

Hæ!
Alltaf gaman að skoða myndir og fylgjast með ykkur.
Ég veit að ég er ekki nógu dugleg að kvitta en geri það þó stöku sinnum,
Bestu kveðjur að vestan.
Hæ Kolla og co.
Maður skilur nú eftir sig klór hér, takk fyrir að leyfa okkur að kíkja á ykkur.
Knús
Alma
Komið þið sæl norðanbúar,gaman að koma á síðuna ykkar og sjá hvað allt er bjart og yndislegt hjá ykkur, elskurnar.Kveðja af nesinu,Gunný
ELSKURNAR mínar ég gleymi mér við myndirnar og skelli svo bara á eftir mér. Kolla mín þú ert engum lík í þessum efnum, hreint frábær, í fjarlægðinni sérð þú til þess að við sjáum ykkur dafna og strákana vaxa, þú ert með okkur inni á gafli hjá þér og færð svo bara eitt og eitt hæ og bæ fyrir, ég nýt þess svo að kíkja á ykkur og fylgjast með, reyni nú að standa mig betur í að kvitta og skora á ykkur hin sem eruð eins og ég gera slíkt hið sama. hafið það sem best
lovja ammaGuðný
Halló halló kæra fjölskylda, bara að kvitta fyrir innlitið og sjá hvernig þið hafið það í hinni sýslunni ;). Bestu kveðjur til allra
Birna og Stjáni
hæhæ :o)
æðilegt að sjá myndir af ykkur, rosalega er Fróði orðinn stór, hann er líkur pabba sínum!!
ykkur líður greinilega vel þarna,
hafði það sem allra best ;o)
kv. Guðbjörg og co
Þú ert nú meiri sveita rúsínan Fróði, flottur með dýrunum og Bjarki dauðöfundar þig, spurði hvenær við færum eiginlega í sveitina þína?? Þið eigið örugglega eftir að leika saman með öll dýrinn, helgina góðu og þau eldri spila:-)) og gömlu ???gluggglugg:-) Spurning um að láta renna strax í laugina þegar við komum, hún tekur svo mikið..hahahah
Kveðja frá okkur í hinni sveitinni.
Rósa og co
ég er að fara að fá fráhvarfeinkenni.....hvenær kemur nýja tölvan!!!??
Sæl öll.Mikið er yndislegt að geta litið í heimsókn aftur,ég var farin að sakna síðunnar Kolla mín,Kveðja Gunný
Og kvitta náttúrulega aftur fyrir myndunum. Fróði er ekkert smá krúttlegur með eplakinnarnar og guð hvað ég kannast við vídjóspólurnar á gólfinu. Vinsælasta leikfangið hér á bæ er að tætaþær út úr sjónvarpsskápnum og fylgjast með mömmu setja þær inn aftur, þá er hægt að byrja upp á nýtt. Þorrablótið hefur greinilega verið skemmtilegt og flottu kjóllinn sem þú varst í. Bara æði.
Knús og klem frá okkur að vestan, eða bara mér þar sem ég er ALEIN heima
LAngt síðan við höfum kíkt hingað inn. Ekkert smá krúttlegur með allt skyrið. Hér er jógúrt í meira uppáhaldi en skyr en við höfum ekki lagt í að gera svona sjálf dæmi......
Knús og kossar að vestan
Hæ hæ kíkti aðeins við hjá ykkur :-)
Ástarkveðja, Katrín Ósk
sem umboðsmaður vefstjóra síðunnar þarf ég því miður að tilkynna að nokkur bið verður á fréttum úr sveitasælunni. Ástæðan er bilun sveitatölvunnar og verður fjölskyldan því í litlu sambandi við umheiminn fram í næstu viku. Segið svo að það sé bara sæld að búa í sveitinni...
Hvað er þetta á ekkert að fara láta vita af sér, þetta bara gengur ekki þú ert bara farin að verða eins og við hin, löt að skrifa fréttir. Vantar þig kanski síðustjóra...
Kær kveðja.
Óli frændi
Kvitt...kvitt. fyrir ykkur og nýja árinu.
Nýjárs knús og kelmm frá okkur.
Elsku Steini,Kolla, Máni og Fróði.
Óska ykkur gleðilegs árs og alls hins besta í framtíðinni.
