

Jæja kelling,
á ekkert að koma í vinnuna og sýna mér strákinn ?
þú verður að láta mig vita ef þú kíkir einhverntímann, langar svo að fara sjá hann í eigin persónu :-)
kv. Laufey
bara kvitta fyrir komu okkar, kíkjum reglulega á litla prinsinn.
alltaf jafn sætur :)
svo verðuru að koma með hann aftur í heimsókn þegar við erum við :D spenntar að sjá !!
Hæ skemmtilegu foreldrar!!
Hann Snævar er svooooo mikið krútt
Hlakka til að sjá ykkur sem fyrst
tóta og tinni
Elskurnar... nú þarf ég að fara hitta ykkur.. ég kvitta nú ekki alltaf enda skoða ég síðuna oft á dag :)
En kvittitikvitt sagði konan :)
Er víst kominn tími til að kvitta fyrir innlitið. Hlakkar til að sjá prinsinn loksins, fer að styttast ;) Þurfum að koma á nýjum vefmyndatíma :)
Knúskveðjur frá Álaborg
Jedúddamía, getur maður orðið mikið fallegri :)
Kveðja af Strandveginum.
Takk fyrir göngutúrinn í gær :) Alltaf jafn gaman að fara með ykkur út að labba. Hlökkum til að hitta ykkur í næstu viku
kv
Elva og Þórey Lilja
Kæru Valdi og Guðrún,
Til hamingju!
Glæsilegt nafn sem þið gáfuð fallega drengnum ykkar.
kveðjur frá fjölskyldunni í Drekavogi
Elsku fallegi Snævar minn. Þetta eru flottar myndir af þér allar sem ein :) Vonandi fer ég nú að verða nógu hress til að heimsækja þig.. bið að heilsa mömmu, pabba og Mikka.
Þúsund kossar frá mér og Perlu Prinsessu.
Hæ hæ Snævar og takk fyrir síðast. Svaka flottar myndir af flottum strák.Sjáumst vonandi í göngutúr á morgun.
Kv Anna Sóley og co.
Sæll litli frændi!
Þú ert nú meira krúttið,það væri nú gaman að fá að sjá myndir af þér....mamma þín má endilega senda mér voffanafnið á hildur@hreyfing.is
Hlakka svo til að sjá ykkur aftur í næsta hittingi okkar frændfólksins í sumar.
Kv: Hildur frænka
mikið var gaman að sjá ykkur í krílahittingnum. Þú ert algjört bangsakrútt :)
Takk fyrir samveruna í gær :) Gaman að hittast svona og sjá krílin loksins :)
Með suðusúkkulaði- og soyjamjólkurkveðju ;)
Selma og Róbert
hæ, hæ og takk fyrir gærdaginn :) Gaman að sjá framan í Snævar loksins... Hlökkum svo til næsta hittings
Hæhæ takk fyrir síðast. við vorum bara að taka síðurúnt, vorum að skoða myndir og lesa dagbókina :)
Vildum kvitta fyrir okkur
Kv Sibba og Ósk
Takk fyrir samveruna í gær, svakalega á eftir að vera gaman hjá okkur þegar við getum farið að tæta og trylla. Við erum flottust ;)
Kveðja af Strandveginum
Til hamingju með 2 mánaða afmælið.. og takk fyrir daginn .. geggjað að hittast svona .. knús Hrönn og Kristjana Rögn
Innilega til hamingju! (Ekki laust við að maður hafi slefað svoldið yfir lyklaborðið yfir myndum af kræsingunum.) Kveðja úr Vesturbænum - Bjarki, Ósk og Músi
Innilega til hamingju með fína nafnið. Alltaf gaman að skoða myndir af þér, en við verðum nú að fara að hittast.
Innilega til hamingju með fallega nafnið þitt, lúxus að sofa bara af sér skírnina hehe. Sjáumst vonandi fljótt
Kv. Anna Sóley og litli Gils
Til hamingju með nafnið litli maður.
Mjög fallegt!
Innilega til hamingju með nafnið á prinsinn. En voðalega ertu dugleg Guðrún að hafa haldið svona á honum undir skírn... ég hefði örugglega farið að háskæla ef ég hefði haldið á mínum... :)
Innilega til hamingju Nafnið ekkert smá flott :)
Fórum myndarúnt og kvittum fyrir okkur. Alltaf gaman að fylgjast með.
úpps ætlaði ekki að ýta á enter... anywhoo...
Innilega til hamingju með ótrúlega fallegt nafn!
innilega til hamingju með nafnið á snáðanum.. knús Hrönn og co
Halló Guðrún og fjölskylda - Frétti hjá Arnari og Auði að þessi glæsti piltur hefði bæst við karllegg ættarinnar - Við Auður erum búnar að vera að skoða hann öðru hvoru þegar við eigum leið um barnalandið. Og nú getum við óskað til hamingju með nafnið sem er fer honum mjög vel, þessum fríða pilti sem á ekki langt að sækja bjútí-ið. Gangi ykkur allt í haginn, dúllurnar. Kveðjur úr Kögurseli 22
Til hamingju með fallega nafnið þitt.
Til hamingju með fallega nafnið þitt Snævar :)
Ofsalega passar það vel tilvonandi útivistarstrák!
Knús og kossar til þín og mömmu og pabba.