Ísleifur Krummi Björnsson
 

Nýjar myndir og fullt af myndböndum af mér sett inn 13. júlí.

Hér í Kaupmannahöfn er búið að vera alveg rosalega gaman{#emotions_dlg.wink} Frá því við lentum hér er búið að vera rosalega gott veður. Ég er búin að hitta svo mikið af vinum mínum hérna og dagurinn alltaf stútfullur af skemmtilegu að gera. Við erum búin að fara á ströndina, á Íslandsbryggju að synda í sjónum, höngum í görðunum og svo grillum við oft í garðinum okkar með vinum okkar, fórum í bæinn, pikknikk í Kristjaníu og margt fleira. Arnar frændi kom í heimsókn yfir helgina og það var svo gaman að fá hann hingað, ég vakti hann alltaf á morgnana og hann spilaði á gítar fyrir mig og dekraði við mig.

Svo má ekki gleyma að ég tók fyrstu tvö skrefin mín 11. júlí, svo dansa ég á fullu, og síkjafta við alla sætar stelpur sem ég sé og sjarma þær uppúr skónum. Ég er kominn með tvær tönnslur og er alltaf í stuði.

Góðar kveðjur heim frá Hunkmöller og mömmu og pabba.