

Aflinn verður alltaf meiri og meiri, eitt stykki í fyrra og svo þrjú stykki núna, ef þetta heldur svona áfram má villibráðarhlaðborð Perlunnar fara að vara sig
Knús og kossar að vestan
Til hamingju með nýja jeppann, geggjað flottur og á örugglega eftir að virka vel.
SMúss frá okkur
Hæ hæ kæra fjölskylda og takk fyrir síðast. Ógleymanlegir dagar. Sólbruninn er rétt að byrja að hjaðna núna...
Skemmtið ykkur vel fyrir vestan.
Jakob
p.s Er fólk eitthvað á leið til Norge í bráð?
Hæ hæ sveitafjölskylda, mikið rosalega er alltaf gaman að skoða myndirnar af ykkur, hún mamma ykkar er svo dugleg að setja alltaf inn nýjar myndir :o) Vá hvað hann Fróði er orðinn stór, þau stækka víst þessar elskur, Kolla mín kannski það sýni að við séum eitthvað að eldast ;o)
Kveðja Ása og co
Hæ hæ, einn dóninn ákvað að kvitta fyrir komu! Ofsa gaman að kíkja á ykkur. Það er nú mikill svipur með þeim bræðrum en á einni mynd er Fróði nákvæmlega eins og Máni! Mikið sætir bræður. Rosalega finnst mér flott myndin þar sem húsfreyjan og Fróði sitja í grasinu. Legg til að hún verði sett í ramma:-) Ástarkveðjur til ykkar í sveitinni, Katrín Ósk
og Máni innilega til hamingju með nýja litla bróðir!!
já komin tími að skella nöfnunum í gestabókina, það er aldeilis að tennurnar spretta í sveitaloftinu!
Kveðja, Viktor Logi forsíðufyrirsæta og Brynjar Jökull, hin forsíðufyrirsætan:) og mamma
Halló allir!
Bara rétt að kvitta fyrir okkur. Skemmtum okkur við að skoða myndir af ykkur og lesa hvað þið eruð að bralla á hverjum degi:) Hann Fróði verður nú bara sætari með hverjum deginum, svei mér þá... Okkur finnst hann vera alveg eins og bróðir sinn. Þú átt sko flotta stráka Kolla mín.
Látum þig vita á morgun um leið og litla skvísa hefur fengið nafn.
Kveðja úr stórborginni
Helga, Sverrir, Júlía Rósa og litli kjúlli(a.m.k.ennþá)
Halló fjölskylda.
Mikið er nú hann Fróði orðinn mannalegur svo ég tali nú ekki um myndarlegur. Það er nú meira hvað hann er með falleg augu drengurinn. Máni er nú sko sætur líka.
Helga Lind kemur kannski til greina sem framtíðar eiginkona? Ég hef verið að sýna henni myndir af Fróða og henni líst bara vel á.
Jæja, annars bara að kvitta :)
Kv. Sigga og Helga Lind
Hlakka til að sjá ykkur fyrir vestan, sýnist samt að ég verði ekki heima en þið hittið líklegast restina af familíunni
knús að vestan
Hæ elsurnar okkar á HJARA...
Ekkert smá flottar myndirnar úr ferðalaginu þínu Máni. Heppinn að fá að fara með ömmu. Heldurbetur búin að fara víða um í sumar. Knús til þín göngugarpur.
Kveðja frá okkur að sunnan
Rósa sósa frænka og co
greinilegt að maður er aftur farinn að sitja fyrir framan tölvuna, maður á að vera að læra en það er miklu skemmtilegra að kíkja í heimsókn
Knús og kossar að vestan
Elsku Kolla.. Ég bara bíð og bíð herna i Noreg eftir ykkur...Það er því svo gott að ég get kíkt á heimasiðan ykkar og fylgst með ykkur.....Ég vonar það gengur vél með ykkur ( Litur þannig út). Fróði er nú bara sætastur. Það er nú samt bara sjálfsagt með svona sæt mömmu.....Saknar þín Kolla mín og hlakkar til að þú þekur með þér fjöldskilðuna þina til Nóregs. Knús Tone
Höfum ekkert merkilegt að segja en kvittum því það er bara dónó að mæta í heimsóknog steinþegja
Knús að vestan
Sæl,öll,þarna í sveitinni.Nú þykir mér þú vera orðin norðlensk Kolla mín,það "punkterar"hjá þér.Ekta norðlenskt.Hér er allt í góðu,vorum að byrja í smá fríi,og komin með kamper á bílinn,hlökkum til að fara að ferðast,förum allavega í veiði. Kveðja Gunný
Hæ Kolla mín:) Takk fyrir allar hlýju kveðjurnar þínar. Það er svo gott að vita a.m.k. einhver er að fylgjast með okkur. Við sjáum að Fróði heldur áfram að stækka og dafna. Hann á sko eftir að bræða ófá hjörtun í framtíðinni:) Algjört sjarmatröll...
