Hildur Tanja og Dagný Katla
 

nokkrar myndir frá því í september....

well, fékk alveg hevvíí samviskubit þegar ég sá kommentið, Inga Lára.... ;) og gat náttúrulega ekki hummað þetta fram af mér lengur.... Allavega þá setti ég inn nokkrar myndir frá því í september en reyndar varð myndavélin okkar fyrir "óhappi" og er nánast ónothæf og stóra vélin er með svo lélegu batteríi að við erum búin að vera heldur löt við að taka myndir. En líður nú samt aldrei langt á milli þess sem dömurnar eru myndaðar....

Allt gott að frétta af okkur öllum. Dagný Katla stækkar og stækkar á hverjum degi, farin að borga graut, brauð, seríós, banana, pasta og alls konar mauk (öll heimatilbúin að sjálfsögðu) ;) og farin að segja "mamma" og Hildur Tanja hefur alltaf nóg að gera, á leikskólanum, heima og alls staðar.

Látum þetta duga í bili. Klukkan orðin margt (alveg ellefu) og við gamlingjarnir að fara að koma okkur í bælið.....!!!!! (á föstudagskvöldi!!!) og hananú..... það er víst ræs við fyrsta hanagal eldsnemma í fyrramálið þegar heimasætan fer að heimta hafragraut...

Adios 

19. October 2007 - 23:03



Athugasemdir

Laufey Björk

Ég kem reglulega hingað inn og kíki á sætu systurnar, alveg ótrúlega skemmtilegar myndir alltaf af þeim og ekki eru sögurnar af stóru prinsessunni síðri!! ;o)

Bestu kveðjur úr Kópó... ;o)

20. October 2007

Nafn


Texti