Hilmar Ingi og Arnþór Rúnar
Hilmar Ingi og Arnþór Rúnar
 
 
 

Svona stækkar Hilmar Ingi :)

Tíminn líður og Hilmar Ingi stækkar og þroskast með hverjum deginum.

Svona var ég nýfæddur...agalega lítill, rosalega sætur, með rautt hár, dökk blá augu, 50 cm og 3535 gr.

 1 dags, kominn heim í litla bangsabúrið mitt :)

4ra mánaða - smá breyting frá síðustu mynd :o)

Rúmlega 7 mánaða, búinn að prófa að leika í snjónum, farinn að segja "mamma",
skríður út um allt og stendur sjálfur í pínu stund upp við hluti!

Nú er ég orðinn 9 mánaða, farinn að standa upp sjálfur þar sem mér dettur í hug. Kominn með 4 tennur, búinn að halda mín fyrstu jól, farinn að segja bæði "mamma" og "papapa" og er bara rosalega flottur og duglegur :o)

 

Litli maðurinn orðinn rúmlega 10 mánaða og byrjaður í aðlögun hjá Erlu dagmömmu sem gengur vel. Hilmari Inga finnst skemmtilegast í heimi að vera úti, hann er farinn að labba meðfram öllu, kominn með 6 tennur og er nú loksins farinn að skríða á 4 fótum eins og "venjulegur" krakki :)

Hilmar Ingi orðinn 1árs, og heldur áfram að vera jafn duglegur. Er búinn að bæta við einni tönn í safnið og hefur tekið sín allra fyrstu spor sjálfur, vissi varla af því en tók samt 2 spor :) Orðaforðinn hefur aukist um nokkur orð og segir núna "mamma", "dada", "namm namm", "datt", og "hæ" við flesta sem hann hittir :)

Tíminn flýgur og drengurinn stækkar og þroskast næstum alltof hratt að mati foreldranna, er nánast farinn að hlaupa um allt og er svaka kátur lítill strákur sem er í mikilli sjálfstæðisbaráttu á degi hverjum. Finnst hann vel geta matast sjálfur, labbað upp og niður stiga, út í bíl og jafnvel klætt sig - mjög ákveðinn ungur maður svo ekki sé meira sagt :) Hilmar Ingi er alltaf jafn ánægður hjá Erlu dagmömmu, finnst rosa gaman að fá að vera úti og nú er nýjasta sportið að fara út að hjóla sem er skemmtilegast í heimi :)
 

 Hilmar Ingi er nú orðinn 18 mánaða stór leikskólastrákur, orðinn 82 cm og rúm 11 kg. Alltaf jafn ánægður að fara á leikskólann sinn sem heitir Vinaminni og vill helst ekki koma heim að degi loknum. Hilmar Ingi er afar sjálfstæður, finnst fátt skemmtilegra en að hjálpa til við ALLT og fer fremstur í flokki þegar kemur að uppvaski (þó hann fái nú helst bara að sulla hjá ömmu og afa í Dúfen). Hann er farinn að segja nokkur orð og má þar nefna mamma, pabba, amma, AFA (sem er í uppáhaldi), húfa, tsjú (sem þýðir skór), búbbi (bíll), hæ, brauð, namm, meira-meira, bleyja, mjá, aaatjú (gaggalagó), onk onk (svínahljóð), NEI og bess (bless). Svo er sagt hástöfum "mamma á" og "pabbi á"!!! Brrrrr heyrist gjarnan í búbbunum þegar hann er að leika enda mikill bílakall.

Orðinn stóri bróðir með öllu sem því fylgir, er ofsalega góður og umhyggjusamur við litla bróður en passar alveg upp á að hann fái ekki meiri athygli :D Altalandi og er eins og svampur á allt sem hann heyrir og sér. Alltaf jafn ánægður á leikskólanum og veit fátt skemmtilegra en að leika úti.

Hilmar Ingi orðinn 2ja ára og 4 mánuðum betur. Talar stanslaust frá því hann vaknar og þar til hann fer að sofa, er algjör afastrákur, elskar bíla og finnst best í heimi að borða bláber og jarðaber. Er farinn að horfa mikið á vel valdar myndir í sjónvarpinu og hefur sterkar skoðanir á því sem hann vill sjá. Hefur í raun sterkar skoðanir á öllu sem hann vill gera, mjög ákeðinn og afar duglegur ungur maður :)

3 ára og tæplega 4ra mánaða er kúturinn orðinn. Skýr og duglegur, minnir stundum á gamlan mann þegar kemur að málfari :) Finnst mjög gaman að brasa eitthvað og leika sér með bílana. Bókaormur mikill og fer aldrei í rúmið ólesinn. Algjör dellukarl og er það íþróttaálfurinn sem er mest í uppáhaldi þessa dagana, bílarnir eru þó aldrei langt undan og uppáhaldsvinurinn hann Afipoo sem alltaf er bestur. Uppáhaldsnammið eru bláber en næst koma jarðaber og vínber. Finnst líka lakkrís góður, súkkulaðirúsínur og rauður opal. Af mat eru pylsur í sérstöku uppáhaldi og gott kjöt. Óskaplega blíður, hugulsamur um fólkið sitt og góður.