

Usss, þetta endar bara með heilu fótboltaliði ;O) En um að gera að hugsa bara meira um lærdóminn, en mundu samt að hvíla nóg. Maður gerir aldrei of mikið af því og veit örugglega ekki af ef sá stutti verður fjörugur eins og Fróði....
Bestu kveðjur (saknaðar) úr Borg óttans.
Harpa, Bárður, Jóhannes Karl og Sigdís Eva.
Kvitt í bók.
Sendum knús og kossa í kotið
kveðja að vestan
Halló halló. Gaman að kíkja á síðuna ykkar.....þar er alltaf mikið um tíðindi. TIL HAMINGJU MEÐ BUMBUNA, mikið ofsalega er þetta spennó :-) Eftir að ég átti Heiðdísi þá verð ég öfundsjúk í hvert skipti sem ég sé ólétta konu eða frétti af einni!!! Kossar og knús úr Stigahlíð
Komið blessuð og sæl
Mikið rosalega er mikið búið að gerast síðan ég kíkti á ykkur síðast :o) til hamingju með nýja bumbubúann og þú mátt nú ekki ofgera þér Kolla mín, það er nú nóg að vera í vinnu, með bumbubúa og sjá um heimilið án þess að þú drekkir þér í lærdómi líka :o)
Hafið það gott, kveðja Ása
Rosalega flottar myndir hjá ykkur og nýjasta múv húsfreyjunnar í hárstíliseringu er svakalega smart sko.. algjör mega skvís barasta. Leiðinlegt að heyra með grindargliðnunina....ekki gaman en þú verður bara að þrauka þetta...Vona annars að allt gangi vel. Þú ert sem sagt á leið í sónar og þá geri ég bara ráð fyrir því að þið komið bara öll í heimsókn.....ég fer allavega að baka og gera klárt....muuuuhh!! Sjáumst voandi bara sem allra allra fyrst
Kveðja The Gröndals
Flottar myndir,kveðja frá Meló.
Takk fyrir myndina, þú lítur bara vel út. Ofsalega flott. Hlakka til að hitta þig sem er bara nún einhverntímann er það ekki.
heyrumst kveðja Jóna
ógissla flott á þér hárið systa...fer þér gegt vel...algjör mega beib...djöutt flott...:)
Bíð eftir mynd af nýja dúinu.
kveðja
Ljóshærða Jóna
Halló,mátti til að kvitta,enda orðið langt síðan,vorum í sveitinni um helgina,í slyddu,að grafa út landið,á kvöldin og um nætur var þetta þokkalegt,en bara drullusvað um miðjan dag,oj bara.en nú er búið að spúla mannfólkið,og við komin á mölina aftur.Kær kveðja frá Meló.
Kannast við tímaskort og kennsluundirbúning, er nokkuð sátt með að hafa ekki bætt BS ritgerð á sólarhringinn. Knús og kossar að vestan
Hæ, hæ....
bara kvitta fyrir innlitið, vonandi gengur vel í nýju vinnunni og skólanum.
Bestu baráttukveðjur úr borg óttans,
Harpa, Bárður, Jóhannes Karl og Sigdís Eva.
bara að minna á að sept er hálfnaður....
hehe
Hæ bara rétt að kíkja við..vonandi ert þú að braggast og lífið að taka á sig einhverja almennilega mynd...Vagninn kemur sér velog nú er bara að bíða eftir að storminn lægi...(eins og það eigi eftir að gerast á næstunni á vellinum...rokrassgat) kv Jóna og Saga
Hæ Kolla mín.
Rosalega langt síðan ég kíkti á síðuna en ekki annað að sjá en að þið hafið það gott. Til hamingju með óléttuna. Við verðum víst ekki samfara í þetta sinn.
Kv.
Ásdís og co.
Hér eru nýjustu fréttir: við erum búin að eignast frænku Hún fæddist um kl 02 í nótt( 070907)og allt gekk vel mömmunni Rósu og litlu dömunni heilsast vel og útskrifast væntanleg heim í dag Við sendum okkar beztu hamingjuóskir til fjölskyldunnar
kveðja ammaGuðný
Bara kíkja, heyrumst
Hæ þið öll:) og til hamingju með fjölgunina sem er væntanleg! (Harpa sagði mér)
Rosalega gaman að skoða myndir af þessum myndardrengjum sem þið eigið.. alltaf svo kátir og brosandi.
Bið rosa vel að heilsa,
Katrín
Kæra fjölskylda.
Takk kærlega fyrir yndislega helgi. Erum endurnærð eftir sveitarómantíkina að Ási, frábærar móttökur hjá húsfreyjunni get ekki alveg sagt hið sama um húsbóndann....allavega stóð hann sig ekki alveg í stykkinu á föstudagskvöldið en bætti það upp með svaka stuði á laugardagskvöldinu......!!
Hafið það gott og við verðum bara að hittast MJÖG fljótt!!
Kveðja from Ak city
Anna, Valdi, Benedikt Kári og Markús Máni
Það er greinilega búið að uppfæra trixið...ekki var mér boðið upp á súkkulaði-rúsínur þegar verið var að múta mér !!!!!!
Flottar myndir...við erum sko að tala um 100% einbeitingu :)
Kveðja að sunnan
kvitt og kveðja
Jú Gunný mín þetta er Kenyasvuntan og hún er sko í miklu uppáhaldi hjá mömmunni á bænum sem reynir eftir fremsta megni að kenna sonunum swahili :o)
Takk fyrir komuna og kvittið
Halló,leit við,og þakka fyrir,er það ekki rétt sem ég sé,hann Fróði er með svuntu frá Kenya,ég er nú aldeilis hissa,að hún skuli vera til enn.Kveðja Gunný
Halló gott fólk,leit á síðuna og ætla að kvitta fyrir mig,er búin með fríið,og ekki gátu leiðir okkar farið saman,þið í Norge,er við ætluðum að heimsækja ykkur,en við reynum bara seinna.kveðja frá Meló.
Kæra fjölskylda, enn og aftur takk fyrir frábæra gestrisni. Fékk mikið vatn í munninn við skoðun myndanna og er það dáldið erfitt í aðhaldinu. Hahaha.. jæja ætla að lesa pistilinn..
Kveðja, Ösp, Dóri, Dagur, Viktor og Brynjar
Það er alltaf sami myndarskapurinn...gestirnir varla komnir úr innkeyrslunni þá er helgin í myndum komin á netið...ánægð með systu :)
Svo fékk maður bara vatn í munninn við að skoða allar kræsingarnar-úff
Kveðja frá einni sem er farin að baka !!!
Jiiiiii það liggur við að ég fæði við að sjá allar myndirnar af rússíbönunum....spurning um að ég fari að fara til útlanda í leikjagarða standi....(þ.e. ekki ólétt). Greinilega svaka gaman hjá ykkur....Kv Jóna
Velkomin heim. Við áttum leið hjá á föstudaginn en því miður vissum við að enginn væri heima svo að við bönkuðum ekki uppá. En hlökkum til að sjá nýjar myndir frá Noregi.
Bestu kveðjur úr BORG ÓTTANS !!!!!!
Harpa, Bárður, Jóhannes Karl og Sigdís Eva.
Hæ, hæ, vona þið hafið það gott í Noregi. Langaði mest bara að segja "hæ". Hlökkum til að hitta ykkur í ágúst þegar við leggjum í 'ann!
// Erica, Magni, Kjartan Freyr & Katarina Ísey
Kvitterí kvitt,
alltaf jafn fallegt fólk á þessum myndum.