Hymerfjölskyldan
 

Gestabók

Eyrún Harpa

Það er svo gaman að kíkja hérna inn, því þú ert svo dugleg að setja inn myndir að manni finnst maður næstum vera á staðnum. Knús fallega familía og bestu kveðjur að vestan

Skrifağ şann 1. April 2006 11:20.

Rósa-

Hæ elskurnar.
Er víst að horfa á Desperate house wife, en alveg að gleyma mér í ykkur.. Svo flottat myndir og vetrarmynd ársins er myndin af Mána með EKTa víkingasverð! Svo flottur.
Gaman að sjá svo eina mynd af húsfreyjunni fínu.
Hafið það gott áfram.

Knús frá okku í hinni sveitinni
Rósa sósa og co

Skrifağ şann 1. April 2006 00:52.

Sigga P.

Ohh alltaf gaman að fá svona póstgjafir - ekki það að ég lendi oft í því ... en man þegar ég bjó í útlöndum þá var þetta aðal sportið. Og Kolla mín þú býrð nú næstum því í útlöndum... ;)

Annars lítið að frétta, er að myglast í verkefnavinnu á hlöðunni nýbúin að lufsasta í tíma sem var aflýst - pirrandi ....
Kveðja,
Sigga & bumbubúinn

Skrifağ şann 31. March 2006 11:38.

Eyrún Harpa

Knús frá okkur, hef eitthvað svo lítið að segja, skoðaði bara myndirnar og naut þess, alltaf gaman að "skjá" ykkur

Skrifağ şann 28. March 2006 23:28.

Ösp

sammála síðasta kvittara;o)

Kveðja Ösp

Skrifağ şann 27. March 2006 17:29.

Jóna

Þið eruð svo flott og sæt. Sakna ykkar kv Jóna

Skrifağ şann 27. March 2006 15:18.

Harpa Dögg

Frábært, okkur líst mjög vel á næstu helgi. Bjallið bara þegar þið eruð ákveðin svo að kakan sé á borðum á réttum tíma. Hlökkum mikið til að sjá ykkur.
Kveðja austanað.

Skrifağ şann 26. March 2006 22:02.

Harpa Dögg

Jæja, þá erum við komin heim frá Köben og húsmóðirin búin að skreppa aftur suður í smá ferð svo nú setjum við bara í köku og bíðum eftir ykkur....hehehe.... Annars gaman að sjá hvað Fróði er sprækur og duglegur.
Bestu kveðjur úr næstu sveit,
Harpa Dögg, Bárður og Jóhannes Karl.

Skrifağ şann 25. March 2006 20:18.

Eyrún Harpa

Jóla hvað......grunar að gardínurnar á einni myndinni hafi verið helst til áberandi en ég er búin að skipta..promise, komin með köflóttar og flottar og fékk bestu ráðin frá ömmu um hvernig saumaskapurinn átti að vera.....
Æðislegar myndir af ömmu og Fróða,og Fróði minn um að gera að rífast í Hómer.....
Knús að vestan

Skrifağ şann 25. March 2006 15:10.

Eyrún Harpa

Æðislegt myndbandið af Fróða í baði og að ég tali nú ekki um svipinn í restina, ekkert smá hissa á þessu öllu saman.
Knús úr flensubælinu

Skrifağ şann 23. March 2006 21:49.

Jóna

Bara kíkja, kv jóna

Skrifağ şann 22. March 2006 19:35.

amma Guðný

Halló elsku GULLMOLARNIR mínir , það er alltaf jafn gaman að lesa um ykkur,ef þið bara vissuð hvað ég kíki oft inn á síðuna og finnst ég hálfpartinn vera að stelast því ég gef mér ekki tíma til að kvitta,er ekki beint þessi mail-týpa, ég bara mæti á svæðið, það dugar mér betur og nú get ég farið að telja í klukkustundum þangað til ég kem, ég hlakka svo til að sjá ykkur og eiga með ykkur kósi kvöld á föstudaginn heyrumst seinnipartinn í dag ástarkveðjur mamma og Finnur

Skrifağ şann 22. March 2006 09:39.

Eyrún Harpa

Sjóskóflur og skeinivél, alveg tímalaus gullkorn. Máni er bara snillingur. Knús og klem frá okkur og Birtu. Hún hlakkar mikið til að koma í sveitina á trampólínið....

Skrifağ şann 21. March 2006 14:57.

Ásdís

Halló.
Við ætlum að skella okkur til Köben um páskana. Við förum út á skírdag (13. apríl) og komum heim 18. apríl. Ég vona að þið verðið það snemma á ferðinni í bænum að ég nái að hitta á þig áður en við förum út.
Kveðja, Ásdís

Skrifağ şann 18. March 2006 00:07.

