

Komið þið sæl,er búin að skoða allar myndir,mikið eruð þið heppinn að vera komin á þennan sælustað,enda geyslið þið á öllum myndum,Kolla mín,komust myndirnar til skila,takk fyrir mig.Heyrumst síðar.Gunný
Sæl sæl sæl sæta fjölskylda
Ég/við höfum nú ekki mikið að segja nema bara kvitt kvitt kvitt.......
Allir dafna hérna eins og hjá ykkur og höfum við það bara gott.....söknum ykkar
kv The family Gudmundsson
Hæ,kerling,Steini og Máni.Frábærar myndir,það er aldeilis gaman að heimsækja ykkur ,þó svo í fjarðlægð sé.Héðan er allt gott að frétta,Tanja Rut dafnar vel,hefur þyngst um 65o gr.Agnes Hrönn og Sveinbjörn standa sig vel í nýja hlutverkinu,af Maríu Rós og Sigríði Lárettu þarf ég ekkert að segja frá,þar sem þú ert nýbúin að hitta þær.Kíki við fljótt aftur elskurnar,hafið það gott. Kveðja Gunný og Doddi
Heil og sæl kæra sveita fólk!!
Mikið var gaman að fá sendan slóðina ykkar, takk kærlega fyrir það. Hér er ég búin að sitja á annan tíma og skoða allar þessar frábæru myndir og lesa hvað á daga ykkar hefur drifið!! Aldeilis að það fer vel um ykkur. Reynar fór ég í tölvuna til að vinna verkefni í Heimspeki með börnum en ég bara gleymdi mér gjörsamlega og verð því bara að vera dugleg á morgun.
Kolla mín ég hélt að þegar maður væri kona ekki einsömul þá mundi maður bæta á sig svona nokkrum kílóum:-Þ Það er greinilegt að við stelpurnar högum okkur ekki þannig, já við hér í mosó sveitinni erum viss um að nú sé komin tími til að styrkja kvenleginn í þessari ætt og lítil jóla prinsessa lítil dagsins ljós í desember, sennilega þann 3.....
Annars er bara allt gott að frétta af okkur, allir byrjaðir í skólanum nema Einar, hann er fyrir vestan í sínum fjallaferðum og kemur heim um helgina og fer svo aftur til Ísafjarðar í næstu viku, það verða einhverjir að vera fjallgeitur!!!! Jæja best að láta þetta duga núna og koma sér í háttinn. Kíkið endilega inn á heimasíðuna okkar, við erum nú ekki svona dugleg að skrifa og setja inn myndir en þetta stendur allt til bóta og ég ætla að setja inn fleiri myndir um helgina.
Knús og kelmm frá okkur í Mosó
Rósa G
Halló gullin mín. Ég kom mér loksins inn á síðuna til ykkar, en ég fer helst ekki í tölvu þegar ég er komin heim á kvöldin. Máni minn er framtíðar sauðfjárbóndi, það líst mér vel á...við þurfum að hafa duglega fólkið á landsbyggðinni þegar allir vilja vera á mölinni. Við hlökkum til að sjá ykkur í október. Kjell og Sigurrós biðja að heilsa. Ástarkveðja amma Rósa
Jess nú er maður loksins orðin frú. Gaman að heyra að þið eruð komin heil heim og allir selirnir og fuglarnir hafi fengið að sitja í friði.....Næst þegar þú rúlllar í bæinn er sko lítið mál að skella epli, engiferrót og sítrónu í iðnaðargræjuna og að ég tali nú ekki um heitt í pottinn.....nó prob. Takk innilega fyrir okkur, þetta var bara æði og að ég tali nú ekki um hvað það er gaman að skoða myndirnar....knús og milljón kossar í viðbót að vestan..
Hin frúin, ji hvað er gaman að skrifa þetta... :o)
Halló og takk fyrir síðast! það er nú meira sem Hymer jr. stækkaði frá næstnýjustu bumbumynd og nýjustu. Gætirðu hafa smitast af tvillingum?!
Kveðja Ösp og allir sem henni fylgja
hæ hæ og takk fyrir síðast.
Hlökkum til að sjá ykkur eftir minna en tvær vikur.
Rútubílar ehf
Hæ Kolla
Ég rakst á heimasíðuna þína í gestabókina hjá Katrínu vinkonu og ég segji eins og þú, að það er gaman að lesa fréttir af gömlum skólasystkinum :)
Gangi þér vel með litla bumbubúann
Kveðja Magga
Takk fyrir síðast. það var voða gaman að geta komið í kaffi til ykkar og sjá húsið og þetta frábæra útsýni.
vonandi komumst við aftur í heisókn sem fyrst.
Takk kærlega fyrir alveg frábæra helgi kæru vinir. Þetta var án efa ein besta verslunarmannahelgi sem að ég hef upplifað. Ekkert nema skemmtilegt fólk og góður matur og fullt af svalandi sumarkokteilum......í öllum steikjandi hitanum. Ég hitti enga ítala á leiðinni í bæinn enda líklegt að þeir hafi verið búnir að vara alla hina við bleiku hættunni.....en við hlökkum til að sjá ykkur eftir ca mánuð. Knús frá okkur fyrir vestan
Hæ sæta bumbukona,
Ótrúlega fínar sónarmyndir af jr. bollukinn (sem gætu stafað af öllum rabbabararéttunum sem þú ert alltaf að malla, eða...)
