
Bara rétt að líta við, frábært að sjá svona fínar myndir að norðan.. Ægilega gaman að sjá myndirnar úr skírnarveislunni -
Kveðjur góðar
Hadda og co
Hæ elskurnar! Takk fyrir síðast, það var gaman að hitta ykkur öllsömul og fá að sjá fallega drenginn ykkar. Hafið það gott. :*
kv.Sigga Ásta
Jæja, löngu kominn tími á að kvitta aftur í gestabókina!
Yndislegar myndir eins og alltaf og foreldrarnir fá stórt hrós fyrir að vera dugleg að setja inn myndir!
Þarf svo að fara að kíkja á ströndina til ykkar og læra réttu handtökin :)
Hafið þið það alltaf sem best!
Hæ hæ :)
Vá það var svo frábært að fá ykkur hingað norður um páskana ! Flottar myndir ! Hahahhahahhahahaha.. fyndin mynd af Kittý og Júlíu "í baði" :D En hafiði það gott, vonandi líður ekki of langt þangað til að maður hittir ykkur aftur ;*
Ég ætla að senda ykkur riiiiiisastórt knús.. Tilbúin að taka á móti því? Hér kemur það : *Knúúúúúúúúúúúúúúúús*****
Kv.Aníta systir, mágkona, frænka og guðmóðir ! híhíh..
Nú ætla eg að vera barnalands/-nets klisja:
Æðislegar nýju myndirnar!
Alveg svakalega er drengurinn blandaður, ha...
eeeen... burt séð frá öllum blöndum, þá er hann (eins og einhver vitur maður sagði einhverntíman) eins og spýtt út úr nösinni á systur sinni!
Vildi óska þess að ég hefði verið þarna með ykkur elskurnar mínar, hlakka svo agalega til að sjá ykkur í sumar. Sérstaklega þá í ágúst!
Love you lots,
Sunna og co
Æðislegar myndir!! Til hamingju með skírnina. Þið hafi greinilega haft það gott um páskana. Alltaf þegar ég sé svona fallegar myndir af norðlensku fjöllunum langar mig að flytja til Ak :) Áður en ég geri það ætti ég kannski að fara að kíkja á Látraströndina:)
Knús frá okkur Heklu og sjáumst sem allra allra fyrst!
Elsku fjölskylda - til hamingju með gamla manninn;) þetta man maður þó eldri sé;)
Vonandi eruð þið að eiga glimrandi páska eu staðar og njótið dagsins.
Mikil elska frá okkur öllum í London...
já, frábær myndin sem Júlía tók. En skemmtilegt sjónarhorn!
Takk fyrir síðast! Af myndunum að dæma er Emil meira líkur mömmu sinni og Júlía meira lík pabba sínum, maður þarf alltaf að vera að tjá sig um þessi mál....og svo er systkynasvipurinn svo mikill líka!
Heyrumst, það er að koma vor! Og þá röltir maður um miðbæinn!!
Halló elskurnar mínar! Var að skoða nýjustu myndirnar. Þið eruð öll svo sæt og fín. Emil dafnar vel sé ég. Nú eru bara tveir dagar þar til þið komið norður til okkar. Við hlökkum öll voða til að fá ykkur. Knús ++++ amma B
Lóa er í heimsókn hjá mér og við erum að skoða síðuna ykkar á meðan við horfum á Gettu betur með öðru auga. Lóa segir að Júlía sé alveg eins og Kjartan en mér finnst hún alveg eins og þú Hildigunnur;) Hjartanlega til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn, hann Emil Smári er algjört krútt! Hamingjuóskir líka til Júlíu með Jasmín, ég veit hvað páfagaukar geta verið skemmtilegir;) Vona að þið hafið rosalega gott:)
Hvernig er hægt að vera svona mikil krútt?? Fjórir fjölskyldumeðlimir + einn fulg og allir krútt!! Ég á bágt með að skilja þetta....
Innilega til hamingju með afmælið og fuglninn Júlía! Vá hvað Emil er fínn í ullarbuxum og hippabol!
Hlakka til að heyra í og sjá ykkur fljótlega!
Kossar Kristín
Já, ég er sammála fyrri viðmælanda, fallega fjölskylda! Emil er svo ofusætur að það nær engri átt!!!! Jiiiiii!
Þetta er eina barnalands eda -nets síðan sem ég skoða. And I'm loving it. Æðislegar myndir, æðislegt fólk. Er hægt að biðja um betri familíu? :)
Júlía er allt í einu orðin svo svaka stór! Kysstu hana frá okkur öllum til hamingju með ammælið. Og lilli mann... líka orðinn risastór! Æðislegur! En orkiídean, maður minn! Þar erum við nú að tala um prýði!
xoxoxox
Sunna og kó... í baunó
Mér finnst Emil orðinn svo líkur afa Magnúsi alltíeinu;)
Gaman að líta við annað slagið, gvuð blessið hnattvæðinguna og internetið.
