Hilmar Freyr og Katrín
 

Velkominn á heimasíðu Hilmars Freys og Katrínar!!


Ég heiti Hilmar Freyr, ég fæddist sunnudaginn 11. febrúar 2007 og var 16 merkur og 56 cm. Ég skaust í heiminn með hendina á undan alveg eins og súperman og var með mikið og dökkt hár alveg eins og mamma og pabbi voru búin að spá.

Litla systir heiti Katrín, hún fæddist miðvikudaginn 21. október 2009 og var 17 merkur og 53 cm. Hún var líka með mikið svart hár og alveg ótrúlega sæt.

Mamma og Pabbi heita Hildur og Jóhann Freyr og eru alveg rosalega montin af flottu krökkunum sínum.