

Hæhæ ;) til lukku með þessa flottu síðu, nú getur pabbi þinn loksins hætt að blóta gömlu síðunni :) endilega verið dugleg að skrifa og setja inn myndir ..
Vá flott nýja síðan þín ;) Við eigum sko eftir að kíkka reglulega hérna inn að fá fréttir af þér ! Kær kveðja til mömmu og pabba..
Ólöf Heiða og co
Hæ sæta skvís!!!
Frábært að þú ert komin með eigin síðu og mamma þín getur verið duglegri að setja inn fullt af myndum af þér! Þú ert nefnilega svo sæt og sniðug að það er gaman að skoða myndir af þér! Ég þarf svo að fara að kíkja aftur í heimsókn til þín bráðum :)
Hafið það gott!
Helga Guðrún
Til lukku með þessa flottu síðu Hildur Tanja:) Rosa flottar myndirnar af þér:) Vonandi áttu eftir að vera dugleg að setja inn myndir og skrifa í vefdagbókina:)
Kveðja úr árbæ
veiiii til hamingju með síðuna Hildur - alveg handviss á því að þú verður duglegri að skrifa en m+p ;);)
við eigum eftir að kíkja oft á þig sæta
knús Sirrý og Margrét Ýr
Halló sæta skvísa og til hamingju með fínu heimasíðuna þína :) Biðjum að heilsa mömmu og pabba! Kveðja Soffía, Viðar, Einar Berg og bumbukrílið :)
Hæ hæ öll sömul og til hamingju með nýju síðuna, nú get ég loksins kvittað í gestabókina en það gekk aldrei á hinni síðunni...:) Æðislega flottar myndirnar af þér, þú ert sko algjör pæja. Vonandi hittumst við sem fyrst.
Kveja, Erla, Hálfdan, Steinþór Snær og bumbukrílið..:)