Kveðja Helga, Júlía Rósa og litla skvís
Eins gott að varadekkjamálin verði í góðum gír áður en þið mætið vestur........hér er nefnilega nóg af möl fyrir þá sem vilja. Flottar myndir af ykkur og náttúrulega okkur líka
Knús í sveitina og kossar með
Ohh hún mamma þín er svo dugleg að setja inn myndir og dúllast í síðunni þinni. Kysstu hana einum blautum fyrir :)
Annars bara kvitt, gaman að sjá góða veðrið í sveitinni, ekki fyrir því að fara hérna í bænum. Njótið vel ;)
Kolla; þú kíkir í næstu suðurferð, alveg kominn tími á hitting.
Kv. Sigga og Helga Lind.
Taka 2
Vei vei loksins komst ég inn á þessa síðu!!!! hihihi mundi aldrei leyninúmerið!!
Gaman að sjá allar nýju myndirnar og KANARÍ....Guð hvað ég er ánægð að hafa farið í maí...eftir svona sumar á íslandi!!!
KOSSSS
Ó
Hæ Kolla!
Mér varð hugsað til þín þegar við vorum fyrir norðan, en ég var búin að lesa það á síðunni hjá þér að þið væruð á leið til Kanarí þannig að ég vissi að það þýddi ekkert að vera að koma við hjá þér. Ég sé að þið hafið haft það gott úti. Við gáfumst líka upp á íslenska sumrinu og skelltum okkur til Búlgaríu.
Kveðja, Ásdís
hæ, hó í sólina og mannfjöldann. Því miður munum við ekki vera heima hvorugan daginn sem þið verðið á ferðinni þar sem við ætlum að skella okkur til borgarinnar á sunnudaginn og vera í heila viku í ómenningunni. En við finnum pottþétt annan og betri tíma til að hittast.
Bestu sólarkveðjur handanað.
hæ Kolla húsfrú og Co. Ég er ekki hissa þó að dáðst hafi verið að Fróða á Kan. Ó mæ god, þvílíkt bjútí. Kem í klípi í hann þegar ég vitja læknisins á Húsavík í haust. Haldið þið bara áfram að bera á ykkur sólarvörn. Kveðja úr rigningunni að sunnan KÓG
Komið þið sæl,elskurnar,takk fyrir ánægjulagan dag/kvöld,19 júlí,gaman hvað þú ert dugleg að hlaða inn myndum Kolla mín,vona að versl.mannahelgin verði góð hjá ykkur, kveðja að sunnan. Gunný frænka.
Vá ekkert smá flottur að standa bara upp. Við kíkjum í kaffi um versló, megum ekki klikka á því þar sem það verður svona stutt á milli okkar.
Knús að vestan
hæ hó.
Takk fyrir kortið. Ohhh hvað okkur er farið að hlakka til.
Kveðja frá okkur í Mosó
Gaman að sjá FULLT af myndum, ég elska hvað þú er framkvæmdasöm Kolla mín :)
Hæ, hó..... Kvitt, kvitt. Lofum að stoppa lengur næst.
Kveðja frá Þórshöfn.
Hó hó... Við erum þá NO. 2. En spurningin er hvort The Hymer hafi barasta framlengt???? Þangað til við mætum á svæðið??(HOPE). Hlökkum líka mikið til að sjá myndir og heyra frá ykkur elsku súkkulaðimolar.
Smúss
Rósa G og co
ætlaði bara að vera fyrst til að segja velkomin heim! hlakka til að sjá myndir:))
Kveðja, Ösp og grísir