

Velkomin á síðuna okkar, við erum systurnar Júlía Klara, Dagmar Lilja og Jenný Lilja.Endilega sendið mömmu póst og fáið lykilorðið

Halló allir saman
Júlia Klara Gunnarsdóttir heiti ég. Ég fæddist á mánudegi 12. maí 2008 klukkan: 20:47. Ég var 50,5 cm löng og 3435 gr. Ég var með mikið svart hár, rosalega slétt og náttúrulega bara flottust. Mamma mín og pabbi voru svo heppin að hafa hana Ömmu mína til að hjálpa okkur öllum þegar ég kom í heiminn. Eftir stutta veru á spítalanum fórum við heim í kotið okkar á Grenimelnum.
Ég er á leikskóla sem heitir Kór og þar finnst mér sko gaman að vera. Mamma og pabbi kalla þetta vinunna mína og tek ég því þessari "atvinnu" mjög alvarlega. Þegar ég er heima finnst mér skemmtilegast að lita og leika með dýr og dúkkurnar mínar.
Ekki gleyma að kvitta í gestabókina.......alltaf gaman að lesa kveðjurnar frá ykkur vinir mínir.


