Daglegt líf í Kvíaholti
 

Vefdagbók

 

Komið þið blessuð og sæl!

Langt síðan við höfum skrifað á síðuna, en nú er komið að átaki eins og vanalega gerist um þetta leyti. Við ætlum þó ekki í kjólinn fyrir jólin heldur ætlum við að sinna fjölskyldu og vinum... með því að halda úti bloggsíðunni!

Lífið gengur sinn vanagang í Kvíaholti. Strákarnir eru orðnir stórir og verða duglegri með hverjum deginum sem líður. Jóhannes hugsar vel um litla bróður, sem lítur upp til stóra bróður.. Svona eins og það er vanalega. Þeir leika vel saman án þess þó að annar aðilinn komist upp með of mikið. Þá er gargað...

Eyjólfur er að hamast við að forma orð, skilst lítið sem hann segir en hann hefur gaman af að tjá sig. Hann byrjar á leikskólanum núna í lok mánaðarins.

Jóhannes er að teikna Óla prik þessa dagana og stafina hjá flestum í fjölskyldunni. Mjög sáttur á leikskólanum.

Við hjónin reynum með herkjum að halda utan um fjölskyldulífið, setja í þvottavélar og halda uppi máltíðum ásamt háskólanámi og fullum vinnudögum..

Ég ætla að reyna að smella einhverjum myndum inn. Sjáum hvernig það gengur, tæknin er eitthvað að stríða okkur..

Kv. Anna.

8. nóvember 2009 - 21:00

Jeddúddamía!

Mikið asskoti er langt siðan ég hef farið hingað inn. Ég vona að þið hafið ekki gefið upp alla von og séuð hérna enn...

Í Kvíaholti gengur allt vel, við erum að dunda alla daga bæði í vinnu og húsi og vitaskuld er aldrei lognmolla með tvo yndislega stráka  á heimilinu. Jóhannes Þór er orðinn svo stór og skemmtilegur, nú syngur hann vísur, segist ætla að renna sér niður Hafnarfjallið, bullar og leikur sér okkur öllum til gleði.

Eyjólfur er orðinn sprækur, og meira að segja svolítið pattaralegur. Hann er sem sagt með óþol fyrir kúamjólkurpróteini sem finnst í brjóstamjólkinni í gegnum þá mjólk/mjólkurvörur sem ég innbyrði, og þetta prótín er líka í SMA þurmjólkinni. Þannig að þessi hringavitleysa með að drengurinn var hættur að þyngjast er lokið! Nú er hann eingöngu á sinni formeltu illa lyktandi þurrmjólk og er barasta hinn kátasti með þetta alltsaman.

Jóhannes fékk nýtt "gamalt rúm". Hann kallar það gamla rúmið sitt. Þetta er sem sagt gamla rúmið hans Óla frænda sem komið er nýmálað inn í herbergi hjá stóra strák.

Námskeiðin mín eru í fullum gangi núna, alltaf nóg að gera. Hjörleifur fór í nótt til Edinborgar og verður í 11 daga. Ég ætla að reyna að halda úti smá fjölskyldudagbók hérna daglega til að hann geti kíkt og séð hvað við erum að bralla. En svo lofa ég nú ekki daglegri dagbók eftir að hann kemur heim... tja...

 Bestu kveðjur af Kvíunum, njótið myndanna, 4 ný albúm komin inn.

 Anna.

23. október 2008 - 14:24

Mega magn af myndum!

 Jæja, myndamálin komin á hreint.

Get reyndar bara gert eitt í einu þannig að ég læt hér við sitja í dag og reyni að setja inn smá texta og fréttir á morgun.

3 ný albúm komin inn. Það er greinilegt að fartölvan er komin úr viðgerð og loksins loksins hægt að hlaða inn á flakkarann og setja inn myndir á síðuna.

1 albúm frá vorferð leikskólans á Bjarteyjarsand í Hvalfirði, 1 albúm frá vorinu hérna hjá okkur í Kvíaholti, og svo 1 albúm sem heitir 1.júlí og segir stöðuna eins og hún er í dag hjá okkur.

mmmmkey.

A.

1. júlí 2008 - 14:32

Kraftaverkin gerast enn...

... ég setti inn myndir! Víhí!

