

Til Hamingju með nýja stubbinn, hann er auðvitað jafn glæsilegur og fyrri afrek ykkar. Sveitastjórnin hlýtur að vera ánægð með ykkur, þvílík fólksfjölgun í hreppnum ekki átt sér stað í mörg hundruð ár haha. Steini ég geymi kúbverjann þar til við hittumst. Til Lukku og hlökkum til að sjá ykkur kær kveðja Hjalti Stella og Hjaltason
komiði sæl og blessuð. sá stutti rosalega flottur,mér finnst hann líkari móður sinni en svo finnst mér fróði aftur líkari pabba sínum.
hér í sveitinni gengur allt vel. það fer að líða að því að ég járni hana Lykkju og þá getur þú (kolla) komið og farið á bak. sjáumst að sinni, bæbæ
Til hamingju með nýjasta strákinn... hann er gullfallegur eins og hinir tveir - virkar allt svo afslappað og gott hjá ykkur - góðir straumar sem maður finnur við að skoða myndirnar ykkar - skemmtilegar eins og vanalega - hafiði það gott í sveitasælunni - strákakveðjur frá Hlíðargötu 37 á Þingeyri, Þórey og co
Hæ hæ. Var bara að sjá Óðinn. Finnst hann voðalega sætur. kv Danni og hugsanlega co
Bara að kíkja aftur á gullmolann....og aftur og aftur og..........okkur finnst hann Óðinn svoooooooooo sætur. kv jóna & co
Kæra fjölskylda!
Til hamingju með þennan gullfallega dreng! Hann er bara flottur og nafnið á vel við hann:) Hlökkum til að fylgjast með ykkur á netinu. Gangi ykkur ofsa vel í öllu saman...
Kveðja Helga, Sverrir, Júlía Rósa og Laufey Halla
Hæ gullin mín,
Til hamingju með litla prinsinn, mikið er hann yndislegur og nafnið gott:) Get ekki beðið eftir því að fá að sjá hann og knúsa ykkur öll. Það er ekki auðvelt að vera svona langt frá ykkur. Hér í Bogota er sumar, hitinn ´þó ekki meira en . 20 gráður. Í dag heimsóttum við höfuðstöðvar Rauða krossins hér. Þeir vinna hér mikið og þarft starf, m.a. með götubörnum en þau eru 35000 sem búa bara á götunni. AFS hér er með sjálboðliða sem vinna með þeim.
Farið þið vel með ykkur og ég sé ykkur bráðlega.
Ástarkveðja
Amma Rósa
Kæra fjölskylda.
Hjartanlegar hamingjuóskir með litla krílið.
Jæja þá er komið 1/2 fótboltalið !!
Kveðja úr Garðabænum
Helga og Gestur
Skúli og Auður
Helga Marín og Friðrik.
Til hamingju öllsömul með þennan myndarlega dreng.
Kæru vinir, innilega til hamingju með minnsta manninn. Flott nafn og flottur "fyr":)
INNILEGA TIL HAMINGJUUUUU!!!! :D
Koss og knús elsku yndislega fjölskylda!!!
ÓLÖF
ææææææææ!!! Dææææææs!
Hann er allgjört yndi! Hlakka til að knús ykkur í tætlur, vonandi sem fyrst:)
Kveðja, Ösp og co
Hann er ekkert smá sætur og flottur...(Hann er svo sætur hann litli bróðir segir Kári). Algjört krútt og greinilega ánægður með nýju fjölskylduna sína...enda ekki nema von. Rosa flottir og duglegir sróru bræður og auðvitað foreldrar líka. Ástar og SAKNAÐAR kveðjur Jóna besta "fjar" frænka
ÆÆ hvað hann er lítill og sætur :o) ekkert smá flottar myndir :o)
hlakka rosalega mikið til að sjá hann í eigin persónu
kveðja Ása
Jiiii hann er ÆÐI nýjast frændinn okkar! Við Bjarki Dagur sitjum hér og horfum á myndir af sæta frænda í beinni á meðan við spilum ólsen,ólsen;-) Bjarki Dagur er lasinn og ekki leiðinlegt að njóta ykkar hér á skjánum;-)) Hafið það rosalega gott,við ætlum að kíkja á fleiri myndir.
