

Almáttugur hvað þú ert rík Kolla.....æðislegir strákar.
Var að skoða aftur og guð hvað hann er sætur maður bara fær ég bara veit ekki hvað.....
kv Jóna
Jemin hvað maður er fallegur, og Máni að standa sig í bróðurhlutverkinu ;)
Innilega til hamingju með nýjasta meðlimin kæra fjölskylda, og ég hlakka til að sjá ykkur.
Kveðja,
Sigga
Vá hvað hann er æðislegur.. Já flottustu bræður ever,,,est
Til lukkur með þetta allt saman.
Ætla að hringja og bjóða mömmu í kaffi og myndasýningu, hún er svo spennt að sjá prinsinn.
Knús
Rósa og Hafdís Rún
Þið eruð ekkert smá flott og Fróði er ekkert smá sætur. Kári var farin að segja æææææææ og óóóó með hverri mynd eins og mamma sín. Alltaf þegar Máni var með á mynd var það alltaf Mámi...Geðveikt flott pilsið greinilega gert af fagmanneskju í saumum......Elsku elsku elsku stóra fjölskylda hlakka til að sjá ykkur kær kveðja Jóna, Eyþór og Kári
Kæra fjölskylda. Til lukku með nýja myndarlega meðliminn, hann er ótrúlega myndarlegur og Fróðalegur. Með kveðju, Bryndís.
Jæja komnar myndir og ég alveg að springa þetta er svo skemmtilegt. Ég er búin að kíkja á síðuna á korters fresti frá því í gær. Fróði er æðislegur strákur og mér finnst þú líta svo vel út elsku Kolla + þú ert stórglæsileg í pilsinu :-) Hlakka til að sjá fleiri myndir. Hafið það rosalega gott, kossar og knús, Katrín Ósk
Til hamingju með prinsinn.
Hann er ótruleg sætur....
Kvedja Norég
maður þarf nú ekki að vera óléttur til að vökna um augun.........
Elsku Fróði litli og fjölskylda mikið ertu nú fínn og fallegur Máni segir líka að það sértu hlakka til að sjá þig kíki til þín fljótlega ástarkveðja Gulla
Ef þetta er barasta ekki sætasti strákurinn. Einu orðin sem komu upp í hugann eru OMG þvílík dúlla, svo mikið krútt og ekki laust við að maður hafi aðeins vöknað um augun eins og ólettum konum sæmir :o)....og Kolla mín, alveg æðislegt pils sem þú ert í við skírnina. Ég hlakka ekkert smá til að hitta ykkur og knúsa í bak og fyrir og máta þennan kjúttilega strák. Stórt knús er ekki nægilega stórt orð yfir knúsið sem við sendum að vestan. Love you guys....
Jiii minn hvað hann Fróði er flottur strákur:) Mér sýnist hann bara vera alveg eins og pabbinn! Til hamingju með allt saman:)
Katrín og co
ææææ, hann er æði, vantar reyndar andlitsmynd af honum (kvart kvart;o) Hann er með svo stóra fætur! Gott að ég keypti stóra sokka......koss og knús, Ösp
Elsku Kolla og Stein og Máni til hamingju með drenginn og ekki finnst mér nafn giftin slæm, var búin að spyrja tvíburamömmuna ef þetta yrðu tveir strákar um nöfnin Finnur og Fróði.
Kveðjur héðan úr snóleysinu að vestan.
Helga mamma og Co.
Góða kvöldið!
Jæja nú eru prófin búin og þá verður maður að skrifa smá.
Við Hafdís Rún erum nú bara að forvitnast hvort það væru komnar myndir að bræðrunum.....
Hlakkar rosalega til að sjá ykkur um jólin.
Hafið það gott í kaupstaðnum.
Knús
Rósa og co
Elsku vinir
Innilega til hamingju með prinsinn og fallega nafnið. Hlökkum mikið til að sjá myndir en samt engin pressa. Knús og milljón kossar til viðbótar að vestan.
Eyrún, Torfi, Birta María og fjölbýlið.... :o)
Elsku Kolla, Steini og Bergvin Máni.
Innilega til hamingju með Prinsinn og fallega nafið hans ""Fróði "
Æðislega sætt nafn á lítinn sveita snáða.
Gangi ykkur öllum sem best.
Knús og klemm frá okkur í Mosó
Rósa, Einar, Hafdís Rún og Bjarki Dagur.