Tók reyndar svo mikinn tíma í það þannig að ég er orðin þreytt og þarf að fara að leggjast niður. Eyjólfur Ágúst búinn að sofa síðan á hádegi og fer ábyggilega að syngja sönginn fyrir mig varðandi þarfir og þrár svona lítils fuglsunga.

Set inn fleiri myndir og traditional fæðingarsögu sem er reyndar meira svona keisarasaga... enda bara kóngafólk og keisarar í þessum blóðflokki hér í Kvíaholti - þetta kemur allt með kalda vatninu.

Farin að lúra.

 A.

29. júní 2008 - 18:52

Eyjólfur Ágúst

Fæddur er góður og gegn Mýramaður að nafni Eyjólfur Ágúst.

Þáttakendum heilsast vel og drengurinn dafnar og braggast hratt og örugglega.

Örlítla sýn á piltinn er að finna á myndasíðunni og verður að sjálfsögðu bætt rækilega við hið fyrsta.

 

HHS

27. júní 2008 - 17:59

Ennþá sprell alive!

Já já, maður er náttúrulega bara að reyna að bjarga heiminum áður en barnið fæðist. Það er ótrúlegt hvað manni finnst eins og EKKERT megi bíða þangað til eftir sængurlegu... EKKERT! Svona eru þessir hormónar, geta gert út af við mann á endanum.

 Nei nei, svo er þetta náttúrulega búið að vera hálfgerð klikkun að reyna að koma öllu heim og saman. Astmaköstum, flensu, vinnu og brjóstsykursgerð! En núna er 17.júní liðinn amen fyrir því og get ég nú einbeitt mér að listanum sem á að vera allur útstrikaður fyrir barn.

Annars fór ég í skoðun í gær til ljósu, á að mæta á mánudaginn í sónar til villta Villa. Ljósmóðirin vill að við hreyfum við belngum á fimmtudaginn í næstu viku, jafnvel að prufa nálastungur í tærnar og ýmislegt óhefðbundið til að koma þessu af stað á sem eðlilegastan hátt. Barnið er komið vel ofan í grind, hausinn niður og fæturnir að reyna að koma sér vel fyrir á milli rifbeinana á mér. Komin 38 v. 2 daga í dag. En allt gengur eins og í sögu, á erfitt með að klæða mig í sokka, hlaupa á eftir litlum prakkara og bera inn úr bílnum, en Hjörleifur er hetjan mín og gerir allt sem ég bið hann um. Jóhannes er líka orðinn svooo duglegur að gera sjálfur ótrúlegustu hluti, klifrar upp á allt til að komast nær mömmu sinni.

Hann klappar á bumbuna og tilkynnir mér með góðum handahreyfingum að litla barnið komi út og sofi í vöggunni, og fari svolítið að gráta og við ætlum öll að vera svo góð við litla strákinn því hann er líka með tippi eins og Jóhannes sem er strákur en ekki mamma... Eitthvað hefur upplýsingaöflunin farið í rugl hjá honum en í meginatriðum er þetta nú nokkuð rétt.

Jæja, best að hætta í bókunum og reikningum og fara og sækja stóra strák á leikskólann, hvað á maður svo að sótthreinsa í dag, búrið? Þvottahúsið? Bílinn? Guð... ég á eftir að sækja barnabílstólinn upp á loft og þvo af honum áklæðið.... GERI ÞAÐ NÚNA!

 Anna....spinnigal!

 p.s. myndir eru bara fyrir konur og kynvillinga....

 

20. júní 2008 - 11:29

Ekki dauð enn...

Þó þið haldið örugglega að við höfum algjörlega gefið upp öndina og séum ábyggilega flutt af landi brott af því það heyrist ekki frá okkur... þá er það ekki raunin.

 Svona virðist þetta bara alltaf enda í vorverkunum, svipað eins og á haustin, hver hefur tíma til að blogga? úff.. hvað ætli hafi á daga okkar drifið síðan í byrjun apríl? Við erum nú bara búin að vera róleg heima, Jóhannes Þór er búinn að vera of oft og leiðinlega lasinn, fékk í hálsinn, kvef, í eyrun, pencillin, greindur með astma, sterapúst... allt búið að ganga frekar leiðinlega á þeim göngustígnum. En við eigum pantaðan tíma hjá sérfræðingi í júní og þá kannski sér hún eitthvað sem við sjáum ekki. Hann er líka búinn að vera að taka jaxla, sem koma eins og 2 nýir útlimir út úr kjálkanum á honum með tilheyrandi sársauka og óþægindum!

