

Heiða - þessar "fjölskyldumyndir" eru bara snilld.
Æðislegt að sjá fötin, hehe
Knús úr snjónum. (Við Stefanía fórum út áðan og hún horfði á snjókornin falla og sagði bara: datt datt datt, hehe)
Úff, hvað maður er sætur. Svo sá ég svo sæta mynd í bakgrunninum, voðalega falleg börn:)
Kv. Vala, sem er farið að telja niður.....
Frábært að þið séuð komin með síðu :) Ég verð fastagestur hérna og fylgist með ykkur. Kristófer er svo hrikalega sætur að maður neyðist hreinlega til að skoða myndirnar af honum aftur og aftur hehe. knús
Jei loksins komin síða - enda er enginn prins án heimasíðu ;) Æðislegar myndirnar af honum, það sem ég hlakka til að knúsa hann og ykkur þegar þið komið um jólin... sem styttist nú óðum, erum sko að tala um að það er komið jólaskraut í búðirnar - fólk alveg að missa sig!
knús og kossar,
Vera og strákarnir.
Ohh hvað er gaman að skoða allar myndirnar, ekki laust við að maður sakni þín nú Heiða mín - væri ekki leiðinlegt að kíkja í heimsókn í kaffi og fá að knúsa litla prinsinn. Hann er svo mikil dúlla. En til hamingju með síðuna og ég mun kíkja reglulega til að sjá fleiri myndir. Bisous
Sæl Heiða mín og fjölskylda. Rosalega var gaman að sjá myndirnar af litla manninum. Gangi ykkur sem best.
Kær kveðja
Helga og co
Til hamingju með síðuna :) Frábært að geta fylgst með ykkur svona úr fjarska. Þetta er nú meiri prinsinn sem þið eigið.....algjör gullmoli!
Bestu kveðjur, kossar og knús.
Birta og fjölskylda.
Hæ langamma heitir Guðrún Ingimarsdóttir kv, amma
Til hamingju með síðuna - hlakka til að fylgjast með hverjum áfanga í lífi drengsins hér sem og annarsstaðar.. knús og kossar frá Selmunni
Halló "litli" frændi!
Þú ert bara æði og svo duglegur að sofa. Það er nú alveg á hreinu að ég kenndi þér ekki að sofa, hehe
Sjáumst vonandi um jólin.
Kv. frá Steffý stuð og fjölskyldu
Sæll frændi, gullfallegur drengur sem þið eigið. Hann sækir það náttúrulega í Sölvabakkaættina og Svarfaðardalinn. Það verður gaman að fylgjast með honum stækka og vonandi gengur ykkur vel í uppeldinu. Kveðja úr sveitinni á Íslandi
Hæ þið öll gaman að komin sé síða hjá ykkur, er farin að telja dagana þangað til við komum bara 7 dagar, bið að heilsa í bili amma á Sauðárkróki
Halló,halló.....gaman að það skuli vera kominn heimasíða. Þegar maður eru svona langt í burtu, er nauðsynleg að geta fylgst með og þá er netið algjör snilld. Hlakka til að hitta ykkur í næstu viku og Pía tala ennþá um að koma með í ferðatöskunni.
Bið að heilsa í bili, Vala og Pía
Loksins er biðin á enda með síðuna þína, þetta er alveg yndislegt að geta fylgst með þar sem þú ert svona langt í burtu elsku karlinn okkar. Hlökkum til að fá þig í heimsókn,það styttir biðina að geta skoðað myndirnar af ykkur.
Kossar og knús til ykkar
Amma, afi og Sindri biðja að heilsa