

Æðislegar myndir :) Kristófer Dagur er algjör sjarmör og flottur í útifatadressinu ;) Knús á ykkur öll :*
þið eruð flott. Mig hlakkar til að hitta ykkur. Hvenær byrjaði kristófer að labba? kveðja koss og knús frá þorgils.
jæja þá komu myndir, flottar eins og alltaf,kveðja amma og afi
Er ekkert búin að vera að standa mig í að fylgjast með hérna á síðunni! Kristófer er greinilega orðinn hinn mesti grallari og spekingur. Æðislegar myndir af honum :) Flottur þarna í "jógastellingunni" í rúminu sínu og svo að chilla í kassanum með bókunum hehe. Ekkert smá fallegur skenkur þarna í stofunni ykkar, það er greinlega voða kósý þarna hjá ykkur. Risa knús og kossar frá Aarhus
Loksins komu myndir, alveg yndislegt að sjá þig og alltaf jafn gaman að spjalla við þig. Vertu fljótur að hressast elsku karlinn. Knús til þín og auðvitað ykkar líka :-)
Amma og afi
Halló sæti!
Gaman að sjá myndir...var einmitt að skella inn nokkrum af Stefaníu Lilju og co :-)
Bið að heilsa ma og pa
hæ hæ voru engar myndir teknar í nóvember? bara spurði, bara bíð bless öll kv, amma
29. nóvember og við bíðum, getur étið ofan í þig þetta núna sem þú varst alltaf að segja um Edda og Sillu ;)
Langar að knúsa þessar kinnar :* Alltaf jafn sætur! Trúi að honum finnist dýrin spennandi - kannast við það ;)
Knús&kossar.
Yndislegar myndir af rúsínubollunni :) Fyndið að sjá hvað sama dótið virðist virka vel fyrir svona orma - Róbert á líka svona IKEA kerru og svo eigum við líka svona bóndabæ sem er alltaf jafn vinsæl... verð nú samt að viðurkenna að mér finnst "Old McDonald" ekkert sérlega skemmtilegt lag hehe...
Knús til ykkar frá okkur öllum hér í Núpasíðunni,
Vera og strákarnir.
Frábærar myndir, takk kærlega, þú ert alltaf jafn yndislegur Kristófer minn.
Kossar og mikiðmikið knús
Amma, kveðja frá afa
var að skoða myndirnar flottar eins og vanalega kveðja amma
Kristófer Dagur, þú ert bara æði!¨
Og svo duglegur strákur!
Svo skemmtilega líkur mömmu þinni!
Bið að heilsa í hópinn: Fjóla og co
Æðislegar myndir eins og alltaf ;) Takk fyrir mig !
Kossar&knús :*
Var að sýna Gunnu löngu myndir af drengnum. Bestu kveðjur af klakanum.
Alltof langt síðan ég hef kíkt á síðuna hans Kristófers, en hann verður bara meiri krútt þessi gullmoli sem þið eigið. Knús í kotið til ykkar:)
Getið ekki ímyndað ykkur hvað mig langar að koma aftur þegar ég sit hérna á sunnudegi og ógeðslegt veður og ég hef ekkert að gera nema að læra! Kláriði góða veðurs kvótann fyrir mig líka og knúsiði þennan dreng í drasl!
og hrós dagsins fær tatatadammm.. djók :) frábært að sjá myndir af ykkur öllum og greinilegt að lífið leikur við ykkur - æðislegar myndir takk takk takk :)
takk fyrir allar myndirnar , Kristófer er nú algjört æði eins og alltaf, kveðja amma.
Loksins komu myndir og bestu þakkir, það hefur greinilega verið gaman hjá ykkur þegar ömmu/afa settið á Króknum var í heimsókn. Þú ert sko bara krútt Kristófer minn.
TAKK, TAKKKKKK........
snörl,snörl......sakna ykkar svo, er hægt að fá myndir af ykkur ÖLLUM??????
Kvitti kvitt. Var að kíkja á myndir af drengnum. Til lukkku með afmælisstrákinn.
Dugar ekkert að vera í fýlu út í Edda og Sillu ef maður stendur sig svo ekki mikið betur sjálfur ;)
jæja bróðir sæll.. á ekki að fara að setja inn myndir síðan mamma og pabbi voru hjá ykkur ? :)
hæ elskurnar þá erum við komin heim ,hér var -3 þegar við fórum að vinna í morgun úff það var skítakuldi,bless bless amma
Til hamingju með 1 árs afmælið um daginn fallegi og stóri strákur :) Gaman að skoða allar nýju myndirnar og fá að fylgjast með þér stækka og þroskast!
Kossar&knús í hús, Birta.
Til hamingju með daginn um daginn stubbur :)
Greinilega verið svaka stuð í veislunni!
En Heiða, verð bara að styðja KDG í þessu með makkarónusúpuna - mér finnst pasta mjög gott sem og hrísgrjónagrautur og annað í þeim dúr NEMA makkarónusúpa, hún finnst mér ógeð. Svo ég skil hann vel ;)
Hafið það gott
Kv. Erna, Stebbi og Arnar Geir
Elska litla dúllan mín til hamingju með daginn um daginn ;** búið að vera að svo mikið að gera að maður hefur varla tíma til að hringja í ykkur :( en ég hringi kannski í kvöld víst ég ligg veik heima :( æðislega myndir og þú orðin ekkert smá stór og með fullt af tönnsum. Líka æðislegur í skyrtunni sem þú fékkst frá mér í jólagjöf ;) passar loksins í hana ;) en sakna ykkar endalaus og vildi að ég væri að koma með ömmu og afa á föstudaginn :*
Elsku "frændi" til hamingju með afmælið. Ohh, það hefði nú verið gaman að fá köku hjá þér :-) Það verður bara seinna.
Ég borða líka allt - nema kannski hrísgrjónagraut...við getum nú ekki borðað alveg allt, hehe. Mér finnst lambakjöt samt eiginlega langbest...:-) Maður má nú lílka eiga uppáhalds, hehe.
Knús í hús!