
Hæ aðaltöffari,
flottar nýju myndirnar og ekkert smá flottur í nýju skónum.
Hafðu það gott á leikskólanum, bestu kveðjur til Mömmu og Pabba.
Magga, Gummi og Hrafnkell Árni
Hæ sæti snúlli!
Rosalega er skemmtilegt að þú skulir vera á Brekku eins og ég :) Hlakka til að leika við þig eftir helgi.
Knús, Karlotta Ósk
P.s. mamma biður að heilsa foreldrum þínum..
Hæ frændi!
En gaman að þú svaraðir köllunninni um nýtt myndband við Hrafnkell skemmtum okkur oft og mikið yfir því, hann er auðvitað líka svona cheerios kall eins og þú ;) Okkur finnst þú líka vera rosalega duglegur strákur, hjálpandi afa þínum að slá og svo þurrkaðir þú líka af borðinu.
Hafðu það gott, bið að heilsa ma og pa
Hrafnkell Árni og Mammsa
Jiiiiminn eini hvað menn eru SÆTIR og STÓRIR! :-) Búin að dunda mér alltof lengi í vinnunni að fletta í gegnum myndirnar. Þær eru æði!
kveðja frá Egilsst. Inga, Halli og stelpurnar.
Bara að kvitta fyrir mig ;) Alltaf jafn gaman að skoða flottu myndirnar og fallega strákinn.
Nú fer að líða að hittingi... er það ekki Helga-mamms?
Knús Gerður
Hæ sæti, ég var að frétta hjá mömmu þinni í gær að þú hefðir fengið pláss á Heiðarborg og á Brekku, þú ert ekkert smá heppin, Jóhann Bergur var þar og honum fannst það æðislegt. Vona að þú verðir ánægður þarna. Koss og knús, Rebekka og fjölskylda
Hæ hæ, ég er í afslöppunarheimsókn hjá Rósu í Köben. Hún skrapp í sturtu og hvað er þá betra en að kíkja á nýjar myndir af Helga Sigurði, enda er síðan hans í Favorites hjá Rósu.
Kærar kveðjur frá útlandinu,
Anna og Rósa.
p.s. það kom upp hugmynd að hafa húsmæðraorlof fyrir einu húsmóðurina í hópnum seinustu helgina í október. Skoðum það betur.
Hæ sæti frændi,
gaman að skoða flottu myndirnar af þér, mamma þín er svo góður myndatökumaður. Við viljum fleiri myndbönd því það er svo lifandi;)
Knús og söknuður,
Gummi, Magga og Keli knúsilíus
Hæ hæ sæta fjölskylda!
Rosalega flott síðan hjá ykkur og gaman að skoða allar myndirnar... Helgi er orðinn ekkert smá stór og alveg algjört krútt...hann og Ísak ættu nú að geta leikið sér eitthvað saman þegar við hittumst næst:) Annars er allt gott að frétta af okkur hérna úti, allir byrjaðir í skólanum eftir sumarfríið og nóg að gera. Hafið það bara sem allra best og hlökkum til að heyra frá ykkur. Kær kveðja Kristín, Diddi og Ísak Leó
Hæ sæti frændi.
Mikið var gaman að hitta þig á ættarmótinu í sumar og leika í boltaleik. Þú ert svo mikið krútt.
Til hamingju með foreldra þína, trúlofunina þeirra.
Bestu kveðjur, Jóel Berg og foreldrar.
Halló sætastur!
Við Embla vorum að kíkja á myndirnar af þér. Þú ert nú meiri dúllan. Við erum hjá afa og ömmu í Grafarvoginum svo það er auðvelt að finna okkur ef þið hafið lausan tíma til að hittast. Embla fær svo vonandi pláss á leikskóla bráðum svo henni leiðist ekki.
Hlökkum til að sjá þig, knúsi mús, Arnheiður, Embla Ray og 38v+4d
gaman að sjá sætar myndir af fallegum strák. kær kveðja langamma.
Það er nú ekki annað hægt en að kvitta fyrir þegar maður er búin að skoða fallegu myndirnar þú ert algjör gullmoli elsku ömmukrútt amma elskar þig svo mikið sjáumst á morgun þá munum við eiga góðan dag saman þín amma ása.
Halló halló flotta familía!
Takk fyrir síðast, svaka fjör að fylgjast með þessum skæruliða-kálfum!!
Æðislegar myndir af fallega drengnum ykkar, hann er ekkert smá duglegur :)
Kær kveðja
Markús og foreldrar.
Hæ sætasti frændi!
