

Komið þið sæl,mikið er jólalegt hjá ykkur,hér höfum við ljósin,í gluggum og görðum,því miður vantar snjóinn.Alltaf er gaman að líta við í smá heimsókn,þó á vefnum sé.Vonandi fæðist nýtt frændsystkyni í þessari viku,gangi ykkur vel.Kveðja Gunný frænka.
Við erum að tala um það að ég kem hingað til að minna mig á að desember er ekki bara mánuður prófa, stress og verslunarmiðstöðva. Þarna í Órafjarilíu geymið þið svo sannalega jólaandann.
VÁÁÁÁ JÓLoooóoó dugleg eru þið en það þarf auðvitað að starta þessu aðeins fyrr hjá ykkur áður en bumban springur.... Og svo sá ég sem gaf mér mikla gleði flotta rauða vigkt!!! HEYRRU ég var að keupa svona á laugardaginn og nota í fyrsta skipti í gær!!!! PÆLDU og rauða í þokkabót vegna þess að jólagjöfin í ár till kallsins er svona espressovél eins og er líka Þarna á borðinu!!!!!!!!!!!!!! HALLÓÓÓ við erum svo líkar hahha
Gangi ykkur vel dúllur
MUNA að anda innnnn úúúúut og svoleiðis
LOVE U
ÓLÖF
Halló sniðuga fjölskylda! Langaði bara að kvitta fyrir innlitið á þessa endalaust sniðugu og flottu já og skemmtilegu heimasíðu. Gleymdi mér hálfa kvöldstund hér inni því það var svo margt skemmtilegt að skoða og ekki má gleyma skemmtilegum frásögnum - greinilega sniðug húsfrú sem sér um þessa síðu. Fylgist annars með skrifum hennar á Frostaskjólinu og síðu líftæknihjúkkunnar :) Kveðjur frá Þingeyri Þórey
Takk fyrir fallegar myndir, þetta kemur manni í jólaskap. Kjell varð alveg veikur þegar hann sá skíðamyndirnar af ykkur.
Kveðja
Rósa
Hæ hæ við erum alltaf að fylgjast með ykkur og bíðum spennt eftir litla barninu :) hafið það gott, kv. Ása og co.
Hæbb, við þurfum hjálp við að gera svona flottar síður eins og þú ert með fyrir litlu dýrin og fínu týpurnar.......
Knús og hafðu það brill í baðinu
Hæ hæ, gaman að fá innsýn í lífið fyrir norðan. Öfunda ykkur af öllum þessum snjó og vetrarfíling, þetta er svolítið jólalegra en rigningin og svartnættið í sin city....
kveðja (með smá jóla- fyrir framan...; )
Olga
V'A'A hvað ég er orðin spennt!!!!!!
Ji hvað það er flott hjá ykkur og ekki laust við að maður komist sko alveg í jólafílinginn, allavega væri ég alveg til í að fá myndina af trénu með seríunni á desktoppinn bara svona til að minna mig á að það eru að koma jól.....en ættir að fá bomburnar í vikulokin mín kæra. Knús og klem frá Bifró
Hæ elsku Kolla mín, og takk fyrir síðast gaman að fá að sjá ykkur Mána, lítur svo rosalega vel út frænka mín :) mikið er ég farin að hlakka til að sjá litla krílið! Farið að styttast svo í þetta allt saman,mikið líður tíminn hratt, bíð bara spennt farið vel með ykkur knús og þúsund kossar Agnes frænka
Hahaha....takk Kolla mín takk.....!
Hvar fenguð þið eiginlega allan þennan snjó ???? Viljið þið gjöra svo vel að senda eitthvað af honum í pósti til Þórshafnar....
Kv. Handanað
Pálína mín. Þú getur þetta allt kella mín. Skítt með það þó garnið flækist, getur bara skellt því á striga, málað yfir og selt það sem verk!!! Það má baka vandræði, einhver þarf jú að stofna til þeirra og svo þetta með sönginn, rétt makeup og skæs föt gera fullt fyrir ljósmynd (þú vilt ekki heyra mig í Singstar belive you me)
Upplyftingarkveðja Kolla
Þú ert alveg til fyrirmyndar, prjónar, bakar, syngur, vaskar upp. Maður ætti kannski að gera slíkt hið sama, nema að ég myndi flækja mig í garninu, baksturinn færi með geðheilsuna, söngur fer mér bara ekki en ég get vaskað upp...heppin!
Elsku snúlla eða bumbukelling....bumban er orðin STÓÓÓÓR!!!
