

Boðorðin 10 fyrir foreldrana
1. Meta skaltu börn þín eins og þau eru ekki eins og þú vilt hafa þau.
2. Líta skaltu á sérhvert barn sem sjálfstæðan
einstakling en ekki sem ?krakkann".
3. Þú skalt sinna þér vel en ekki lifa lífinu í gegnum börnin þín.
4. Taka skaltu vel eftir öllu sem vel er gert, hvort sem
það er stórt eða smátt og viðurkendu það.
5. Láttu börnum þínum í té óyggjandi upplýsingar
af fremsta megni og treystu þeim til að vega þær
og meta og draga af þeim eigin ályktanir.
6. Þú skalt ekki láta börn þín nota þig eða misnota
því að slíkt skaðar þau.
7. Þú skalt fela börnum þínum ábyrgð hvenær sem
færi gefst svo sjálfstæði verði þeim ekki um megn,
því börn eru skammtímalán.
8. Gera skaltu börnum þínum ljóst að þú elskar þau
án skilyrða, hvort sem ákvarðanir þeirra falla þér í
geð eða ekki.
9. Gefðu börnum þínum ráðrúm til að gera sér
grein fyrir afleiðingum gjörða sinna í stað þess
að halda yfir þeim hlífskildi endalaust, eins og
þú hefur tilhneigingu til
10. Þú skalt gleðjast innilega þegar forsjár
þinnar er ekki lengur þörf því þá og aðeins
þá hefurðu haft árangur sem erfiði