

því það vantar jú tilfinnanlega nokkra klukkutíma í viðbót í sólarhringinn... :)
Annars er bara allt gott að frétta af okkur. Við sluppum bara vel úr jarðskjálftum, þrátt fyrir að dagurinn sá hafi verið hálf súrealískur... Ef ég á að gera langa sögu stutta þá var hann á þessa leið:
Kalli var í vinnunni sinni í Rvk, Hildur Tanja á leikskólanum og Dagný Katla hjá Sonju dagmömmu. Ég var náttúrulega í vinnunni. Fyrsti skjálftinn reið yfir rétt fyrir þrjú - eins og stór vörubíll hefði dúndrað á húsið í vinnunni - eitt högg og svo búið. Rúmlega þrjú hringdi svo Sonja og sagði að Dagný væri komin með e-a hitavellu svo ég sótti hana snemma. Á leiðinni heim þurfti ég svo aðeins að koma við í Nóatúni svo við Dagný skruppum inn. Þar vorum við svo, lengst inni í búð þegar stóri skjálftinn kom. Og satt, best að segja þá hefði ég alveg viljað vera e-s staðar annars staðar, t.d. bara úti á grund...
Dagný sat í innkaupakerrunni þegar allt fór að titra. Ég tók í fyrstu bara í hana til að halda við hana því mér datt ekki í hug að þetta yrði neitt meir. Þegar allt fór að ganga til var ég svo búin að beygja mig yfir hana. Þegar hristingurinn hætti ekki tók ég hana upp og hélt henni í fanginu. Kona sem hafði staðið við hliðina á mér lá í hnipri á gólfinu yfir sínu barni en ég hélt Dagnýju bara fast upp að mér og leit í kringum mig til að ath hvort ég gæti fundið mér betri stað. Uppi í loftinu dönsuðu öll ljós, mörg hangandi á sama járnrörinu og loftið var fullt af rykmekki. Allt í kringum mig voru hillur og fatastandar og það sem var efst í mínum huga var, hversu lengi heldur þetta áfram áður en loftið og allt hrynur yfir okkur. Sem betur fer hætti jarðskjálftinn áður en ljósadraslið úr loftinu fór að hrynja yfir okkur. Þegar hann var liðinn hjá ætlaði ég fyrst , á einu augnabliki, að taka innkaupakerruna mína og fara á kassa - maður er svo ruglaður - fattaði svo að auðvitað væri enginn að afgreiða, og að maður ætti að koma sér út strax.... Skildi því dótið eftir í kerrunni og tók strikið út. Það var reyndar ekki eins og að strunsa venjulega búðarganga, því gólfið var þakið brotnum vörum, drasli og ógeði. Í gosganginum var eins og risastór hendi hefði komið og sópað megninu á gólfið. Ég labbaði framhjá konu sem sat á gólfinu og - í bókstaflegri merkingu - öskraði. Það voru tvær aðrar sem sturmuðu yfir henni svo ég æddi bara framhjá með Dagnýju í fanginu. Þegar ég var komin út sá ég fólkið sem hringsnérist bara - allir að reyna að hringja og ekkert gekk. Ég spennti Dagnýju í bílinn og keyrði beint á leikskólann. Á leiðinni fór ég fram hjá ljósastaur sem hafði brotnað í tvennt og hékk uppi á samskeytum svo ljósakúpullinn nam við gangstéttina. Á leikskólanum voru allir komnir út - misskelkaðir - en Hildur Tanja var nú ekki mikið að kippa sér upp við þetta - mest spennandi að fá að fara þrisvar út að leika sama daginn.
Þegar ég kom svo heim var ryksugan í gangi. Dótið hafði dottið á hana í búrinu svo hún var bara komin á fullt að ryksuga glerbrotin sem voru útum allt. En húsið slapp bara vel - kertastjakar - blómavasar og svona smotterí hrundi og brotnaði og húsið svolítið sprungið en það eru bara smámunir. Ég er allavega guðslifandi fegin að við Dagný löbbuðum útúr Nóatúni, og vorum ekki í næstu deild sem er búsáhaldadeildin, þar sem hillurnar eru yfirfullar af þungum keramikhlutum upp undir loft og allt fór í mask á gólfinu..... :)
Jebbs þetta átti að vera styttri útgáfan.