Gaman að skoða nýju myndirnar, þú ert algjört krútt með koddann þinn, svo var líka gaman að skoða nýja myndbandið þitt, við styðjum fleiri myndbönd;)
Saknaðarkveðjur,
Hrafnkell og Magga
Sæl litla fjölskylda, til hamingju með trúlofunina:)
takk fyrir síðast Helga Valdís:)
vildi bara kvitta fyrir mig
kveðja
Ásdís
elsku helgi, innilega til hamingju með mömmu og pabba :) þetta voru nú aldeilis skemmtilegar fréttir :) Helga og Gummi þið völdið frábæran dag í trúlofun, við getum haldið partý saman í framtíðinni hehe
kær kveðja -eskihlíðarbúrarnir
Má til með að kvitta fyrir mig eftir að hafa skoðað allar nýju flottu myndirnar af ykkur öllum. Knús og kossar til ykkar frá okkur í Hveró.
Hæ hæ sætastur, þú ert nú meira gullið :) Rosalega er mamma þín búin að vera dugleg að setja inn nýjar myndir af þér. Biðjum kærlega að heilsa ma&pa.
Knús knús, Arna & Karlotta Ósk
P.s. Karlottu hlakkar rosa mikið til að leika við þig á leikskólanum í haust, hún byrjar líka í lok ágúst :)
Hæ sæti, vá hvað það eru margar nýjar flottar myndir af þér. En það er eitt leiðinlegt að Jóhann er líklega að flytja um leikskóla núna eftir sumarfríið, finnst líklegt að þú sért að taka við hans plássi ef þú ert að fara á Brekku, en það er besta deild í heimi með bestu fóstrum í heimi. Sjáumst, Rebekka og Jóhann Bergur
HÆ hæ elskurnar og takk fyrir síðast!!
Sjáumst vonandi fljótlega aftur!! KNÚS!!!
Erla og Hinrik
Sæll kútur, mikið rosalega ertu sætur:)
kveðja,
Ásdís
Jeminn hvað þú ert alltaf sætur :) vonandi sjáum við ykkur á laugardaginn.
Knús, Arna og Karlotta Ósk
Vorum að skoða nýjustu myndirnar af þér sæti frændi og vildum kvitta fyrir innlitið. Við sjáumst nú fljótlega. Hafið það gott þangað til. Kv, Jóel Berg og family.
Hæ Helgi sæti, viltu byrja með mér? :)
hæ hæ sæti kall með brosaugun flottu :)
æðislegar myndirnar þínar, sé að það hefur verið mikið stuð í boston. væri nú ofboðslega gaman að fá að hitta þig og foreldrana bráðum :)
kv. frá familíunni í eskihlíðinni
Góði frændi minn vilt þú vera góður við mig. Ég er hjá ömmu og við vorum að skoða flottu myndirnar af ykkur frændum mínum. Þið eruð algjört krútt og svo sætir. Þið eruð svo heppnir að eiga hvorn annan. Þetta minnir ömmu svo á þegar mamma þín og mamma mín voru litlar, þá voru ömmur okkar alltaf að reyna að hafa þær í eins fötum og taka af þeim myndir og svo fannst þeim alltaf svo gaman að hittast og gera eitthvað skemmtilegt saman. Skemmtilegast fannst mömmum okkar að fara niður á tjörn og gefa öndunum brauð og fara svo í Hljómskálagarðinn með nesti og leika saman í leiktækjunum sem voru nú ekki mörg á þessum tíma. Alltaf fékk Gummi móðurbróður þinn að vera með þeim og var hann alltaf í svona mömmuhlutverki að passa upp á þær hann vildi helst alltaf vera að leiða þær, hann var svo góður við hana mömmu þína og hana mömmu mína. 'Eg og amma sendum ykkur fjölskylduni knús og kossa og vonandi förum við að hittast fljótlega. Bless, frá Estellu Nótt.
Hæ hæ sæti frændi, það er nú ekki langt í það að við hittumst aftur. Langaði bara að segja hvað þú er líkur Hrafnkeli á myndinni þegar þú er nýkominn upp úr pottinum með handklæðið á kollinum, kannski bara rauðu kinnarnar, mar spyr sig ;)
Sælt veri fólkið.
Rosa er maður orðinn myndarlegur og greinilega mjög líkur Hrafnkeli frænda sínum. Gaman að sjá að það hefur verið gaman úti. Sjáumst nú vonandi fyrr en síðar. Ein hugmynd að við "Elliða mömmurnar" hittumst þess vegna í Laugardalnum með krílin í góðu veðri í sumar með nesti og bolta ; O ) Allavega hafið það sem allra allra best.
Sigrún G. og co.
Hæ hæ Helgi minn,
ég var svo spennt að sjá myndir af þér í Boston að ég tékkaði m.a.s. þegar ég var útí Florida. Ég kom heim í morgun, mætti í vinnuna á hádegi, voða dugleg. Verð mjög upptekin eftir vinnu en ætla að heyra í mömmu þinni samt, helst á eftir en kannski bara á morgun.
Sjáumst sæti minn,
kveðja,
Anna