Vonandi hafðið þið það gott um áramótin með "Gamla Settinu úr Kópavoginum."
Alltaf gaman að kíkja á síðuna hjá ykkur, því það eru alltaf nýjar myndir af báðum gullmolunum ykkar.
Verið áfram dugleg að taka myndir.
Kveðja úr Garðabænum .
Helga Skúla og Co.
Bara að kvitta fyrir innlitið, ég veit að við erum ekki þau duglegustu við það ;O) Vonum að þið eigið frábær áramót með fullt af flugeldum og vonandi sjáumst við sem fyrst.
Bestu kveðjur hinumegin frá,
Harpa og stórfjölskyldan !!!!!
Gleðileg jól Kolla og co
Vonandi sjáumst við á nýju ári og þá helst í Ásbyrgi (læt ekki bóndan svíkja mig um ferð í Ásbyrgi tvö sumur í röð!)
Kveðja, Jóhanna og familí
Halló Fróði og þið öll. Bara að kvitta fyrir innlitið, það var gaman að sjá ykkur aðeins um helgina, sjáumst vonandi sem fyrst aftur, bestu óskir um gleðileg jól
kveðja Birna og co Laugabrekku
Dí duglega fólk......
knús og kossar úr dembunni
Jemin jemin hvað þessi litli strákur er FALLEGUR! Þessi augu...
Til lukku með fyrsta afmælisdaginn kæra fjölskylda. Þetta er ótrúlega fljótt að líða.
Annars kveðja úr prófaleiðindum og geðveiki.
Sigga P.
Til hamingju með stóra litla strákinn ykkar. Flottastur með þennan krúttlega stút. Alltaf jafn gaman að kíkja hingað inn, tekur bara svo langan tíma því það er svo gaman að skoða allt, hugmyndaflugið í myndatökum er ótrúlegt - greinilega alltaf með hana á lofti. Segjum annar gleðileg jól héðan af Hlíðargötunni á Þingeyri og vonum að þið eigið eftir að eiga góða daga yfir hátíðina. Kveðjur og kossar Þórey og co
Fimleikastrákur með kyssilegar varir.....brilljant myndir
Sæl þið öll þarna á norðvesturhorninu.
Mig langaði að senda honum Fróða (og ykkur öllum) okkar bestu hamingjuóskir í tilefni 1. afmælisdagsins þótt nokkrir dagar séu liðnir frá þeim stóra atburði.
Bestu kveðjur frá okkur í Lyngholti.
Bara rétt að kvitta um leið og við ath hvort það séu komnar nýjar myndir.híhíhahahahha
Takk fyrir kvittið og kveðjuna, reynum að vera í beinni næsta sunnudag.
Kveðja út höfðanum
Kíktum á afmælismyndir. Knús og klem
Elsku Fróði frændi.
Innilegar hamingju óskir með afmælisdaginn, sáum að kveðjan okkar fór ekki inn í gær þegar við kíktum á myndirnar áðan?? En við hefðum sko viljað vera í kræsingunum hjá ykkur, en hugsuðum til ykkar.
Knús og kossar
Frá okkur öllum
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ, stóri flotti strákur:)
'Eg var svo upptekin að háma í mig kræsingum á jólahlaðborðinu í gær að ég gleymdi að skella inn kveðju á réttum degi..hehehe
Þú ert ekkert smá flottur með kórónuna:D
Kveðja, allir á Hlíðarveginum
Hæ kæru vinir og takk fyrir kveðjurnar.
Innilega til hamingju Fróði með þitt fyrsta ár af mörgum, mörgum, HRESSANDI árum ;O)
Bestu kveðjur frá Þórshöfn.
Hæ hæ sveitafjölskylda :)
Vá hvað litli pjakkur er orðinn stór, heheh þetta líður allt of hratt. Er húsmóðirin sjálf bara farin að vinna úti, úff ætlar hún að vera fullkomna konan í dag, vinnur vinuna sína, sinnir börnunum, sinnir manninum og auðvitað aðalstarfinu sínu húsmæðrastarfinu :) uss hvað mér líst vel á hana og rosa flottur titill sem hún fær :)
Vonandi sjáumst við síðan sem fyrst, kv. Ása