P.S Bjarki Dagur spurði " Er Kolla búin að fæða bróðurinn":-Þ
Til hamingju með prinsinn... hlökkum til að sjá myndir og fá pennan heim :) Kveðjur að vestan Þórey
Upps ýtti aðeins of snemma á senda ;) En vildi bara segja innilega til hamingju með prinsinn, og gaman væri að sjá myndir... Kveðja Urður
Elsku Kolla, Steini og Máni
Innilega til hamingju með litla prinsinn. Já við sem vorum búin að ákveða að þetta yrði lítil prinsessa og næstum búin að kaupa bleikan kjól!! Við bíðum spennt eftir því að sjá fyrstu myndir af gullmolanum ykkar:)
Kær kveðja úr jólaösinni í Reykjavík
Helga, Sverrir og Júlía Rósa
hæ hæ elsku Kolla og fjölskylda til hamingju með litla prinsinn, hafið það æðislega gott með litla prinsinn á jólunum, kveðja Ása og fjölskylda
Kæra Kolla, Steini og Máni!
Til hamingju með soninn og bróðurinn!
Við fylgjumst með myndaalbúminu, en við sjáum ykkur kannski öll um áramótin fyrir sunnan.
Bestu kveðjur að vestan.
Elsku Kolla, Steini og Máni, innilega til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn (ÁsBirgir). Hlökkum til að sjá myndir af prinsinum og heyra alla söguna ;O) ;O)
Kveðja frá Þórshöfn.
Elsku Kolla,Steini,Máni innilega til hamingju með litla prinsinn,mikið hlakka ég til að sjá ykkur sko 40+2 flott, enda frétti ég að það var búið að prófa öll trixin:) jæja gangi ykkur vel elskurnar mínar, hlakka til að fá sjá myndir af nýja fjölskyldumeðlimnum, þúsund kossar og knúskveðjur Agnes,Sveinbjörn og Tanja Rut
TIL HAMINGJU...þvílík hamingja!!
vei vei vei
verð að vera fyrsta montna "frænkan" til að bjóða litla Hymer junior velkominn í heiminn!!! Húrra, húrra, húrra!
Elsku Kolla, Steini og Máni stóri bróðir innilega til hamingju með prinsinn, og máni þú verður rosalegur stóri bróðir ef marka má taktana sem þú sýndir í heimsókninni hjá mér;o)
Kveðja, Ösp, Dóri, Dagur Sölvi, Viktor Logi og Brynjar Jökull
Góða kvöldið kæru sveitungar.
Ég er bara rétt að segja hæ og vá hvað það er fínt já ykkur.
Lofa að skrifa á morgun þegar síðasta prófið er yfirstaðið og við getum farið að jólast.
Gangi þér vel elsku Kolla mín þegar þú brunar í kaupstaðinn
Spurning hvort þú hefðir ekki bara átta að fara í jólatrésleiðanurinn mikla:-))
Jólaprófs stress kveðja
Rósa og co
Hæ elskurnar ! Váááhhh hvað allt er eitthvað öðruvísi hjá ykkur en okkur hinum, ég segi það enn og aftur, það er eins og þið séuð á annari plánetu. þið eruð kannski bara öðru vísi en við hin, þið kunnið svo vel að nota það sem þið hafið, það er yndislegt að fylgjast með ykkur ég er alltaf að kíkja inn á síðuna en fer svo þeyjandi út af henni aftur. Ég vona nú að ömmukrílið mitt fari nú að sjá dagsins ljós það stendur svo vel á hjá mér úr þessu að koma, svo er ég líka svo spennt...............hafið það sem. lovja Mamma og Finnur
Sæl elsku frænka,er bara að tékka hvort að það sé ekki allt í gúddí?
Ertu farin að fá einhverja verki? ertu ekki sett 9des?ég átti nú ekki von á því að eiga sjálf á settum degi +1, margir héldu að ég myndi ganga fram yfir( 42 vikur )vonandi kemur þetta fljótlega:) Þetta er svo yndislegt:) Hér er allt gott að frétta Tanja stækkar og stækkar og er farin að frekjast svolítið, þetta er ákveðin lítil dama sem við eigum,svo er hún farin að hjala heil ósköp.Hún er ennþá svo lík pabba sínum margir svo undrandi á þessu, enn þeð blá augu og skolhærð, alveg ótrúlegt!! Jæja vildi bara forvitnast aðeins,bið að heilsa öllum knús+kossar Agnes&co