

...jólin komin og farin fyrir lifandis löngu... :) og jújújú mjööööög bisssíí heimilishald... Staðan er semsagt sú að mamma er farin að vinna á fullu, ltila krílið okkar hún Dagný Katla er komin til frábærrar dagmömmu, Hildur Tanja unir sér vel í leikskólanum sínum, eins og alltaf og pabbi brunar náttúrulega alla daga í bæinn í vinnuna sína.
Annars er bara allt gott að frétta af okkur..
Dagný Katla byrjaði hjá dagmömmunni núna í byrjun janúar þegar mamma fór að vinna (þá 10 mánaða gömul). Hún var bara fljót að sættast á það allt saman og er bara kát og glöð alla daga þegar hún er sótt. Hún stækkar á hverjum degi, (var reyndar í "endurskoðun" í dag þar sem hún hafði ekkert þyngst í síðustu skoðun, og hún kom bara vel út og skvísan búin að þyngjast um 300 grömm, en það er allt önnur saga..) og er farin að bralla ýmislegt. Hún er farin að standa upp við allt og labba meðfram og vill helst fá putta til að láta leiða sig um allt gólf. Þar finnur hún e-ð dót sem er náttúrulega mjög gaman að stíga á en svo er sko skemmtilegast af öllu að skoða það vel og vandlega, STANDANDI, lata það svo detta á gólfið, beygja sig eftir því og halda áfram að skoða það STANDANDI... Og þá kemur sko agaleg skeifa ef hendurnar sleppa og hún neyðist til að setjast á gólfið. Við Hildur Tanja fundum svo í lok janúar eina pínulitla tönn, hægra megin í neðri góm og fljótlega kíkti ein lítil vinstra megin líka. Fyrstu tennurnar loksins farnar að láta sjá sig og eru náttúrulega óspart notaðar.. Það var aðeins farið að há okkur hvað litlu gómarnir náðu lítið að bíta í sundur, en annars finnst henni yfirleitt bara ágætt að borða og svo fær hún enn sopann sinn hjá mömmu og er náttúrulega ógurlega glöð með hann..
Hildur Tanja er auðvitað snilldin eina og hún brallar nú ýmislegt. Hún er sko alveg búin að fatta að við matarborðið, ef hún vill ekki borða, þá er mjög gott ráð að búa til pínulitla bita og tína þá svo einn í einu upp í Dagnýju.. Svo um daginn vorum við inni í herbergi að leika þegar hún vildi endilega að mamma myndi mæla hvað hún væri nú orðin stór á Bangsímon mælimyndinni á veggnum. NEMA HVAÐ, prinsessan tók ekki annað í mál en að standa upp á stól á meðan, þá myndi hún sko ná miklu hærra, tilkynnti hún. Í morgun vorum við svo að sniglast á fætur, eldsnemma, fyrir sjö. Hildur Tanja var komin á stjá en mamma var enn að fullnýta síðustu mínúturnar í rúminu og ætlaði að senda skvísuna fram að pissa: M:"ertu búin að fara að pissa, Hildur mín?" H.T.: "nei, ómægod, nei" - jebbs, það er ýmislegt sem kemur heim af leikskólanum og þetta er það nýjasta.
Hildur Tanja fékk reyndar ný rör í eyrun um daginn og nefkirtlarnir teknir eftir smá eyrnabólguvesen um jólin þannig svoleiðis veikindi eru vonandi búin í bili. Þær eru nú samt búnar að vera hálfgerðir pestargemlingar núna síðan um jól en við skrifum það bara á veðrið.. 
Mamma er svo farin að vinna og líkar bara ágætlega.. Öll að komast inn í þetta, en hún byrjaði sem markaðsstjóri hjá Eðalhúsum (byggingarfyrirtæki hér á Selfossi) og Glugga- og hurðasmiðju Selfoss (dótturfélag Eðalhúsa) núna í janúar. Og pabbi kemst nú bara yfirleitt í vinnuna sína, svona þrátt fyrir alla ófærðina. Var einn dag heima vegna veðurs og kom svo seint heim annan dag vegna ófærðar.
En látum þetta duga í bili. Ætla að skella inn nokkrum myndum og reyni svo að vera duglegri að uppfæra í framtíðinni... 
Bestu kveðjur úr Dverghólunum,
Dagný Katla, Hildur Tanja, Kalli og Krista.....


...Kalli, Dagný, Hildur og þú óje.
jebbs og ómægod hvað ég var glöð að fá fréttir af ykkur og geta skoðað svona margar myndir af þessum fallegu systrum. Væri alveg til í að það væri hægt að heyra hvað er verið að segja á sumum myndunum... bara snúllur - Sendum klem XXX