

flottar nýju myndirnar! vá hvað daman á mikið af húfum:)
vonum að þið hafið það gott
knús
Hildigunnur og Hannes Kristinn
Meiri dúllurúsínan sem þú átt Tóta mín ..... flottar myndir.
Klárlega flottustu frænkurnar þær Tinna og Júlía ;)
Bestu kveðjur
Begga.
Takk fyrir myndirnar, æðislegar að vanda, daman alltaf svo kát og glöð. Það styttist ábyggilega óðum í fyrstu skrefin :)
Knús frá okkur
Hæ hæ okkur þyrstir í myndir af skvísunni. Sú er aldeilis orðin dugleg, það er sko kraftur í henni ;) Ég vildi óska að við værum aðeins nær hvor annarra núna, en vonandi hafið þið það sem best.
Saknaðarkveðjur frá Berlín
Loks fæ eg leyfi til ad skrifa i gestabokina, er bara buin ad vera ad njosna um tig an lykilords hingad til. Jiminn hvad tu ert myndarleg snot!
Kærar kvedjur i kotid fra okkur i Bergen
Hæ sæta skvísa!
Mikið rosalega ertu orðin dugleg. Er mamma þín alltaf með þig í bootcamp eða?
Gaman að geta fylgst með þér hérna, takk fyrir það.
Kveðja frá Svíþjóð,
Guðrún og Alexander Örn
Þú ert svo mikið yndi Ragnheiður Tinna! Algjör snillingur í skríði ;D
Og farin að teyja á fyrir labbið sem mér sýnist þú vera fara skella þér í ;D
Knús héðan frá Efstahrauninu ;*
Hæ elsku frænka, takk kærlega fyrir síðast :) Það var svo gaman að hitta þig loksins, þú ert orðin svo stór og flott stelpa.
Bestu kveðjur
Vorum að kíkja saman á myndirnar og myndböndin. Melkorka alveg æst að horfa á myndböndin af Tinnu sinni :Þ
Sælar mæðgur
Flottar nýju myndirnar, er alveg viss um að þið skemmtuð ykkur vel fyrir norðan:) það er orðið allt of langt síðan ég sá ykkur síðast ég verð að fara að kikja í heimsókn til ykkar þegar það fer aðeins að róast hjá mér:)
Þangað til næst, hafiði það gott:)
Kv Jovana Lilja
æðislegar myndirnar fyrir norðan :) alltaf jafn falleg :)
kv Hadda og gengið
Sælar mæðgur
Við bíðum spenntar eftir því að hitta ykkur loksins.
Farið að drífa ykkur í sveitina ;)
Bestu kveðjur
Hæ hæ snúlla.
Þú ert alltaf jafn dugleg:)
Það er svo sætt að sjá myndbandið þegar þú segir MAMMA :))
Knús frá Króknum.
hæ sæta. vorum að skoða og vildum kvitta.. alltaf jafn gaman að kíkja hér við. :)
p.s. erum búin að breyta léninu inná síðuna hennar köru. Það er EKKI lengur kululius heldur http://www.karamjoll.barnaland.is lo. er það sama
hæhæ flottar myndirnar og ég skoðaði líka nokkur myndbönd hún sprikklar ekkert smá mikið í baðinu bara stoppaði ekkert hehe!! vonandi hittumst við hress á fimmtudaginn erum farin að þrá það að komast út meðal fólks
kv Lilja og Hafliði Brian
vá hvað Tinna er orðin stór:) algjört krútt:)
vonum að þið hafið það gott
knús
Hildigunnur og co
Hæ Tóta mín,
hef ekki kíkt lengi. Hún er alltaf jafn mikil dúlla.
kær kveðja
Rannveig
Hæ elsku þið. Æðislegar myndirnar af ykkur, við erum búin að vera agalega löt að dunda okkur á netinu, en reynum nú að bæta úr því ;-) Vonandi fáum við að hitta ykkur fljótlega. Þangað til, bestu kveðjur úr firðinum fagra
XXX
Hæ hæ, bara kvitta fyrir innlitið. Þetta er algjör rúsína sem þið eigið.
Hafið það gott. Kveðja, Sunna
JJii hvad tu ert orðin stór stelpa!! algjör dúllurass....
En hvad með óboðna köttinn hahaha bara fyndið.. Jólatréið okkar fór 1x niður líka en þá var enginn köttur bara Bríet á móturhjólinu sínu :D
Biðjum ad heilsa...
Bara aðeins að kíkja á nýju myndirnar, alltaf sami grallarinn :Þ Bráðum fer Melkorka kannski að heimta að fá að tala við Tinnu líka í símann ;)
Elsku þið öll gleðilegt ár og takk fyrir það gamla og hafið það sem best á nýju ári :-) Kveðja Stína og co
Ástarþakkir fyrir jólagjafirnar mínar kæru. Æðisleg myndin af ykkur familíunni í jólakortinu. Hafið það sem allra best yfir hátíðirnar. Hlökkum svo mikið til að hitta ykkur í febrúar :)
Gleðileg jól elskurnar og hafið það gott um hátíðina :o)
Jólaknús af Króknum
Elsku þið. Viljum óska ykkur gleðilegra jóla og yndislegs nýs árs. Hafið það sem allra best yfir jólahátíðina og vonandi sjáumst við nú eitthvað á nýja árinu :-)
Knús frá okkur til ykkar
Jólasveinarnir í Undralandi
hahaha myndin með hárkollunni er brilliant:)
Æðislega sætar myndir :)
Bestu kveðjur
Kvitt fyrir innlitið, mikið ertu nú sæt og fín stelpa og gaman að sjá myndir af þér :)
Takk fyrir kveðjuna mæðgur ;) Þið eruð ávallt velkomnar ;) Mar verður nú að kynna litlu fegurðardísina fyrir Mikael Breka ;) hehehe... En hvað er annars leyniorðið...er svo svakalega gleymin þessa dagana....knús
fannst komin tími á 1 stykki kvitt enda mikið búið að skoða síðan síðast þó sjaldan sé kvittað;) þú ert svaka dúlla Ragnheiður Tinna. biðjum að heilsa gamla settinu.