

Virkar fínt héðan frá Bifröst en ég þarf greinilega að fara að redda mér svona málbandi, svo að það sé auðveldara að cirka og súmma
Knús og hlökkum til að sjá þig um helgina
testing 1,2 1,2 já virkar fínt hérna meginn!!
Kveðja Öspin
Það er naumast að menn eru orðnir pirraðir....það er eins gott að þú ert að koma í menninguna til að slaka aðeins á það er greinilega allt of mikið að gera hjá þér...alveg að fara yfirum...:):):)
'eg skal bara reyna ða fara að kvitta reglulega aftur og þá kjannski bara á hverjum degi.....
DP HOU skilar sér hægt ég veit en það er bara svo mikið að gerast núna hjá mér að ég er ekki einu sinni búin að horfa á þættina.... Skal samt reyna eins og ég get að bæti mig..svo er bara spurning um smá DP HOU maraþon...
Komin á fullt í skólann..vettvangsnámið... Og maður er bara ekki vanur því að vera að gera rassgat þannig að þegar ég kem heim er ég DAUÐ með öllum stöfum stórum ef að þú tókst ekki eftir því.
Allavegana SAKNA þín og hlakka til að sjá þig
1, 2, 1,2, testing! Virka ég sem skildi????
Já allt í orden hér í gestabókinni, vandinn liggur víst hjá hinum!!!!
nú er skvísan (ég!) búin að versla í eitt stykki Bounty köku, sem verður farið í að baka þegar sveitabæjan mætir í bæinn.......
Flottur gripur sem að sér um uppvaskið....mig langar líka í svona.....
Kveðja frá Bifröst
Hæ hæ
Vorum að skoða myndir og mér fannst það rosa gaman.....Bara brosti út í eitt. Hlakka til að sjá ykkur
kv Kári klári
Ohh.. var ég rosalega dónaleg og mikil frekja í gær..?
Sorríí..
Kúlan er ofsalega nett og flott;) Ég kíki aftur á miðvikudaginn. Miðvikudagar eru góðir, þá kemur BB út og nýjar myndir af kúlunni!
Kv. Katrín
Hæ Hæ..
Svo gaman að ég gét fylgjast með ykkur herna frá Norég. Saknar ykkur allveg mjög mikit, og hlakkar til að sjá gullið sem kem eftur smá. Det ser forresten veldig koselig ut på landet.he he
Knus Tone.
Kém til Island fyrsta helgin i November, svo ef að Kolla langar að koma i bæjinn væri það allveg geggjað.
Flott bumba......ég verð að segja að ég held barasta að ég nái þér léttilega, mér finnst þú ekki vera með neina bumbu miðað við að vera komin 12 vikum á undan mér......allavega þú lítur glimrandi vel út kæra vinkona, hlakka til að sjá þig í lok október...
knús úr Norðurárdalnum sem snjóar barasta ekkert í....
Er ekki miðvikudagur eða??
Já sei sei já Máni minn, þetta er sko rétta leiðin til að ganga menntaveginn, á gönguskíðum.
Hafið það sem best, lovja amma Guðný
það liggur við að ég öfundi sveitafólkið af snjónum..............
Kveðja úr Kópó þar sem hagarnir eru enn grænir....
Nei hvað þið eruð fín í sveitastemmingunni. Virðist vera nóg að gera allavegana af myndunum að dæma. Gaman að sjá að Máni sé í fimleiku ég styð það fullkomlega.
Er annars að læra hérna á bókhlöðunni, er að gera deadboring heimilda ritgerð. Bara gaman.
Bless í bili.
Sigga
Komið þið sæl,var að kíka á okt.myndir,mikið eruð þið sæl,og ekki er nú leiðinlegt að sjá allan myndarskapinn hjá ykkur í eldhúsinu,ætlar Bergbin Máni að verða svona fjölhæfur líka,tekur sig allavega vel út í fimleikunum.Kær kveðja,Gunný
Góðan daginn kæra sveitafólk!
Þið eruð nú alveg ótrúlega dugleg og passið svo vel inní þetta umhverfi. Það hlýtur að hafa vantað eitt pússluspil í þessa sveit áður en þið fluttuð!!
Það er svo gott að kíkja á síðuna ykkar þegar maður tekur pásu frá lærdómnum.
EN hafið það áfram svona gott .
Knús og kossar frá okkur í mosó sveitinni, já við búum nú líka í smá sveit..
Rósa G og co
hæ hæ.