Knús frá okkur
Innilega til hamingju með þetta fallega nafn Óðinn. Vona að allt gangi vel og allir séu kátir og hressir. Það verður örugglega mjög gott að komast heim loksins....heima er sko alltaf best!
Við gerum okkur svo ferð í sveitina við tækifæri til að knúsa stórfjölskylduna að Ási!!
Kveðja The Gröndals
Til lukku með nýja drenginn. kv úr víkinni.
Já og til hamingju með nafnið...ein alveg út á þekju.......
Bara að tékka á myndum.......þið hafið sosöm einhverju smá afsökun en ekki mikið lengur en fram á morgun Kv jóna
Es. Var að kaupa mér þennan fína (hvíta) geitaost og nú skil ég húmorinn......allt annað líf.....
Hæ hæ
Stórfjölskylda :o) Innilega til hamingju með nýjasta prinsinn :o) Hafið það rosalega gott og okkur hakkar til að sjá myndir af prinsinum :o)
kveðja frá Ásu og co.
Innilega til hamingju með fallega nafnið á nýja prinsinum;-) Ofsalega fallegt nafn. Nú vantar bara Goða í hópinn??? Gangi ykkur rosalega vel. Bíðum spennt eftir myndum.
Kveðja frá okkur í Mosó
HÆ kæru vinir og innilega til hamingju með viðbótina, nú eruð þið búin að ná okkur í fjölda þó reyndar að þig eigið ívið fleiri heimilisdýr en við.
Knús og kossar að vestan, hlökkum til að sjá myndir af nýjasta Hymer
Enn og aftur knús og kyss
Eyrún, Torfi, og börn
Elsku Kolla og Steini til hamingju með nýjasta gullmolann og hamingjuóskir fá líka þeir bræður, Máni stærsti bróðir og Fróði stóri bróðir. Við hlökkum til að fá að sjá myndir.
Bestu kveðjur héðan úr Dýrafirðinum.
Halla, Sæmi og Salvör.
Elsku Kolla, Steini og synir, allir afar og ömmur. Innilega til hamingju með nýjasta guttan. Gangi ykkur rosalega vel.
Kveðjur úr borg óttans,
Harpa, Bárður, Jóhannes Karl og Sigdís Eva.
Innilega til hamingju með litli prinsinn!! Við erum mjög spenntar að fá að sjá myndir af honum. Gangi ykkur rosalega vel með allt!
Knús frá fjölskyldan í Álakvísl,
Erica, Magni, Kjartan Freyr & Katarina Ísey
Innilega til hamingju elskurnar....prinsinn er algjört æði svaf bara svo rosalega vært að ég fékk bara ekkert að máta hvernig hann fer í fangi en fallegur er hann!!
Svo er bara að ágiskanir mínar með nafnið sáu á rökum reistar en þangað til það kemur í ljós gengur gulldrengurinn undir nafninu Hugi Hymer......það er nefnilega "hugur" í fjölskyldunni á Ási....hehehhe
Kem og kyssi ykkur aftur í dag
Kveðja Anna María
Innilega til hamingju með prinsinn :)
Knús og kossar,
Sigga P.
Hæ
TIL HAMINGJU MEÐ PRINSINN, HLAKKA TIL AÐ SJÁ MYNDIR AF HONUM. Hafið það sem allra best.
Kveðjur úr stórborginni
Tinna og co
Innilegar hamingjuóskir með prinsinn
Til hamingju til hamingju til hamingju elsku fjölskylda með nýja (fjölskyldumeð)liminn...... Frábært að þetta skuli hafa gengið svona vel hjá þér elsku Kolla okkar. Látið ykkur líða sem allra best kveðjur, kossar og knús Jóna, Eyþór, Kári og Saga