ég er byrjuð að verða spennt.....sit hér að drukkna í vinnu....vá hvað ég hlakka til jólafrís.......OMG.
OH hey væriru til í að senda mér uppskrift að svona kökum mér langar í eina NÚNA!!!!
Love u
Good luck
ÓLÖF
Já þetta voru tromptoppar, örugglega svipað og þú bakaðir, en Kristján Uni komst í boxið og hristi það þannig að allar kökurnar eru í henglum. Nú eru kökuboxin komin upp á skáp þar sem enginn nær í þau. Ekki einu sinni ég.. :(
Takk fyrir hrósið Katrín en nei ég bjó ekki til uppskriftina þó svo ég fegin vildi getað verið svo klár. Svo var það eiginlega þér að kenna að ég fór að baka því kökurnar þínar voru svo freistandi að ég bara varð að baka líka :o)
Váháhá hvað þetta er flott pils sem þú prjónaðir! Ekki bjóstu til uppskriftina líka?
Og hey, ég hélt að þú ættir að vera að slappa af.. ekki baka og stússast kona! En mmm.. girnilegar kökur:)
Maður bíður bara eftir bumbumyndum dagsins;)
Kv. Katrín
Sæl verið þið,sveitafólk,vona að Rvk.dvölin hafi verið ánægjuleg,ferðin mín var fín.Kom heim í gær.Varð að kíkja í smáheimsókn.Kveðja Gunný frænka
Úff hvað ég vona að ég líti svona vel út á mínum 37 vikum. Ég verð bara að krossleggja fingur það er víst bannað að krossleggja fætur en þú lítur rosa vel út vinkona. Knús frá Bifröst
Hæ, hæ...og takk kærlega fyrir frábæra köku á sunnudaginn mmmmm..... Það var frábært að kíkja í heimsókn til ykkar, og ekki nema tveir tímar á milli svona á veturnar í ágætu færi ;O)
Bestu kveðjur frá Þórshöfn.
Jemin það fer bara að koma að þessu vina mín. Úff hvað ég hlakka til að fylgjast með þessu. Þú lítur voðalega vel út ;)
Bið að heilsa í bæinn.
Siggs
Hæ þreytta bumbulína.......nú styttist heldur betur í stóru stundina..................bíð spennt!
Góður síðasti pistill;) Og svakalega ertu orðin myndarleg! Þú ert bara á lokasprettinum er það ekki??
En Kolla mín, nú er bara aldeilis farið að styttast í myndir.. við erum allavega orðin nettengd og svona. Myndavélin brotnaði reyndar aðeins og skrapp suður í upplyftingu, en kemur nú vonandi fljótlega aftur heim. Af þessum sökum eigum við engar nýjar myndir.. Já mér finnst það líka fúlt. Eeeen. Kannski ég setjist niður í kvöld og renni þeim myndum inn sem ég hef til reiðu;) Þær eru samt ekki margar!
Kv. Katrín
P.S. Koma nýjar bumbulíusarmyndir á morgun?
Bara að kíkja...en það er nátturulega ekkert að gerast þarna í sveitinni...! Nei nei...allt í lagi...bíddu bara þangað til ég kíki næst
Elsku Kolla mín rosalega er gaman að heyra í þér ég sá það að þíð eruð búin að gifta ykkur og að það sé kríli á leiðinni, en gaman og hjartanlega til hamingju með allt. Máni er orðinn rosa stór og alltaf jafn flottur. Kossar og knús frá spáni.
Ég er svo hamingjusöm,....eftir að hafa lent í einelti á ekki verri stað en í Kennaraháskólanum og finna ekkert stæði við götuna í kvöld kíki ég á síðuna og Kolbrún er komin með MÁLBAND þvílík endalaus gleði, ég sofna brosandi í kvöld.
WOW BUMBA STÓRA....það stækkar allt á þessum bæ sýnist mér!!!!
Alltaf svo yndislegt að kíkja í heimsókn a heimasíðuna....takk fyrir pastað!!
KOSSSSSSS
ÓLÖF
p.s. klappaðu bumbunni fyrir mig!!
Komið þið sæl öll,var að skoða okt.myndir,alltaf sami myndarskapurinn,og fengið vannt fólk ú bænum til aðsoðar,vona að allt annað sé í sama gír,var í köben um helgina, í næstum sumarveðri,annars er allt gott af mér og mínum,við Doddi erum að fara í síðbúið sumarfrí,3 vikur. svo eitthvað verður lítið um rjúpnaveiði í ár,vona samt að við fáum nóg í jólamatinn,frá einhverjum góðhjörtuðum.......,kveðja Gunný