Ösp kvittari

hellú, best að kvitta, er verið að baka pizzu? spennan magnast, hver dettur út í kvöld??!!!! Spennan hefur alldrei verið meiri......eða þannig sko;o)

Skrifağ şann 17. March 2006 17:23.

Gunný

Komið þið sæl,rétt leit við,leitt var að missa af ykkur er þið voruð í borginni.Við höfum það gott.Kveðja Gunný

Skrifağ şann 16. March 2006 19:23.

Þórey Sjöfn

Takk... og vá hvað sumir eru orðnir stórir - langir - flottir - mannaralegir og bara æðislega krúttlegir :) Geggjað lookið á síðunni ykkar - kveðjur í sæluna - erum einmitt að fara í höfuðborgina á morgun og erum bara strax farin að hlakka til að koma heim!!! XXX Þórey

Skrifağ şann 13. March 2006 21:03.

Þórey Sjöfn

Ohhh langt síðan við höfum kíkt á ykkur og nú var svo góður tími til að skoða... en þá höfum við ekkert leyniorð :( Megum við vera með og fá að skoða þessa flottu síðu?!? PLÍS Kveðjur af eyrinni fögru fyrir vestan Þórey

Skrifağ şann 13. March 2006 13:49.

Ásdís

Þetta er Ásdís aftur. Fattaði ekki að lesa smáa letrið en er nú komin inn í myndaalbúmið. Lykilorðið á okkar síðu er nafnið á bænum sem Finnur er frá.

Skrifağ şann 10. March 2006 16:08.

Ásdís Arnalds

Hæ Kolla mín.
Áslaug sagði mér frá þessari síðu. Til hamingju með litla prinsinn og brúðkaupið í sumar. Mér er oft hugsað til þín og það væri rosalega gaman að hittast ef þú átt einhvern tíma leið í bæinn. Viltu senda mér lykilorð svo ég geti skoðað myndirnar.
Kveðja, Ásdís

Skrifağ şann 10. March 2006 16:04.

Rósa G

hæ hæ
Má til með að láta þig vita að því Kolla mín að við erum LOKSINS komin með nýja heimasíðu..jíbíiiiiii.
Erum samt ennþá að setja inn myndir og standsetja.
En kíkjið endilega.
Slóðinn er http://www.barnanet.is/hafdisrunogbjarkidagur/?sida=forsida

Knús og hafið það gott í borginni.
Rósa og co

Skrifağ şann 7. March 2006 21:34.

Ösp

Heilnudd, smeilnudd segi ég nú bara....en gott að þetta var samt gott;o)
Sjáums svo á föst, ef ekki fyrr í búðarrápi
Kveðja Öspogallirhinir

Skrifağ şann 6. March 2006 18:20.

Eyrún Harpa

Veit þú ert í borginni og því ekki mikið um tjatt hérna inni en ég hlakka bara svo mikið til að sjá ykkur í borginn eftir nokkra daga að ég barasta varð að koma við og kvitta. Knús og kossar að vestan

Skrifağ şann 3. March 2006 22:40.

Helga amma

Kolla mín takk fyrir orðið það er gaman að geta séð hvernig ykkur líður og gengur .
Kv.frá Helgu ömmu

Skrifağ şann 1. March 2006 23:27.

Sigga P.

Já ég komst sko inn á síðuna, hjúkket - því að ég hefði ekki viljað missa af snilldar video-i sem sýnir Fróða í baði. Hann er alveg vel virkur eins og hann á ættir til ;) Osso sætur.
Hlakka til að heyra í þér hérna í geðveikinni.
Kv.
Sigga P.

Skrifağ şann 28. February 2006 17:46.

Helga amma

já Kolla mig langar rosalega til þess að sjá hvernig ykkur gengur en ég veit ekki hvað systir þín heitir, og ég setti coment hjá Eyrúnu til þín.
Kv.Helga amma

Skrifağ şann 28. February 2006 10:42.

jona

kvitti kvitti kvitt. hlakka alveg hryllilega mikið til að sjá ykkur.....

Skrifağ şann 27. February 2006 19:06.

Eyrún Harpa

Maður verður að kvitta fyrir augnakonfektinu í albúminu líka. Bara æðislegar myndir.
Love you guys

Skrifağ şann 27. February 2006 18:26.

Ösp

Ooooooo, þið eruð svo yndislega sveitó! Og Fróði ótrúlega duglegur! Hlakka mest til að fá ykkur í humarpizzu, er föstudagurinn upptekinn?

Skrifağ şann 26. February 2006 17:36.

Jóhanna, Sylvía Rós og Bríet Eva

Vá, hvað mamma ykkur er búin að gera flottan bakgrunn fyrir síðuna! Ég er því miður ekki svona klár...*Abbó* :D

Bið að heilsa mömmu ;)
Kveðja, Jóhanna og skotturnar

Skrifağ şann 23. February 2006 12:14.

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33