

Innilega til lukku með litlu fallegu stelpuna ykkar, hún er algjört æði. Yndislegt hár og svo mannaleg og flott.
Vorum í útilegu þegar við fengum sms-ið og komum heim í gær þannig að það er ekki seinna vænna en að kíkja á snúlluna.
Enn og aftur til hamingju elsku Orri og Tóta
Takk fyrir lykilorðið
Innilega til hamingju með prinsessuna hún er alveg æði.
kv Inga Björg
Rosalega er prinsessan sæt, álfa-myndin er sérstaklega krúttleg ;) hafið það rosalega gott
Hæ mín elskuleg Tóta og Orri.
Hjartanlegar hamingjuóskir með yndislega stúlku. Vá hvað hún er falleg og fullkomin.Hlakka til að sjá hana í eigin persónu og knúsa þig Tóta mín.Kær kveðja til stolta pabbans.
Lára Dan og Siggi
Til hamingju með litlu prinsessuna ykkar.. hún er ekkert smá falleg :)
Var bara aðeins að skoða myndirnar sem bættust við ;) Við reynum örugglega að kíkja aftur bráðlega í heimsókn.
Mikið óskaplega er þetta fallegt barn.
Innilega til hamingju með prinsessuna.
Ja dúdda mía :)) mikið ertu svipsterk, myndarleg og vel vakandi ung dama og ekki vatar hárið :))
Ég var nú búin að skjóta á að það kæmi strákur en það er nú ekki verra að fá dömu í hópinn.
Knús á línuna.
oh mín er sko bara flott!!
Hlakka til að sjá ykkur í næstu ferð!
Gummi biður að heilsa nýbakaða pabbanum; )
Kveðja að austan!
hæhæ og til hamingju með litlu dömuna ykkar, loksins komin stelpa hehe. ég er ekki frá því að mér þykir hún líkjast pabba sínum aðeins, en annars er ég ekki sterk í að sjá svona hehe svo það gæti verið rangt hjá mér.
Tóta á myndunum að dæma er ekki að sjá að þú hafir verið að eignast barn hehe þú lítur mjög vel út. vonandi gengur allt vel og hittumst vonandi einhverntíman á röltinu
Kv. Lilja C
Sæl frænka
Þú ert alveg gullfalleg skvísa, æðislega gaman að skoða myndirnar af þér :)
Bestu kveðjur til mömmu og pabba
ohhhh Hvað hún er sæt :) innilega til hamingju með litlu prinsessuna :) Kveðja úr Hveró Dúfa
Ég bara verð að skrifa aftur; þessi stelpa er svakalega vel heppnuð! Ég hef ekki oft séð svona fallegt barn:)
Hún bræðir mann alveg.
Kveðja Dögg
Innilega til hamingju með litlu prinsessuna!
Ekkert smá myndarleg stúlka :)
Til hamingju með stelpuna elsku Tóta og Orri, ég var einmitt sett 13da júlí með minn elsta en hann fæddist líka 19. Nú er Telma næst ;)
jesús minn hvað maður er sætur.!!! varð bara að fá að kvitta aftur þó ekki væri nema bara til þess að segja það! ;) verð bara ennþá spennari að sjá ykkur í þessu nýja hlutverki;) vona bara að maður þurfi ekki að bíða of lengi eftir henni hehe..
Mikið er hún yndisleg, litla frænka okkar.
kær kveðja
Ellen Eir og Þórir
Hún er alveg yndislega falleg. Ofsalega mannaleg og flott!
Vona að öllum heilsist vel og þið njótið nýju hlutverkanna ykkar!
Kveðja úr borginni
Vááá hvað hún er falleg...
Innilega til hamingju með frumburðinn ... þvílíkt beauty!
Elsku litla frænka, velkomin í heiminn. Ég var utan þjónustusvæðis um helgina missti því alveg af þessu fjöri sem er búið að vera hér. Innilega til hamingju með foreldrana þína!
Bestu kveðjur til foreldranna!
Innilega til hamingju, hún er ekkert smá falleg :* hlökkum til að sjá fleiri myndir. Gangi ykkur vel með snúlluna :)
Elsku Tóta og Orri þið hafið eignast allveg yndislega dóttur og Dýrley hefur aldrei séð neitt eins ótrúlega sætt og hana ,eins og hún segir við alla.
elskum ykkur öll.
amma afi og dýrley dröfn
Hæ hæ,
Innilega til hamingju með dömuna, sú er falleg!!!
Kveðja Dögg
Innilega til hamingju með dótturina. Ég sem var viss um að þú værir með strák !!!
En gangi ykkur allt í haginn.
hæ hæ til hamingju með Snúlluna ykkar, hlakkar til að sjá myndir af henni.....
Innilega til hamingju með dömuna elsku Tóta og Orri :))
Hún er æðisleg.
Hafið það nú sem best og njótið þess að dúllast saman.
Knús úr Skagafirði.
Gilla og Co
Setti smá færslu fyrir Tótu í vefdagbókina og eina mynd af dúllunni sem ég tók í dag :Þ
Innilega til hamingju með prinsessuna. Hlakkar til að sjá hana
Elsku Tóta og Orri
Innilegar hamingjuóskir með fallegu stúlkuna ykkar, ótrúlega sæt og með fullt af dökku hári. Get ekki beðið eftir að sjá fleiri myndir af þér elsku frænka. Mér finnst alveg ferlegt að geta ekki hitt þig og knúsað þig litla skvís, en það er full langt á milli okkar núna.
Vona að þið hafið það sem allra best kæra fjölskylda :)
Kærar kveðjur frá Berlín
Elsku Tóta og Orri,
innilega til hamingju með stelpuna:)
vonum að þið hafið það gott
knús og kyss
Hildigunnur og co