

Hæhæ og halló...
Langaði bara að þakka fyrir heimsóknina í gær..gaman að fá heimsókn þegar manni leiðist að vera heima:)
Kikji á ykkur þegar nefið á mér lagast hehe ég fer ekki fyrr út úr húsi:)
Bið að heilsa Jovana "frænka"
Hæhæ, bara skilja eftir smá spor.. Kíki oft hingað inn, það er svo gaman að skoða myndir af skvísunni hún er ekkert smá falleg! :)
Takk fyrir heimaboðið í dag:) Mjög fínt að komast aðeins út eins og Lilja sagði.. Þú Tinna ert nottla bbaarraa mikil dúlla hehe.. sjáumst vonandi fljótlega aftur
OG svo bíður maður bara spenntur eftir því hvernig gekk í dag ;) er maður ekki bara á leiðinni með að verða í fegurðardrottningarlengd ;) og svo er "skáfrænkan" alltaf að koma yfir hehe en yndisfríð var bara sæt í gær ;) málglöð og kát ;)
kv Hadda á móti
Maður er bara alltaf að kvitta.
Vildi bara byrja á því að þakka fyrir gott boð í dag, þetta var góð tilbreyting að hitta önnur ungabörn og koast aðeins út, maður er farin að einangrast svo að vera alltaf heima, plús það að þetta var mjög fínt að sitja og spjalla um þessi kríli án þess að fá móral yfir að tala bara um barnið sitt hehe
kv Lilja og Hafliði Brian
hæhæ það var rosalega gaman að hitta ykkur og spjalla í rólegheitunum í dag.
kv Hafliði Brian og mamma
Sæl elsku frænka
Þú ert orðin svo mannaleg og alltaf sama "kjútipæið" ;)
Ég þarf að fara að heyra í mömmu þinni fljótlega...
Bestu kveðjur frá Berlín
Hæ Ragnheiður Tinna.
Til hamingju með flotta nafnið þitt.
Kveðja frá Sollu og Hjaltalínsættinni í Þingásnum
jii þú ert nottla bara sæt Tinna.!! kíkjum hér inn mjög reglulega og skoðum sætu myndirnar þínar. Biðjum að heilsa gamla settinu.
Jiii jú elskan mín, set ykkur inn undir "Íþróttafræðingabörnin" ;-)
Knús til ykkar og 3gja mánaða dúllunnar.
Kv. frá Óló :-)
XXX
Sæl elskan.Jæja það átti náttúrulega eitthvað að koma með, ekki bara nafnið þarna áðan:))
Þú ert alveg yndisleg, hlakka mikið til að hitta þig og knúsa.
Knús af Króknum.
Hæ hæ, til hamingju með nafnið. Hún er aldeilis orðin mannalega á nýjustu myndunum.
Hafið það gott,
kv. Sunna
kíkti á myndir, hún er svaka sæt :) algjör rúsína!
hafið það sem best,
Valla
Vildum bara kvitta fyrir komuna hérna :Þ
Við vildum bara kvitta fyrir innliti, þú ert þvílík fegurðardís litla skotta.
Knús,
Guðrún og krakkaskarinn.
Hæhæ var að skoða myndirnar af þér í svona 50 sinn hehe þú ert alltaf jafn mikil dúlla:) leyfði mömmu líka að skoða myndirnar við skemmtum okkur konunglega, ég og hún vorum sí brosandi og segjandi vá hvað þessi er flott, vá hvað hún er sæt:) hehe mamma vildi endilega að ég myndir segja þér þetta;) hehe
Sjáumst kannski í kv
Jovana
Hún er ekkert smá sæt litla prinsessan ykkar! Gangi ykkur alveg rosalega vel :)
Hææ ómæ litla krúttbomban hún er algjör gullmoli :)
ekki smá flottar myndirnar hjá henni Sólný,æði alveg.
En gangi ykkur rosalega vel :)
Kveðja Krissa og prakkararnir.
Hæ Hæ,
Er Tinna falleg stelpa! hún er voða lík ykkur báðum... Við vildum bara kvitta fyrir innlitið mæðgur. Við erum heima að rolast í dag :)
kær kveðja að vestan,
Helga og Linda
Hæhæ sæta, Takk fyrir síðast ;)
Þú ert orðin ekkert smá stór, og finnst mér þú allveg hrikalega lík honum pabba þínum ! En vonandi að við sjáumst á næstu mömmumorgnum :)
Halló fallega stelpa og takk fyrir kveðjuna þína :) Ofsalega er þetta fallegt nafn sem mamma þín og pabbi gáfu þér, til hamingju með það.
Vonandi sjáumst við eitthvað á mótum í vetur. Knús til mömmu og pabba.
kv valla og kolla kara
Jiiiii en gaman að þú skildir kvitta, ég vissi ekki einu sinni að þið væruð með síðu og hvað þá að þið hefðuð eignast yndislega prinsessu með þetta fallega nafn :-) Innilega til hamingju með þetta allt saman. Hún er mjög blönduð og vá...dökkt hár. Engin smá dúlla. En ég sá bara forsíðuna þannig að ég verð að biðja þig að senda á mig leyniorðið svo maður geti nú fylgst með ykkur í Grindavíkinni.???
Annars verðum við bara í bandi. Kær kveðja frá okkur í Undralandinu ;-)
XXX Lísa og co
myndirnar eru alveg svaka flottar og thad styttist mjog i thad ad vid komum heim en erum ad reyna ad tana okkur i dag svo vid verdum brunir og flottir. kvedja fra costa de sol
Rosalega var gaman að hitta þig elsku Tinna ;)
Sjáumst vonandi fljótt aftur!
Hæ sæta litla skvísa, til hamingju með nýja fína nafnið. Hlakka til að hitta þig í eigin persónu (o:
knús og kram
Sæl og til hamingju með nafnið.
Gaman fylgjast með hér á netinu.
Gangi ykkur vel.
kv. Sunna
Innilega til hamingju með stelpuskottið, ég man hreinlega ekki hvort ég var búin að óska ykkur til hamingju... (mjólkurþoka *hóst,hóst*) Nafnið hennar er ofboðslega fallegt. Fer henni voða vel :D
Bestu kveðjur frá okkur öllum
hæhæ sæta frænka.
Bara að kvitta fyrir mig :-)
Sé þig á sunnudaginn....
Kv. Kata frænka
enn og aftur að kíkja á síðuna ;) af því að ég bý svo langt í burtu! usss hvað er með þennan snjó og liðið á Spáni !! engin öfund hérna megin.... !
kv HG