En við erum bara hress og kát. Dagný Katla ákvað loksins fyrir þremur vikum að sleppa sér og fór þá líka að hlaupa - enda búin að æfa sig mikið með putta... :) Hún er alltaf að sýna betur og betur hvað hún vill - ýtir frá sér matardisknum, bendir í allar áttir, gerir e-ð sem henni finnst rosalega sniðugt hlær svo eins og tröllkerling og skríkir þess á milli.
Hildur Tanja er alltaf sama prinsessan og við tvær ætlum í vorferð með leikskólanum á morgun. :)
Læt þetta duga í bili - lofa að reyna að setja inn myndir fljótlega.. :)
nýjar myndir.. ;)
Gleymdi samt að setja inn úr afmælisveislunni - voru í annari möppu og lofa að setja inn fljótlega....
Fréttir seinna.. ;)
smá kvitt væri æðislegt.. ;)
ætti að vera löngu farin í bælið en hvað gerir maður ekki fyrir dygga og æsta aðdáendur...
Jebbs, tíminn er aldeilis fljótur að líða... Ekki nema ár síðan daman var aldeilis að flýta sér í heiminn, ma og pa rétt komust niður með lyftunni í Bláhömrunum og mæómæ, held að það hafi aldrei verið svona langt úr Grafarvoginum og niður á spítala og pabbi aldrei keyrt svona hratt. Hálftíma eftir komuna þangað var litla prinsessan bara mætt á svæðið.. ;) og okkur finnst að sjálfsögðu eins og þetta hafi gerst í gær.. ;)
Hún hefur dafnað, stækkað, breyst og þroskast á þessu ári eins og sönnum prinsessum sæmir...
Hún er glöð og góð, hress og kát.
Afmælisdagurinn var frábær. Við Hildur Tanja vöktum afmælisstelpuna okkar klukkan hálfátta í morgun með afmælissöng og pakka. Því miður var pabbi farinn í vinnunna. Þær fóru svo báðar í kjól í tilefni dagsins og til dagmömmu og í leikskólann. Hildur var reyndar ekki lengi að finna það út að úr því að það væri afmælisdagur þá hlyti að vera afmæliskaka. Sættist á endanum á að við "stóru stelpurnar" myndum bara baka afmælisköku þegar hún kæmi heim af leikskólanum. Sótti svo Dagnýju til Sonju dagmömmu klukkan fjögur, í fínu stuði með afmæliskórónu. Við sóttum Hildi og brunuðum heim að baka kökuna. Eftir kvöldmat var svo afmæliskaka í eftirrétt með tilheyrandi söng, afmæliskerti og einum pakka frá Borgnýju frænku í Danmörku og öðrum frá mömmu,pabba og Hildi Tönju. Reyndar sá Hildur Tanja eiginlega alveg um þann þátt en Dagný Katla hafði ekkert minna gaman að því. ;) Annars verður afmælisveislan sjálf á næsta laugardag..:)
Ætla að skutla inn nokkrum afmælismyndum.......
Afmæliskveðjur úr Dverghólunum....
XXXX
...jólin komin og farin fyrir lifandis löngu... :) og jújújú mjööööög bisssíí heimilishald... Staðan er semsagt sú að mamma er farin að vinna á fullu, ltila krílið okkar hún Dagný Katla er komin til frábærrar dagmömmu, Hildur Tanja unir sér vel í leikskólanum sínum, eins og alltaf og pabbi brunar náttúrulega alla daga í bæinn í vinnuna sína.
Annars er bara allt gott að frétta af okkur..
Dagný Katla byrjaði hjá dagmömmunni núna í byrjun janúar þegar mamma fór að vinna (þá 10 mánaða gömul). Hún var bara fljót að sættast á það allt saman og er bara kát og glöð alla daga þegar hún er sótt. Hún stækkar á hverjum degi, (var reyndar í "endurskoðun" í dag þar sem hún hafði ekkert þyngst í síðustu skoðun, og hún kom bara vel út og skvísan búin að þyngjast um 300 grömm, en það er allt önnur saga..) og er farin að bralla ýmislegt. Hún er farin að standa upp við allt og labba meðfram og vill helst fá putta til að láta leiða sig um allt gólf. Þar finnur hún e-ð dót sem er náttúrulega mjög gaman að stíga á en svo er sko skemmtilegast af öllu að skoða það vel og vandlega, STANDANDI, lata það svo detta á gólfið, beygja sig eftir því og halda áfram að skoða það STANDANDI... Og þá kemur sko agaleg skeifa ef hendurnar sleppa og hún neyðist til að setjast á gólfið. Við Hildur Tanja fundum svo í lok janúar eina pínulitla tönn, hægra megin í neðri góm og fljótlega kíkti ein lítil vinstra megin líka. Fyrstu tennurnar loksins farnar að láta sjá sig og eru náttúrulega óspart notaðar.. Það var aðeins farið að há okkur hvað litlu gómarnir náðu lítið að bíta í sundur, en annars finnst henni yfirleitt bara ágætt að borða og svo fær hún enn sopann sinn hjá mömmu og er náttúrulega ógurlega glöð með hann..
