

Takk takk flottar myndir , bara 9 dagar þar til við komum get ekki beðið, knús til ykkar amma
Til hamingju með litlu sætu stelpuna Heiða mín :)
Mikið rosalega er hún Viktoría Dögg falleg, innilega til hamingju með hana :-) Kristófer Dagur er greinilega mjög ánægður með litlu systir. Gangi ykkur sem allra best, þetta er yndislegur tími.
Verð að fá að skrifa hérna smá.. Innilega til hamingju með litlu Viktoríu Dögg, allgjör dúlla og rosalega sæt. Ekkert smá flott nafn líka sem varð fyrir valinu ;-) Gaman að fylgjast með ykkur hérna, hlakka til að sjá fleirri myndir :-)
Bið að heilsa ykkur öllum og hafið það rosa gott að dúllast með litlu dúllurnar!
Mikið rosalega er Kristófer Dagur allt í einu orðinn ROSA stór ;) Hún litla Viktoría Dögg er í einu orði sagt alveg yndisleg og það er nú bara eins og þú hafir ekki gert neitt annað en að fæða börn, þú ert eins og súpermódel þarna á sjúkrahúsinu :þ
Annars fæ ég alveg svona flashback að skoða myndirnar, Almar Máni var reyndar rúmlega tveggja ára þegar Svava fæddist en margt svo líkt. Allir kossarnir og "aaahhh" við litlu systur og skoða á henni litlu fingurnar og tásurnar - alveg ómetanlegt ;) Við erum svo ríkar Heiða mín og bara skemmtilegir tímar framundan hjá okkur! Knús og kossar frá okkur öllum og takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með hér á netinu og deila með okkur myndunum :*
Frábærar myndir Heiða mín af fallegu börnunum ykkar. Gaman að fá að fylgjast með hvað allt gengur vel og þið geislið af hamingju, enda ekki annað hægt með þessa flottu gullmola.
Kær kveðja.
Fanný.
Innilega aftur til hamingju með Viktoríu Dögg;) Æðislegar myndir og gaman að sjá viðbrögðin hjá stóra bróður, ég bíð spennt eftir að Snorri Karl vaknar til að geta sýnt honum myndirnar;) Sjáumst vonandi í vikunni, kærleikskveðjur frá Genf
Elska að skoða þessar myndir af ykkur - alveg dásamlegar og btw til hamingju með Kitchenaid.. trúðu mér hér hefst nýtt bökunarlíf í sögu þinni - mín hefur nokkuð reglulega verið notuð síðan í október :) knús og ég heyri í þér í kvöld
Hún er yndisleg - svo falleg litla stelpan ykkar:) til hamingju með hana og fallega nafnið hennar.
maður alveg bráðnar að skoða þessar myndir elsku Heiða:) þvílík hamingja
Mikið eru þetta yndislegar myndir af ykkur litlu fjölskyldunni, enda flott fjölskylda þarna á ferð.
Mér hefur alltaf fundist Kristófer vera mjög líkur þér Heiða en á myndunum upp á sjúkrahúsi (þegar litla fæddist) þá sá ég að hann er bara ansi líkur pabba sínum líka.
Prinsessan ykkar er náttúrulega alveg æðisleg og myndin af henni þar sem hún er vafin inn í handklæði nýkomin úr baði er bara til þess að bræða mann, rosalega er hún falleg og ekki að sjá að hún sé aðeins 3ja daga gömul.
Segi bara aftur innilega til hamingju með allt saman, þetta er búið að vera ansi viðburðaríkur mánuður hjá ykkur :) yndislegt alveg hreint.
Innilega til hamingju með prinessuna og fallega nafnið hennar - hún er alveg yndisleg,
knús Vera :)
Bara x3 í morgun sem ég skoða myndirnar ;-) Það er erfitt að vera amma og vera langt í burtu en sem betur ferið hafið þið skilning á því og eruð dugleg að mata okkur á myndum, takk fyrir það elsku Heiða mín, Gummi og elskuelsku Kristófer minn sem segir alltaf AMMA á Skype :-) Mikið og stórtstrót knús
Elsku fjölskylda, innilega til hamingju með Viktoríu Dögg, hún er alveg yndisleg. Frábært hvað Kristófer tekur henni vel;)
Knús og kossar, Rúna.
Bara að láta vita að ég var að skoða myndirnar enn einu sinni.....
