Við erum systurnar Ísabella Lív og Sunneva Lára!
Ísabella Lív fæddist þann 27. mars 2008 klukkan 14:28 á Landspítalanum. Þá var hún búin að vera í 10 auka daga í bumbunni. Hún kom í heiminn með látum og var svakalega hraust og fín en algjör strumpur, 12 merkur og 49 cm.
Sunneva Lára fæddist þann 7. mars 2012 klukkan 23:23 á Landspítalanum. Þá var hún búin að vera 5 auka daga í bumbunni. Hún var líka að flýta sér í heiminn og kom og var rosalega flott stelpa, 15 merkur og 51 cm.