Hildur Tanja er auðvitað snilldin eina og hún brallar nú ýmislegt. Hún er sko alveg búin að fatta að við matarborðið, ef hún vill ekki borða, þá er mjög gott ráð að búa til pínulitla bita og tína þá svo einn í einu upp í Dagnýju.. Svo um daginn vorum við inni í herbergi að leika þegar hún vildi endilega að mamma myndi mæla hvað hún væri nú orðin stór á Bangsímon mælimyndinni á veggnum. NEMA HVAÐ, prinsessan tók ekki annað í mál en að standa upp á stól á meðan, þá myndi hún sko ná miklu hærra, tilkynnti hún. Í morgun vorum við svo að sniglast á fætur, eldsnemma, fyrir sjö. Hildur Tanja var komin á stjá en mamma var enn að fullnýta síðustu mínúturnar í rúminu og ætlaði að senda skvísuna fram að pissa: M:"ertu búin að fara að pissa, Hildur mín?" H.T.: "nei, ómægod, nei" - jebbs, það er ýmislegt sem kemur heim af leikskólanum og þetta er það nýjasta.
Hildur Tanja fékk reyndar ný rör í eyrun um daginn og nefkirtlarnir teknir eftir smá eyrnabólguvesen um jólin þannig svoleiðis veikindi eru vonandi búin í bili. Þær eru nú samt búnar að vera hálfgerðir pestargemlingar núna síðan um jól en við skrifum það bara á veðrið.. 
Mamma er svo farin að vinna og líkar bara ágætlega.. Öll að komast inn í þetta, en hún byrjaði sem markaðsstjóri hjá Eðalhúsum (byggingarfyrirtæki hér á Selfossi) og Glugga- og hurðasmiðju Selfoss (dótturfélag Eðalhúsa) núna í janúar. Og pabbi kemst nú bara yfirleitt í vinnuna sína, svona þrátt fyrir alla ófærðina. Var einn dag heima vegna veðurs og kom svo seint heim annan dag vegna ófærðar.
En látum þetta duga í bili. Ætla að skella inn nokkrum myndum og reyni svo að vera duglegri að uppfæra í framtíðinni... 
Bestu kveðjur úr Dverghólunum,
Dagný Katla, Hildur Tanja, Kalli og Krista.....


afmælis- og jólamyndir.....
Erum aldeilis búin að eiga góð jól... Þið vonandi líka....
Jólakveðja úr Dverghólum 24
Veikindi og vesen undanfarna daga.... Allt að braggast samt... ;)
Nóvemberalbúm fljótlega og fréttir síðar.......... ;)
Stutt og laggott................................................................................ ;) ;)
setti inn haug af myndum í október, september og prinsessur frá fæðingu... ;)
over and out... ;)
well, fékk alveg hevvíí samviskubit þegar ég sá kommentið, Inga Lára.... ;) og gat náttúrulega ekki hummað þetta fram af mér lengur.... Allavega þá setti ég inn nokkrar myndir frá því í september en reyndar varð myndavélin okkar fyrir "óhappi" og er nánast ónothæf og stóra vélin er með svo lélegu batteríi að við erum búin að vera heldur löt við að taka myndir. En líður nú samt aldrei langt á milli þess sem dömurnar eru myndaðar....
Allt gott að frétta af okkur öllum. Dagný Katla stækkar og stækkar á hverjum degi, farin að borga graut, brauð, seríós, banana, pasta og alls konar mauk (öll heimatilbúin að sjálfsögðu) ;) og farin að segja "mamma" og Hildur Tanja hefur alltaf nóg að gera, á leikskólanum, heima og alls staðar.
Látum þetta duga í bili. Klukkan orðin margt (alveg ellefu) og við gamlingjarnir að fara að koma okkur í bælið.....!!!!! (á föstudagskvöldi!!!) og hananú..... það er víst ræs við fyrsta hanagal eldsnemma í fyrramálið þegar heimasætan fer að heimta hafragraut...
Adios