Knús og kossar frá Londres Spondres
Ohh loksins fékk ég að sjá myndir af drengnum. Og það er ekkert smá myndardrengur:-) Hildigunnur, þú lítur líka ótrúlega vel út og ekki hægt að sjá að þú hafir verið kasólétt fyrir stuttu! Hlakka til að sjá ykkur.....hvenær sem það verður nú:-)
i m gu uy y 8 m8mn ,09,m µ<
Ok, þetta voru skilaboð frá Iðunni hérna fyrir ofan :)
Hehhe annars fannast mér þetta skemmtileg mynd af fyrrverandi snuðunum hans Emils...hehehe
Ég er bara að kvitta fyrir komuna.
Emil dafnar augljóslega vel, hann er nú meira krúttið og stóra systir er greinilega dugleg að aðstoða foreldrana.
kveðja Guðný skólasystir
Til hamingju með afmælið Júlía flottasta heimasætan, knúsið hvert annað frá okkur á Snorró í tilefni dagins!
Til hamingju með 8 ára fullatungls afmælið elsku Júlía mín. Engin smá dagur:) Verð með þér í huganum. ´
Ég var að skoða nýjustu myndirnar ykkar. Þið eruð svo krúttleg og flott! Hlakka obbó til að sjá ykkur.
Ástarkveðjur. Amma
Jæja á ekki einhver afmæli í dag!! Elsku besta og flottasta Júlía! Innilega til hamingju með afmælið - Vonandi verður frábært partý hjá þér... Hreiðari Nóa fannst nú heldur mikið að verða 8 ára, spurði mig alvarlega hvort að það væri ekki MJÖG mikið, enda svolítið langt að telja frá 4 og uppí 8!
Hér stendur afmæliskort tilbúið og bara spurning um að rölta á pósthúsið á morgun!
Njótið dagsins öllsömul
Knús á línuna
Hadda, Adam og Nóaskottið ( sem telur stöðugt niður í 5 ára afmælið!)
Þetta bjargar alveg deginum að fara inn á bloggið ykkar. Hildigunnur og Kjartan ............... þið eruð æðisleg fjölskylda...... eitthvað svo hrikalega happy......... Hlakka til að knúsa ykkur í klessu eftir langan veikindatíma hjá fjölskyldunni á Laugalæk.
Chao Hasta pronto Elsa
Halló Júlía Karin, Emil Smári, mamma Hildigunnur og pabbi Kjartan Smári !
Var að renna yfir myndir og færslur. Gaman að sjá hvað allt gengur vel hjá ykkur, flottar myndir !
Kveðjur , afi Magnús
Halló!!
Aedislega gaman ad sjá allar myndirnar! Vonadi sjáumst vid í sumar svo ad madur getur hitt han Emil!!!
lots of loovveee
ehheehe, yndisleg bumbumyndin!
Júlía ekkert smá flott á öskudaginn! Við mæðgur erum orðnar mjög spenntar að hitta ykkur öll:)
Hæ fallega fjölskylda. Vá hvað yngri partur fjölskyldunnar hefur stækkað og dafnað :) Gaman að fá að fylgjast með.
Knús af Laugarnesveginum
Hæ..hæ elskurnar mínar ! Alltaf gaman að kíkja á síðuna ykkar. Myndböndin krúttaraleg. Nú er bara vika þar til ég sé ykkur aftur. Ég hlakka voða mikið til að hitta ykkur öll fjögur. LOVE, amma og mamma B
Hæ, frábærar nýju myndirnar! Já, takk fyrir síðast, ekkert smá gaman að sjá Emil í eigin persónu. Ég gleymi alltaf að hann hafi bara verið 4 vikna þegar ég sá hann, hann er svoooo stóóór. Og fallegur :) Iðunn var líka ofsalega skotin í honum.
Svo bara koma oftar í miðbæinn og fá kræsingar!
Yndislega fjølskyldan min... sakna ykkar alveg svakalega. Min er bara herna i skolanum, rett vøknud med kjeeeffe og pinu tar i augunum yfir thvi hvad systkinin eru unadsleg. Hlakka alveg svakalega til ad sja ykkur aftur, hvenær sem thad verdur. Allt gott ad fretta hedan.
Min kæra frænka: lykilordid ad sidunni er ekkert serlega "utlendinga-lyklabords-vænt". Bara svona ad benda ther a thad: :-)
Knus og kram;
Sunna og co.
Flott ertu Júlía drottningin mín:). Og ég sé að Emil Smári hefur heilmikið stækkað á einni viku! Sakna ykkar og hlakka til að fá ykkur aftur norður.
Ástarkveðjur
amma K