Hjörtur, Viktoría Vala & Kristrún Sara
 

Stjörnum. VVH

TVÍBURARNIR 21. maí - 21. júní =

Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi.

Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann.

Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreytingu.

 - - - - - - - - - - -

 

Tvíburinn er síðasta vormerkið og líkt og með Hrútinn og Nautið má sjá ákveðin voreinkenni í fari hans. Júní er tími heimsókna og ferðalaga, því ófærð og kyrrstaða vetrarins er að baki. Á tíma Tvíburans er sumarið handan við hornið og góðviðri ríkjandi. Léttleiki, heiðríkja og bjartsýni eru einkennandi, en jafnframt því hreyfanleiki og félagslyndi.

Fjölbreytni
Tvíburinn þarf fjölbreytni til að viðhalda lífsorku sinni. Honum líður best þegar mikið er um að vera og þess er krafist að hann sinni mörgum verkefnum á sama tíma. Honum leiðist vanabinding og hann verður þreyttur ef hann þarf að fást of lengi við sama verkið. Fjölbreytni og hreyfing eru honum nauðsynleg til að viðhalda orku. Hann þarf að skipta reglulega um umhverfi, enda er ein uppáhaldssetning hans: "Ég þarf aðeins að skreppa."

Pælingar
Tvíburinn er loftsmerki og þarf pælingar og vitsmunalega umræðu til að endurnæra orku sína. Tvíburanum fellur því vel að vinna störf sem krefjast hugarbeitingar og fjalla um margvísleg málefni. Hann er fljótur að setja sig inn í ný mál. Lykilorð fyrir Tvíbura eru tjáskipti og upplýsingamiðlun, enda margir kennarar, blaða- og fréttamenn fæddir í þessu merkinu.

Félagslyndi
Tvíburinn er félagslyndur. Ef hann er bundinn inni á heimili, er í félagslegri einangrun eða er fastur yfir einhæfum handtökunum, verður hann fljótt leiður, þreyttur og slappur. Þegar mikið er um að vera og nóg af fólki, forvitnilegum atburðum og umræðu, lyftist geð hans og orkan eykst. Ef hann er ekki léttur og hress, gæti ástæðuna verið að rekja til of einhæfra lífshátta.

Forvitni
Tvíburinn er oftast forvitinn og fróðleiksfús. Ef starf hans er ekki fjölbreytt og fræðandi situr hann oft fyrir framan sjónvarp í frístundum sínum, skiptir á milli rása og horfir á fréttir og fræðsluþætti. Þörfin fyrir fræðslu, hreyfingu og fjölbreytni, getur því birst líkamlega, sem þörf fyrir að setjast uppí bíl og keyra á milli staða, eða á huglægan hátt, sem hreyfanleg og leitandi hugsun.

Málgefni og fjölhæfni
Tvíburinn er oft málgefinn (staða hugarpláneturnnar, Merkúrs, skiptir miklu í þessu sambandi) og hefur gaman af því að segja frá. Í fjölskylduboðum og öðrum samkvæmum gengur hann á milli manna og herbergja og talar og segir sögur. Auk félagslyndis og sagnagleði, er fjölhæfni eitt af einkennum hans, sem þýðir að margir í þessu merki fást við tvö til þrjú mismunandi störf. Ef Tvíburinn er í einu starfi, þá leitar hann eftir breytilegum verkefnum innan þess starfs, pælir mikið og er alltaf reiðubúinn að skoða nýja fleti eða ræða við samstarfsmenn um þeirra mál. Tvíburinn hefur ekki áhuga á að beina athyglinni lengi að einu máli í einu.

Frelsisást
Annað einkenni á Tvíbura er frelsisást. Honum er illa við bönd, sérstaklega þau sem hindra hreyfanleika hans. Því er það svo að þótt Tvíburinn sé að öllu jöfnu vingjarnlegur og glaðlegur, þá hleypir hann fólki ekki of nálægt sér.

Tvískipting
Eins og nafnið Tvíburi gefur til kynna virðist oft sem Tvíburinn geymi tvo persónuleika innra með sér. Þetta birtist í fjölhæfni hans og þörf fyrir fjölbreytni, en einnig í óútreiknanlegu eðli eða því að hann getur sýnt tvö andlit, eftir umhverfi og aðstæðum.

 

Kínversk stjörnuspeki : .

Afmælissteinn : .

Blóm : .