Flott bláa klósettið. Steini hlýtur að fíla sig í tætlur þarna inni. Þetta er hans litur. Hefur þú ekkert að gera annað en að skrifa inn á þessa síðu á meðan Steini rúntar um sveitin og skiptir um klósettpappír á körum og fiktar í rafstöðinni. Veit að þið fílið ykkur vel í sveitinni. Bæ bæ Grímur
Hæ elsku Mánagullið mitt, flottar myndirnar frá fimleikaæfingunni, þetta hlýtur að vera gaman, mundu að æfingin skapar meistarann, heyrumst fljótlega, amma Guðný
Hæ þið öll !
Vil nú bara byrja á að láta ykkur vita að þótt ég hafi ekki kvittað fyrir mig hingað til, þá hef ég verið fastagestur síðunni ykkar og fylgst með lífinu og fjörinu hjá ykkur :)
Kúlubúinn dafnar greinilega vel ! Til hamingju með hann, og til hamingju með hvort annað ;)
Bið ofsa vel að heilsa og takk fyrir mig,
Katrín á Ísafirði
Heibb familie. Gaman að sjá að þið eruð dugleg í eldhúsinu. Vá hvað ég öfunda ykkur af kitchenaid vélinni, og pastagerðartólinu.
Bara að kasta kveðju, vona að þér líði vel og bumbunni kolla mín ;)
Sigga
Hæ hæ hæ loksins búin að fá slóðina, gaman að fá að fylgjast með ykkur. Sérstaklega hrifin af myndasíðunni með rassinum á mér, ótrúlega lekkert...bið að heilsa hafiði það gott, kveðja úr Skagafirði.
ji hvað ég hlakka til að koma í heimsókn bráðum, sé það að það er greinilega alltaf eitthvað gott í matinn, eða verð ég að stíla inn á föstudagana? Knús og milljón kossar í viðbót frá Bifröst
Hæ elsku dúllurna mínar. það er yndislegt að sjá hvað þið blómstrið þarna norðurfrá, eins og þið væruð á öðrum hnetti, svo gaman að skoða síðuna og allar myndirnar. ég fer svo oft inn á síðuna, les og skoða og finnst ég vera að stelast því svo loka ég bara á eftir mér án þess að segja bless en svona er þetta nú bara með okkur.Ég er viss um að mitt líf í tali og myndum er ekki svona líflegt og fjölbreytt og ykkar þó þið séuð þarna á krummaskuðinu en ég í stórborginni á ferð og flugi og bregð mér meira að segja þess á milli út fyrir landsteinana af og til , en ég tek það fram að ég er ekki að kvarta, ég hef það mjög gott og er alsæl með mig og mína : ) haldið áfram á sömu braut elskurnar mínar og hafið það sem best, lovja amma Guðný
Hæ hæ Kolla og co. við erum frekar svekkt að komast ekki inn á myndaalbúmin og svona til að skoða hvað þið eruð myndarleg :) þó svo að við vitum alveg hvað húsfreyjan á bænum heitir :-( En heyrumst fljótlega Ása og co
Hæ hæ. Flott síða hjá ykkur. Gaman að fá að fylgjast með ykkur. Fínt að frétta af okkur. Heyrumst og sjáumst vonandi bráðlega. Kossar og knús til ykkar frá okkur.
Hvað er málið með ALLAN þennan mat alltaf hreint í myndaalbúminu, ertu svo hissa að ég skrifi bara um mat á msn-inu þegar við hittumst þar!?
Sæl fjölskylda. Varð að kvitta fyrir mig, sá síðuna hjá Aðalbjörgu Lillý og Bjarna Þór. Gaman að sjá hvað þið hafið það gott þarna í sveitinni. Og þú Kolla blómstrar sem aldrei fyrr. kveðja Dóra.
Hæ elskurnar. Gunný gaf mér veffangið ykkr í gær og ég er að koma frá þvi að skoða. Æðislegt að sjá hvað þið blómstrið öll og ég sé ekki betur Kolla mín en þú verðir fljótlega komin í stjórn kvennfélagsins fyrst þú ert búin að sitja sameiningarfund þarna, meira en ég get sagt úr minni sveit enda komin til ára minna og því fylgir oft "leti" kossaar og knús frá frænku úr sveitinni.
Kæru hjon!
Mikid er thetta allt glæsilegt hjå ykkur, thad er ædislegt ad thi buid i sveit. Steini er ju mesti sveitastråkur sem eg thekki (ad sjålfum mer medtøldum)
Og til hamingju med olettuna.
Bestu kvedjur til ykkar allra.
Jakob
Sæl öll, rakst á þessa síðu í gegnum heimasíðuna hennar Eyrúnar frænku.
Innilega til hamingju með brúðkaup & bumbu!
Hafið það sem allra best!
Auður Lilja ( skólasystir Steina úr Menntaskólanum á Ísafirði)