Jóðið dafnar vel og stækkar meira en gott þykir. Eða allavegna er orðið lítið pláss eftir og iðulega verið að athuga hvað þindin og lungun og rifbeinin í mömmu litlu þola miklar barsmíðar. Fylgjan er búin að færast ofar og barnið lá í höfuðstöðu í síðasta sónar. Ég fékk grænt ljós á að reiðast, fara í bónus, hoppa yfir skurði og gera nokkurnveginn það sem mig langar til að gera! Helst að reyna fæðingu ef ég er góð þegar að henni kemur. Það voru fréttirnar í apríl, en skjótt skipast veður í lofti og ég fór til ljósmóðurinnar aftur í gær og þá er BLESSAÐ barnið búið að snúa sér og er núna sitjandi algjörlega í klemmu með tærnar upp í nefinu sínu. Þetta fer náttúrulega bara að verða einn lengsti brandari sögunnar þessi BLESSAÐA meðganga. Þannig að ég var skráð í enn einn sónarinn eftir 10 daga og þá ættum við að geta fengið einhvern botn í málið varðandi þetta allt saman. Áður fyrirsæt nú framanverð fylgja og fyrri keisari útilokar vendingu segir hún, þannig að þetta er allt í höndum fæðingarlæknisins sem á nú að vera hress og brúnn eftir frí á Benedorm... mig langar til Benedorm...

Jæja, hvernig líst svo öllum á Eurovision í ár? Ríkey...hefur þú eitthvað um Euro að segja?

 Kveðja,

Anna Dröfn @ Ensku húsin.

 

16. maí 2008 - 14:03

4.apríl. 2008.

Skemmtilegt að segja frá því að í dag eru 12 ár síðan ég fermdist.. mig minnir að við höfum fest bílinn í skafli á leið heim úr kirkjunni og það hafi einungis komist 20 manns í veisluna. Þar með talið foreldrar mínir og systkini. Margir reyndu að leggja af stað en þurftu að snúa við vegna snjóstorms á alla kanta. Bæði fyrir sunnan og vestan. Ég fékk fáar en góðar gjafir (fermingarútvarpið er nota bene enn í notkun sem og bjútíboxið sem var svooo flott þegar ég fékk það). Ég fór svo með matinn (sem var NÓG til af) upp í sveit til afa míns og gaf honum gott að borða. Þetta var mjög góður dagur. Ég man að mér þótti svo vænt um að amma mín í sveitinni fékk far með sjómanni sem þurfti nauðsynlega að fara til Reykjavíkur. Báturinn beið. Eftir 7 tíma ferðalag um Hvalfjörðinn þá bankaði amma upp á í Furubyggðinni og óskaði mér til hamingju með daginn. Held það hafi verið besta gjöfin.

Annars er allt gott að frétta héðan af Kvíunum. Allt aktivitet í lágmarki en hormónar í hámarki. Ég þeyti nú ekki innanstokksmunum eins og sumar óléttar konur gera, en get tárast yfir ótrúlegustu hlutum og tekið svo hláturskast með gaurunum mínum 10 mínútum síðar. Þetta er nú meira fyrirbærið svona meðganga. Við fórum í skoðun til ljósmóðurinnar í síðustu viku, allt gott og venjulegt og áttum bara að halda þessu áfram. Eitthvað leiðindabasl á fæðingarorlofssjóði. Þeir neituðu mér um lenginuna á fæðingarorlofinu. Vegna þess að ég var sjálfstæður atvinnurekandi sem dagmamma. Ég komst að því að sjálfstæðir atvinnurekendur með samt lág laun rekast á allar lokuðu hurðirnar í kerfinu. Næst fer ég að vinna á kassanum í bónus eða eitthvað og þá er ég þó launþegi sem hefur einhvern rétt eða eitthvað á bak við sig ef eitthvað kemur uppá.

