
Til hamingju með daginn engillinn okkar...bara orðin mánaðar gamall ekkert smá hvað þetta er fljótt að líða ;o)
Mikið knús og margir kossar
gamla settið Núpó
Elsku litli fallegi drengur :)
Mikið var gaman að koma í heimsókn til þín í síðustu viku.
Vonandi hittumst við aftur sem fyrst!
Knús til ykkar,
Gugga
Yndislegt að sjá allar þessar nýju myndir, ekkert smá sem gæjinn er að tútna út. Knúsaðu hann extra mikið frá okkur.
Kærar kveðjur frá Lúx,
Jóhanna og co
Yndislegar myndir.
ohh takk fyrir gærdaginn sætasti sæti! Þú ert nú bara flottastur og duglegastur!
Hlakka til að sjá þig fljótt aftur
risaknús
Linda og Ingvar Héðinn
Hæ sæti minn!
Það var voða gaman að hitta þig í saumó um daginn. Þú sýndir mér ekkert rosalega mikinn áhuga, svafst bara, ég sem fór í kjól fyrir þig og allt :)
Vonandi leyfa mútturnar okkur að hittast í sumar í göngu.
Knús og kram.
Þín Tinna María.
Var bara að kíkja inn og sé að það eru komnar nýjar myndir:) Hann er svo flottur lítill kall:) Hlakka til að sjá hann í næstu viku.
ohh ÆÐISLEGAR nýju myndirnar! Mér finnst myndin af þér í vöggunni..bara SÆTUST:))
Kem bráðum að knúsa þig sætasti!
Linda
Þú ert nú meiri rúsínan. Þú mátt endilega kenna verðandi eiginkonu þinni að nota duddu þegar þú hittir hana á mánudaginn...hún vill ekki sjá hana þrátt fyrir æfingabúðir :)
Hlökkum til að knúsa þig....og múttuna líka sem greinilega fer hverfandi :)
Mikið rosalega ertu mikið krútt litli prins. Hlakka til að fá að sjá þig í eigin persónu. Hann þarf nú að fá að heimsækja okkur í vinnuna þegar hann er orðinn aðeins stærri.
Innilega til hamingju Kristín og Hrafn með þennan litla gullmola. Njótið foreldrahlutverksins :-)
kv. Bára
Hann er bara æði sko ! Næst þegar ég kem í bæinn þá kem ég beinustu leið til hans og fæ smá knús ! En heyrðu, það er nú aaaalveg óþarfi að vera að baða mann sko...BARA vesen : )
Hann er svo fallegur. Ég hlakka svo til ad koma í heimsókn og sjá hann í beinni. Njótid thess ad vera saman, kúra og knúsast.
Kv.
Helena í Berlín.
Þvílíkt krútt! Hlökkum til að sjá hann í næsta stórfjölskylduhittingi. Njótið, njótið!
Elsku Stína og Hrafn.
Innilegar hamingjuóskir með frumburðinn, hann er alveg yndislegur, enda var ekki búist við öðru - eplið fellur sjaldan langt frá eikinni.
Megi guð varðveita engilinn ykkar um ókomna tíð. Hlakka til að sjá hann. Kær kveðja, Salla og Sveinn
Hæ Kristín og fjölskylda.
Við óskum ykkur innilega til hamingju með litla fallega drenginn ykkar. Við vorum að skoða myndir af honum og hann er algjört krútt. Við ætlum að færa honum smá gjöf bráðum.
Kveðja 2. KG í Ártúnsskóla
Innilega til hamingju með litla fallega prinsinn ykkar,æðislegt að fá að fylgjast með hér á síðunni. Hann er bara yndislegur og foreldrarnir ljóma af stolti :) Flottasta fjölskyldan í bænum!
jei jei jei... nýjar myndir ! Dúdda mía hvað þú ert að verða stór... nú verðum við að fá að koma og knúsa þig.
Ástarkveðja, Elsa og co.
Hæ sætu skott. Jisús hvað maður er fallegur. Gaman að skoða myndirnar. Kem strax í heimsókn þegar kvefið er búið.
dúlli dúll.. .. .. sá var reiður í baðinu :o) - gaman að sjá nýjar myndir strax, uss hvað maður er mikið krútt.. ..
jei, gaman að sjá nýjar myndir:) Hann er bara yndislegur:)
ohhh vííí nýjar myndir! Ofsalega varð ég nú kát að sjá það. Þú ert náttúrulega bara FLOTTASTUR!!!!
Hlakka mikið til að sjá þig næst sem verður vonandi sem fyrst!
Risaknús frá okkur öllum
Linda og co.
Máttum til með að kvitta fyrir okkur í gestabókina,hann er alveg yndislegur litli kúturinn .Gaman að sjá allar þessar myndir.
sjáumst fljótlega
Hæ aftur, bara að kíkja eftir nýjum myndum, loksins get ég farið að ýta á eftir myndum. seeya soon
Hæ elsku sæti prins. Mikið ofsalega var nú gaman að fá að knúsa þig og halda á þér í fyrradag. Er strax komin með fráhvörf frá þér:).
Ýttu nú við gamla settinu og segðu þeim að það eru engin lög á móti því að setja oft inn myndir...bara svona ef þau væru að velta því fyrir sér:))
knús Linda og co.
Elsku Stína og Hrafn!
Til lukku með litla prinsinn! Hann er algjört bjútí.....svo gaman að sjá myndir :) Hlökkum til að koma og kíkja á ykkur! Knús til ykkar allra!
Aldís, Valdi, Aníta Björk og litli stubbur.
Fallegastur í öllum heiminum !! Hlökkum til að kynnast þér og knúsa alveg í botn :)
Knús & kossar, Elsa, Þröstur & Tinna Sif
Innilega til hamingju með prinsinn, hann er yndislegur, með svona mikið ljóst hár!! Knús til ykkar!
Hæ elsku vinir. Til hamingju með fallega prinsinn. Hann er náttúrulega yndislegur drengurinn ykkar. Skemmtilegar myndir hjá ykkur. Hlakka til að hitta ykkur og litla prinsinn. Bíð bara eftir því að mega koma í heimsókn.
Magga, Sigfús og börn.
Halló sæti frændi !
Gaman að sjá þessar skemmtilegu myndir af þér.
Nú getum við fylgst með þér stækka alla leið frá Noregi :)
Hlökkum til að hitta þig bráðum.
Knús í kotið.
T - K - E - B og mamma og pabbi :)
En æðislegt að sjá svona margar myndir af prinsinum. Þeir gerast nú ekki flottari! Enn og aftur til hamingju.
Eygló, Þorvarður og Steinunn Edda