Hildur Tanja og Dagný Katla
 

Dagný Katla eins árs prinsessa.......

Jebbs, tíminn er aldeilis fljótur að líða... Ekki nema ár síðan daman var aldeilis að flýta sér í heiminn, ma og pa rétt komust niður með lyftunni í Bláhömrunum og mæómæ, held að það hafi aldrei verið svona langt úr Grafarvoginum og niður á spítala og pabbi aldrei keyrt svona hratt. Hálftíma eftir komuna þangað var litla prinsessan bara mætt á svæðið.. ;) og okkur finnst að sjálfsögðu eins og þetta hafi gerst í gær.. ;)

Hún hefur dafnað, stækkað, breyst og þroskast á þessu ári eins og sönnum prinsessum sæmir...

Hún er glöð og góð, hress og kát.

Afmælisdagurinn var frábær. Við Hildur Tanja vöktum afmælisstelpuna okkar klukkan hálfátta í morgun með afmælissöng og pakka. Því miður var pabbi farinn í vinnunna. Þær fóru svo báðar í kjól í tilefni dagsins og til dagmömmu og í leikskólann. Hildur var reyndar ekki lengi að finna það út að úr því að það væri afmælisdagur þá hlyti að vera afmæliskaka. Sættist á endanum á að við "stóru stelpurnar" myndum bara baka afmælisköku þegar hún kæmi heim af leikskólanum. Sótti svo Dagnýju til Sonju dagmömmu klukkan fjögur, í fínu stuði með afmæliskórónu. Við sóttum Hildi og brunuðum heim að baka kökuna. Eftir kvöldmat var svo afmæliskaka í eftirrétt með tilheyrandi söng, afmæliskerti og einum pakka frá Borgnýju frænku í Danmörku og öðrum frá mömmu,pabba og Hildi Tönju. Reyndar sá Hildur Tanja eiginlega alveg um þann þátt en Dagný Katla hafði ekkert minna gaman að því. ;) Annars verður afmælisveislan sjálf á næsta laugardag..:)

Ætla að skutla inn nokkrum afmælismyndum....... 

Afmæliskveðjur úr Dverghólunum....

XXXX 

6. March 2008 - 21:50



Athugasemdir

Sigríður og Hákon Ingi

Hlakka til að sjá myndir úr veislunni. hefur pott þétt verið fjör. já og tíminn er ekkert smá fljótur að líða. H.I verður eins árs eftir 7 mánuði :) ég heyri að Hildur Tanja er svolítið klár í þessu afmælisstússi ekkert hægt að plata svona klára stelpu, hún er orðin svo sjóuð.

11. March 2008

Nafn


Texti