Svo fórum við í þrívíddarsónar í fyrradag ég og mamma. Það var rosalega skemmtilegt. Gaman er að segja frá því að fyrsta albúmið sem sett var inn á þessa síðu fyrir næstum 2 árum síðan var einmitt af þrívíddarsónarnum hjá Jóhannesi. Þá var ég reyndar gengin styttra þannig að mér finnst þessar myndir núna sýna meiri fitu og forða hjá krakkanum. Mette og Mie komu og voru hjá okkur í Dymbilvikunni. Það var voðalega skemmtilegt að fá þær, ferðast aðeins með þeim og sýna þeim allt sem mér þætti vænt um og mikilvægast bæði hér og í nágrenninu. Skemmtilegt að sjá enn og aftur muninn á dönskum og íslenskum hugsunarhætti. Ég vona að þær hafi skemmt sér vel hérna.

Nú er ég á fullu að sauma í nýju vinnustofunni minni. Ohh það er svo gaman að fara inn í bjart og fallegt herbergi og vinna svolítið, setja hljóðsnældurnar með Híbýli vindanna e. Böðvar Guðmundsson í tækið og bara kúpla sig inn í smá saumisaumi.. Dundidundi.. Og svo, þegar maður þarf að fara að sinna barni, húsi eða sjálfum sér þá bara getur maður látið allt liggja og það þarf ekkert að færa til eða taka til fyrir annað fólk. Bara Önnu herbergi. Yndislegt.

Ég sett inn 3 albúm. Mars albúm með myndum af Mette og Mie. Annað mars albúm sem tekið er bæði eftir og áður en þær komu. Og svo þrívíddarsónarinn vitaskuld.

Anna.

4. apríl 2008 - 15:11

8.mars 2008

Jæja, kominn tími á fréttir.

Jóhannes Þór er aðalgaurinn og gormurinn. Hann apar allt eftir manni og segir ýmis orð eins og páfagaukur. Þylur upp örnefni og tungubrjóta eins og alvöru sveitastrákur. Í liðinni viku þá sat ég inni í stofu og var að vinna í tölvunni. Ég heyri í honum inni í eldhúsi að skarka í stólum og færa til litla kollinn sinn. Ég heyri eftir smástund að hann er að segja ahhh... (sem þýðir vanalega að hann sé að drekka eitthvað gott). Ég kíki út um gluggann í stofunni og þar af leiðandi inn um eldhúsgluggann og sé að hann hefur fundið Bubba byggis bollann sinn. Bollinn hafði síðast verið notaður í að geyma leifar af bökuðum baunum sem pabbi hans hafði svo fengið sér í hádeginu. Þegar hann var búinn að drekka seinustu baunina úr bollanum, þá tók hann kollinn sinn, færði hann upp að hinu borðinu, setti bollann undir stútinn á kaffivélinni, fór upp á kollinn og ýtti á takkann...

Ég fékk náttúrulega hjartaáfall, hljóp inn í eldhús áður en að drengurinn fengi kaffið yfir sig. En minn maður stóð bara sperrtur og skælbrosandi við kaffivélina og beið eftir að fá kaffið í Bubba byggis bollann. Sagði bara "aaahhhh" þegar ég svitnaði þarna við hliðina á honum. Hann ætlaði bara að fá sér kaffi eins og allir hinir sem koma í heimsókn!

Hann er náttúrulega ljósið í lífinu og algjör gleðigjafi þessi drengur.

Fórum í skoðun til ljósmóður síðastliðinn fimmtudag. Sama staðan eins og vanalega í gangi hér. Búið að halda læknafund á heilsugæslustöðinni þannig að ef eitthvað gerist eða fer af stað þá vita allir læknarnir sem gætu lent í því að sækja mig á sjúkrabílnum mína sögu og hvað á að gera. En þetta er náttúrulega bara til vonar og vara, alltaf betra að hafa vaðið fyrir neðan sig. Bannlistinn er ennþá langur, lengist bara ef eitthvað er. Fer aftur í sónar í viku 28, er í miðri viku 24 núna. Þyngist vel, alveg jafn þung og ég var með Jóhannes á sama tíma meðgöngunnar. Er vonandi að búa til annað stórt og flott barn sem höndlar vel að koma svolítið fyrir tímann.

Þetta verður allt gott.

A.

8. mars 2008 - 14:20

Meðgangan.

Bjó til nýja undirsíðu hérna til vinstri á skjánum. Síðan sýnir fósturþroskann sem er í gangi hverju sinni. Eða svona viðmiðun...

 Leiðist mér?

 A.

1. mars 2008 - 12:38