikið gengið á hjá ykkur undanfarið. Vonandi gengur vel að vera á mjólkulausu fæði og þið jafnið ykkur bæði tvö fljótlega. Gaman að lesa hvað pabbinn er duglegur, þú ert greinilega mjög heppin með strákana þína Guðrún :) Knús til ykkar.
Sjittur, þvílík lesning!
Vona innilega að þið séuð búin með veikindin út þetta árið a.m.k.
Kv. Hjalti
...mig skortir orð!!
Taugasyndrome, botnlangi, mjólkuróþol.....úff!!
Munið bara elsku vinir...allt sem ekki drepur ykkur.....gerir ykkur STERKARI!!!
Ástar- og baráttukveðjur, Sigrún í sveitinni
Til hamingju með lilla mús, algjört krútt ; )
hæ hæ.. Innilega til hamingju með litla kútinn.. hann er ossa ossa myndarlegur :)
Hafið það sem allra best litla sæta fjölskylda
knúsíknús
Til hamingju með strákinn og njótið vel - myndarstrákur, ekki við öðru að búast. Óskum ykkur velfarnaðar og drengnum alls hins besta um ókomna tíð.
Hann er nú bara sætastur. Hjartanlega til hamingju með prinsinn. koss og knús frá Bankastræti
Algjört sjarma-gull drengurinn ykkar. Gaman að skoða svona fínar myndir af svona myndarlegum strák.
oh sætar myndir.takk f. siðast. hlakka til að sjá ykkur um páskana.kv.harpa
Elsku litla fallega fjölskylda.
Þið eruð svo yndisleg.
Ykkar Sigga og fjsk.
What a beautiful boy!. We thank you for the love you gave our children and are very happy you now have one of your very own.
Love Dave and Debbie
Til hamingju með litla frænda! Hann sver sig í ættina ;-)
Kveðja, Katý og Svavar afabróðir
Hæ hæ:)
Loksins gef ég mér smá tíma til að skoða prinsinn ykkar,þvílík bjútíbolla.
Innilegar hamingjuóskir.
Kv Svava og tvibbarnir Sara Ósk og Sindri Snær
Æðislegar myndir kæru vinir... lillinn er algert augnkonfegt:-) Komum aftur í heimsókn eftir Danmerkur ferðina...
Skilaboð frá Garpi: voffff voff vofff vofffff (til hamingju með afmælið elsku Mikki minn)
Æðislegar nýju myndirnar af þér :) :) loksins, loksins. Kíki á hverjum degi og hlakka svo til að sjá þig loksins í næstu viku. Við landópæjur stefnum á að kíkja bara sem fyrst í næstu viku :) látum vita hvaða dag þegar það er komið á hreint.
Knús og kossar,
Björg
Jeremías minn hvað þú ert sætur! Það liggur við að það klingi á bænum og þarf sko MIKIÐ til þessa daganna ;) Æðislegar myndirnar af þér, manni langar bara að fá að kyssa þig og knúsa! Langflottasti strákurinn.
Kossar og knús frá okkur
Sigrún Dóra og gormaormarnir
Kæra fjölskylda.
Varð að kvitta fyrir mig, er alltaf að kíkja, bíða eftir nýjum myndum. Hlakka til að hitta ykkur. Kíki fljótlega. Barnið er algjör moli, þvílíkur prins.
Innilega til hamingju elsku Valdi og Guðrún,
Hann er ótrúlega myndalegur eins og pabbi sinn drengurinn!
Hlakka til að sjá krúttið in person en flottur er hann á mynd það er alveg á tæru :)
Þúsund kossar,
Dögg og co
Hæ hói innilega til hamingju með þennan stórglæsilega strák rosa flottur :) ekki við öðru að búast frá svona flottum foreldrum.
það báðu allir rosa vel að heilsa frá ISPO og skila hamingjuóskum til ykkar.
kv Auður
Elsku Guðrún og Valdimar
Til hamingju með drenginn. Hann er yndislegur, enda á hann frábæra foreldra. Nú bara verðum við að koma og fá að bera prinsinn augum. Enn og aftur til hamingju.
Sigrún og Atli
Kæru Valdi og Guðrún,
Ég er ennþá að komast yfir fréttirnar, en ég vissi ekki fyrr en í dg að prinsinn væri til! hafði ekki einusinni hugmynd um óléttuna! Þetta sýnir hva langt er síðan við hittumst!
Gullfallegur drengur og ég hlakka mikið til að fá að fylgjast með honum vaxa og dafna.
kærar kveðjur
Beta Stefánsmóðir
Til hamingju með ammmælið í gær Valdimar minn!
Þurfti bara að skoða myndirnar einu sinni enn......andvarp......ahhhhhh.....jújú....hann er enn sætur! (vantar reyndar nýjar myndir! Update people....update... ;-)
Þetta eru yndislegir tímar! Njótið þeirra í botn!