Við erum systurnar
Katla Ósk,Viktoría Rós og Guðrún Tinna.
Verið velkomin á síðuna okkar og munið að kvitta.
Katla Ósk er lítil jólaprinsessa. Hún fæddist 25.desember 2006. kl 03:59 á fæðingardeild LSH.
Viktoría Rós er lítil prinsessa sem að fæddist 8. september 2009 kl 05:28 á fæðingardeild LSH.
Guðrún Tinna er lítil prinsessa sem að fæddist 9.september 2010 kl:00:39 í Hreiðrinu.
Mamma okkar heitir Freydís og pabbi okkar heitir Róbert Línberg.
ELSKU BARN
Ást mín verður með þér
hvenær sem þú þarfnast hennar.
Ást mín verður með þér
þegar gleðin ber þig ofurliði.
Ást mín verður með þér
þegar erfileikarnir eru að buga þig .
Ást mín verður með þér
þegar þú óttast lífið .
Ást mín verður með þér
í dag og alla daga.
Dóttir mín
Elsku yndislega dóttir mín.
Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar.
En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska þig mikið.
Mig langar til að segja þér hug minn.
Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inn í líf mitt.
Þú ert mér allt.
Þú ert súrefnið mitt, andardrátturinn minn og löngun mín til að lifa.
Hamingjan mín hófst með komu þinni í þennan heim.
Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunveruleg.
Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt, og að fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið.
Þú ert gullið mitt, fjársjóðurinn minn.
Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina.
Ég reyni að meta þig að verðleikum.
Þú hefur kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við.
Hvar væri ég án þín?
Ég elska þig elsku dóttir mín, nú og að eilífu
Heimsóknir í dag: 2
Heimsóknir frá upphafi: 31498