Kveðja úr Kópavogi
Hæ elskurnar allar. Flott myndaalbúmið gaman að fá að fylgjast með sveitasælunni í texta og myndum, endalaust fjör á svæðinu. Hymer Jr myndast vel eins og þið hin,frábært að sjá myndirnar hafið það áfram sem allra allra best lovja ammag
This is Westfjords calling: Við viljum bara staðfesta komu okkar og veru frá fimmtudagskveldi fram á mánudag.....hlökkum til að sjá ykkur öll....og að ég tali nú ekki að smakka öll rabbabara herlegheitin. Hvernig væri nú að ég kæmi með nokkrar tómar krukkur svo að við getum nú gert saman sultu í annað skipti eins og þarna um árið þegar við gengum um garða og stálum (fengum lánaðan) rabbabara......knús að vestan og við hlökkum geggjað til að koma norður í rassgat og oggubogg lengra :o)
Halló halló!!! núð verður sko að fara skrúbba, baka og taka fram allt sparistellið því mín er að koma...mætir helgina eftir versló. Hér er bara unnið og unnið, guðjón er stungin af, á samkvæmt áætlun að vera koma niður af Hvannadalshnúk núna. Ég hlakka til að koma :)
Yndislegar myndir, sé að þið hafið það gott :):) þið eruð blómleg og sæt. Halla biður að heilsa var að skoða myndirnar með mér. Við erum að undirbúa brottför til Wales í nótt. Heyrumst.
Takk fyrir bumbumyndirnar, þær eru æðislegar, mikið hlakka ég til að knúsa ykkur um versló. Kv að vestan
Hæ hæ Æðisleg síða hjá ykkur. Gaman að sjá myndirnar og lesa um hvernig þið hafið það þarna . Hlakka rosalega mikið til að koma til ykkar í ágúst og vera hjá ykkur í smá tíma. Ástarkveðjur Sigurrós
halló kæra húsfreyja að Ási, og elsku Máni til hamingju með afmælið:o) Það hefur allveg farið fram hjá mér að þú eigir hund! ég vil komast inn á síðurnar......
kveðja úr borg óttans
OKOK ég er soldið sein að kíkja en minnið hjá kellinguni er ekkert upp á það besta....En það er svosem engin afsökun þar sem að maður hangir (ekki hengur) í tölvunni allan liðlangan daginn (svona á milli þess sem að maður sinnir krakkanum) og gleymir að kíkja á aðal síðuna. Þetta er næstum ófyrirgefanlegt (NÆSTUM). En eins og að einn góður maður (kven eða karl) sagði betra er seint en aldrei....
Máni til hamingju með afmælið í gær..ég hringdi en þú varst ekki heima en svo gleymdi ég að hringja aftur (já já ég veit).
Allavegana mjög flott síða, myndi samt vilja sjá fleiri bumbumyndir (ekki að það séu neinar). Hlakka til að hitta ykkur vonandi sem fyrst...
Kær kveðja, kossar og þétt knús
Jóna, Kári og Eyþór
Elsku stórfjölskylda.
Þetta er frábær heimasíða hjá ykkur (þér Kolla mín) og kemur hún til með að auðvelda okkur að fylgjast með ykkur sveitavörgunum. Innilega til hamingju Máni óðalsbóndi með daginn. Biðjum að heilsa í bili og hlökkum til að sjá ykkur næstkomandi sunnudag. Afi Gunni og Laufey
Gaman að þessu framtaki ykkar í sveitinni, til hamingju máni með 10 árin, núna getur þú talið í tveimur tölum næstu 90 árin.
Mér fannst eins og ég væri að skoða "túrhesta albúm" þessar glæsilegu myndir fá mig til þess að hlakka mikið til versló. Ég á eftir að vera alger túrhestur þá með kortin á lofti og "What is this".
Hlakka til að sjá ykkur öll.
TJ
Elsku Kolla.
Gaman að heyra frá þér. Heimasíðan er glæsileg, eins og þín er von og vísa. Allt gott frá IDD, hér er varla hræða á ferli þessa dagana, allir í fríi.
Hæ hó. Takk fyrir allt bakkelsið og heimagerðu sulturnar :P
Brilljant framtak hjá þér að skella upp svona fréttasíðu svo maður geti nú fylgst aðeins betur með ykkur. Hlökkum til að koma í sveitina um versló. Knús og þúsund kossar þangað til
Eyrún Harpa
Hæ, hæ,
Þetta er flótt heimasíða hjá ykkur! Gaman að geta fylgjast með! Okkur langar að koma í heimsókn til ykkar og sjá hvernig þið hafið það.
Til hamingju með afmælið Máni!
Kveðja úr borginni.
HÆ sveitafólk
Og frábært að sjá ykkur!!
Ég kem reglulega við frá og með deginum í dag og kíki í heimsókn!!!
Koss og knús
ÓLÖF ERLA
Sæl elskurnar : ) Takk fyrir síðast! Til hamingju með 10 árin þín elsku Máni minn, og þið öll til hamingju með nýju síðuna ykkar, flott framtak. Hlakka til aðfylgjast með. lovja ammaG