Og fæ alltaf tár í augun :-)
p.s. Heiða ég setti inn nokkrar myndir af minni prinsessu inn á Nino í morgun!
Almáttugur minn. Fyrsta nýkomin-úr-baði myndin af litlunni gerir útaf við mig. Jeminn eini hvað hún er sæt! Og svo pottþétt silkimjúk, það bara finnst í gegnum myndirnar. Það sem hann Kristófer er ótrúlega montinn með hana og sætur snoðaður á ný, ég brosi hérna hrikalega væmnu brosi yfir þessu albúmi. Fjúff. Og KD í græna bolnum er gaman að sjá, en ekki hvað. Svo má ég til með að nefna hvað geislar af ykkur gleðin bæði á brúðkaupsmyndum og Viktoríumyndum. Lífið er gott.
P.S. Til hamingju með Kitchen Aid!
Innilegar hamingjuóskir með dóttirina. Kveðja úr hitanum á Skagaströnd, sem er 21 stig.
Sætasta stelpan í Sviss - hún er æði.
Stefanía var að skoða með okkur og fékk að vita að þið ættuð heima í Sviss.
Svo sagði snúllan: Mig langar bráðum að fara til Sviss ;-)
Það væri nú dáldið mikið gaman - en það þarf víst aðeins að bíða.
Innilega til hamingju með litlu prinsessuna :) Er ekki frá því að hún sé bara nokkuð lík stóra bróðir á nokkrum myndum þarna. En enn og aftur innilega til hamingju :)
Gvuð hún er svo lítil og falleg og dásamleg. Stóri bróðir svo fínn og yndislegur. Og jájá svo er Kitchen Aid vélin líka dásamleg;)
Vona að allt gangi vel.
xx
Er búin að renna nokkrar ferðir yfir þessar myndir og hef komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé alveg yndislega falleg lítil stúlka, vel gert Heiða og Gummi !!! :) Ég og Katrín vorum með píkuskræki og læti þegar við kíktum á þessar myndir fyrr í dag. Skil vel að þið séuð hamingjusöm og stolt af dömunnni :) Innilega til hamingju ! knús og kossar úr sólskinsbænum Akureyri
Flottar myndir til hamingju aftur, kv amma
Til hamingju elsku sys með þetta allt saman.
Hlakka til að sjá myndir :-)
Híhí ;) takk Ásta! Ekki oft sem barn fæðist nánast í beinni - en gaman að þessu :) Heyrði í Heiðu og Gumma í gær og þau höfðu gaman að þessu - sem er fyrir öllu...en til hamingju elsku bró, mága og litla sæti frændi með yndilega prinsessu og nafnið enda er það líka ekta prinessu nafn;) hlakka svo til að sjá fleiri myndir og vonandi kemst ég til ykkar með haustinu. Knús og kram V
Innilegar hamingjuóskir sendi ég ykkur í tilefni komu Viktoríu Daggar í heiminn - Hún er alveg yndisleg :) knús og kossar
þetta gekk:) Gaman að sjá myndir frá brúðkaupsdeginum. Vonandi sofið þið vel í nótt eftir viðburðarríkan dag. Kossar frá London;))
Elsku Kristófer Dagur. Til hamingju með þennan nýja titil - stóri bróðir :) Ég er alveg viss um að þú verðir frábær stóri bróðir og góður við litlu systur. Hjartanlega til hamingju öll með litlu Viktoríu Dögg og þú Heiða mín með afmælisdaginn þinn!
Bestu kveðjur til ykkar allra, stóra fjölskylda ;)
Birta, Steini, Almar Máni og Svava.
Elsku Heiða mín, Gummi og Kristófer Dagur, innilegar hamingjuóskir með litlu prinsessuna Viktoríu Dögg, yndislegt nafn.
Kossar og mikiðmikið knús á ykkur öll, kveðja frá afa og Sindra
Vala góð, fór á kostum á Rás 2 ;-) Takk Vala
Svo fallegar myndir af ykkur hjónunum :) það skín af ykkur hamingjan...Ég er svo ánægð með daginn sem þið völduð - alveg úrvalsdagur 12.júní myndi ég segja.
Knús og góðir hríðar - straumar:)
YNDISLEGAR myndir alveg hreint, þið alveg geislið og dagurinn hefur greinilega verið dásamlegur í alla staði - ákvað líka að taka smá trip down memory lane og skoðaði allar myndirnar frá því herra kdg kom í heiminn.. knús til sviss og ég hringi í vikunni.. :)