

Við vildum bara kvitta fyrir innlitið - gaman að skoða Ameríkumyndirnar :)
Vei, fullt af nýjum myndum til að skoða
Úffff greyið litla hefur fengið bóluna allsvakalega! Hjörtur hefur sloppið betur sýnist mér....En gott að þetta er búið! Tekur eflaust einhvern tíma að losna við allar af henni...bataknús á litlu frænku
Alltaf gaman að sjá ykkur, bæði í eigin persónu og á myndunum. Sjáumst fljótt
Hæ hæ! flottar jólamyndirnar af ykkur flottu systkini:) förum að kíkja í heimsókn fljótlega:) knús á línuna
Gaman að skoða myndirnar af systkinunum síkátu! Bíð spennt eftir að sjá myndir úr nýju græjunni ;)
Kveðja yfir götuna.... :)
Gleðilegt nýtt ár - hlökkum til að sjá ykkur á nýja árinu
Hæj;) flottar nýju myndirnar. Til hamingju að vera flutt á Skagann aftur;) gaman að fá ykkur í næsta nágrenni! Núna verðum við sko duglegri að kíkja í heimsókn....ekki spurning;) Þið eruð ekkert smá flott systkini;)
kveðja Linda og Gígja
Kvitt kvitt fyrir innlitið og velkomin á Skagann kæru nágrannar :)
Gott að geta fylgst með ykkur út um gluggann ;) hehe
Sjáumst fyrr en síðar
Skemmtilegar nýju myndirnar!
Batman og litli "þvottabjörninn" sérdeilis flott :)
Kv.frá litla Ísbirninum og mömmunni
Er mamman bara alveg á fullu í saumaskap og ekkert að taka myndir til að setja hérna inn lengur?
Sé ykkur sætu systkinin vonandi fljótlega
Knús frá Ölmu vinkonu
Til lukku með daginn Rósa mamma ! :)
Skemmtilegt að skoða myndirnar af systkinunum sætu ;)
Fariði svo að kíkja í kaffi =)
Kv.Heiða og Sindri Leó
Þau eru svo sæt bæði tvö, alltaf svo flottar myndir af þeim, og svo krúttlegar myndirnar af litlu vinkonu-börnunum þar sem þau liggja saman. Vona að ég hitti ykkur sem fyrst, kv. systa
Flottar nýju myndirnar af ykkur sætu systkini, hlakka til að sjá ykkur næst.
Kveðja, Alma
Þvílíkt flottur danstöffari;) komin með danstaktana frá pabba þínum;) hehehe
Verð að fara að kíkja á ykkur flottu systkinin fljótlega.....aaaaaallt of langt síðan...
kv.Linda Dagmar frænkos
Fínar myndir, vona að þið hafið það gott, kv. SYS
Flottar myndir úr veislunni! Sé ykkur vonandi fljótlega, kv. SYS
Hæ frændi! Innilega til hamingju með 3ja ára afmælið:) þú ert sko búinn að ná mér núna;)
Einnig innilegar hamingjuóskir með fallega nafnið á systur þinni.....;)
kem og knúsa ykkur bráðum,
kv.
Gígja Kristný
Gaman að sjá nýjar myndir af litlu dúllunni okkar,
aldeilis að hún dafnar vel... Og stórinn okkar frekar montinn bara :-)
Vonumst til að geta séð ykkur um aðra helgi á ströndunum,
heyrumst,
Ástarkveðja frá Eskifirði
Rósa mín, það er alltaf svo gaman að skoða myndirnar af krúttlegu og sætu börnunum þínum, kv. systa.
Okkur heitustu hamingju óskir með þessa flottu stelpu.
Anna og Marta.
Innilegar hamingjuóskir með prinsessuna... alveg yndisleg !
Til hamingju með litlu systur. Þú ert greinilega alveg svakalega góður og duglegur stóri bróðir. Hlakka til að sjá ykkur.
Knús, Alma
hæ sætu systkin:) æðisleg litla systir þín Hjörtur;) stór og flott stelpa! sé að þú ert svaka góður við hana.
knús til ykkar,
kv.Gígja Kristný
Elsku Rósa, Hrafn og Hjörtur:) Til hamingju með prinsessuna! Vonandi hafði þið það gott. Hlökkum til að koma og sjá gullmolann;) þá loksins komum við í heimsókn í sveitina;)
kveðja frá okkur;)
Til hamingju með stelpuna við erum mjög glaðar með það að barnið sé stelpa við erum alveg tilbúnar að passa hana hvenær sem þú vilt. Hlökkum til að sjá ykkur.
Þínar frænkur Ísól og Karítas<3
Rósa Björk, Hrafn og Hjörtur - Til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn, hlakka til að sjá ykkur öll, kv. systa
Innilegar hamingjuóskir með litlu snúlluna ykkar elsku fjölskylda :) Hjörtur verður sko flottasti stóri bróðirinn í sveitinni !
Hlökkum svooo til að sjá skvísuna og hitta ykkur kjarnafjölskylduna sem fyrst ;)
Gangi ykkur vel og hafið það ofsa gott :)
Kv. af Melnum
Það er aldeilis nóg búið að vera að gera hjá þér í maí Hjörtur! Alltaf stuð í sveitinni :) Ekkert smá flottur á gröfunni
Svo er bara runninn upp stóri dagurinn...ætli þú verðir stóri bróðir í dag ???? Hmmmm.....bíðum æsispennt eftir litla leikfélaganum :)
Hríðarstraumar af Hagamelnum ;)
Hæ Hjörtur! Flottar myndirnar ykkar frá Tene....þið hafið sko skemmt ykkur vel þar greinilega;) og svo bara flutt í sveitina.....verðum að kíkja á ykkur þar! allt að gerast hjá ykkur;)
sjáumst,
kv.Gígja Kristný og mútta