
Hae saeti vinur okkar. Mikid eru allar myndirnar flottar, du ert bara svo saetur strakur. Du varst lika svo svakalega skemmtilegur degar ad vid forum i bustadinn :) Vid hlokkum til ad sja dig naest (sem er allt of langt dangad til :( ) Dangad til, sendum vid ykkur familiunni 1000 kossa og knus,
Linda og Jakob Felix
Halló skalló,
bara að kvitta fyrir innlitið. Mér finnst hann Helgi Sigurður alveg rosalega fínn með nýju klippinguna.
Helga, svo verðum við að fara að heyrast fljótlega.
Þín Anna
Hæ,
gaman að þér líkaði borvélin, þú verður að æfa þig áður en Hrafnkell dregur þig með í kofaborg. Ekkert smá gaman hjá þér í snjónum, Við keyptum líka þotu fyrir Hrafnkell en það er svo snjólaust að við drögum hann bara um á henni inni. En ég veit ég lofaði mynd með afmælispakkanum, er ekki í lagi að þið fáið bara DVD mynd með Kela í staðinn. Þá getur Helgi horft með ömmu.
Knús og kossar,
Magga, Hrafnkell og Gummi
Hæ knúsilegastur! Frábærar myndir, alltof langt síðan ég hef kíkt og drengurinn bara orðinn risastór! það verður sko gaman þegar þið komið í heimsókn og maður fær að sjá hann ( og ykkur auðvitað!) með berum augum ;-). Knús frá okkur öllum á Egilsstöðum. Inga og allir hinir.
Halló flotti gutti þú ert aldeilis flottur á þvotunni og góður ertu að gefa bangsa snuddu .KNÚS KVEÐJA FRÁ ÖMMU.
Elsku besti frændi,
við erum rosalega miður okkar yfir því að þið hafið ekki fengið jólakortið okkar, en það er aldrei að vita að það skili sér á endanum, en í sárabætur fær Helgi bara stærri afmælispakka og að sjálfsögðu mynd með!
Bestu kveðjur úr Boston kuldanum,
Hrafnkell Árni, ma og pa
Halló flotta familía!
Gleðilegt nýtt ár, æðislegar myndirnar úr myndatökunni og gaman að heyra af klósett-ferðum!! Hér á bæ er einmitt verið að kynna koppinn og klóið (misgóðar undirtektir, en hefst vonandi á endanum!!) Hafið það súpergott og Markús sendir Helga klósett-strauma!!
Kær kveðja Ósk og co.
Hæhæ Helgi Sigurður! Rosaflottar myndir af þér á síðunni. Þú verður nú að fara segja mömmu og pabba að fara kíkja með þig í heimsókn hingað til Leeds. Það eru fullt af tyggjóklessum fyrir þig að hreinsa hér í götunni! ;-)
Bestu kveðjur,
Gylfi, Helga og grísirnir
Hæ elsku familía og gleðilegt nýtt ár :)
Jólamyndirnar eru rosalega fínar og skemmtilegar enda módelið ekki af verri endanum, Helgi kann sko að bræða hjörtun!
Kvitt kvitt og knús
Gerður
Sæll vinur. Þú ert alltaf jafn sætur (annað en pabbi þinn). Ég frétti að þú værir aðaltöffarinn á Brekku og finnst mér dóttir mín vera farin að tala fullmikið um þig ;)
Vildi bara kvitta fyrir innlitið.
PS. ég og pabbi þinn förum að plana e-ð skemmtilegt að gera á næstunni.
Kveðja, Siggi
Áramótakveðjur til ykkar elskurnar okkar takk fyrir góðar stundir á gamlaárinu,megi nýja arið færa ykkur ást hamingju og velgengni .Elsku flautusnúllinn okkar það verður gaman þegar orðin fara að koma hjá þér það er ekki nó að kunna að flauta ,gangi þér vel elsku snúllinn okkar.'Aramótaknús frá Ásu ömmo og Árna afa
Hæ elsku Helgi
Það er alltaf jafn gaman að skoða myndirnar af þér litli broskarl :) Það væri nú líka gaman að fara að hitta þig og leika. Ég fékk fullt af fínum dúkkum og dóti til að leika þannig að við getum farið í mömmó og svona :) Jólakveðjur Ragnheiður Skarpa
hæ fallegi guttalingur! ekkert smá fallegar myndir af þér í myndatökunni vá vá vá! væri nú gaman að fara að hóa saman eins og í einn hitting hmm hmm ;)
kær kveðja Selma, Tanja Kristín og Mikael Aron
vá hvað eru fallegar nýjustu myndirnar af þer.. Þu ert algjör gullmoli og sætastur
Töru hlakkar til að hittast og leika á nýju ári og mömmunni auðvitað líka :)
Jólaknús
Harpa og Tara Lóa
Ég varð bara að kvitta í gestabókina á frábærri síðu. Hlakka til að sjá ykkur sem fyrst! Frábært að koma hérna inn og skoða myndir af drengnum....maður kemst í gott skap enda Helgi hress og kátur á öllum myndum :)
Kv,
Gylfi
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Takk fyrir góðu stundirnar á árinu sem er að líða.
Jólakveðjur Jóel Berg, Gyða og Bjarni.
Hæ hó hó
Ætluðum bara að kvitta fyrir okkur. Ánægjulegt að sjá myndir eftir Hörpu frænku hjá ykkur-mjög flottar. Vonandi sjáumst við á nýju ári.
Bestu jólakveðjur
Sigrún, Garðar og allir hinir gríslingarnir
Hæ sæti frændi,
rosalega flottar myndirnar úr myndatökunni, þú ert nú meiri sjarmörinn.Hlökkum til að fá jólakortamyndina spennó spennó!
Gleðileg jólahjól.
Hæ sæti, guð hvað þú ert alltaf jafn æðislegur, bræðir mann alveg með þessu brosi þínu. Vonandi hafið þið það öll gott, bið að heilsa mömmu og pabba. Koss og knús, Rebekka
Það er greinilega nóg að gera hjá ykkur í jólaundirbúningnum. Hlakka svo til að sjá ykkur eftir helgi. Nú fer ég bara að pakka í töskuna.
kveðja,
Anna
Voðalega er minn orðinn stór.
Gaman að sjá hversu duglegur þú ert orðinn við húsverkin, næst ferðu að setja í þvottavélina.
Stuðkveðja frá feðgunum.
ps. Flott hárspöng, fannst jólasveininum hárið vera of mikið í augunum þín.
hóhóhó ég er jólasveinninn :D
Alltaf jafn kúl
lov jú
Hæ sætasti..
Takk f kveðjuna, hlökkum svo til að hitta ykkur og fara í leiki saman:)
En vá hvað þu ert orðin stór strákur og sæææætastur
knús og kossar
Harpa, Tara og Addi
Æi hvað maður var nú samt sakleysislegur eftir að hafa krotað á vegginn ;) Sýnist samt að Helgi og Hinrik eigi eins náttföt... þessi gulu ;)
Knús í Árbæinn,
kv. Erla og co.
Hallo hallo,
var ad skoda nyju flottu myndirnar, tu staekkar ekkert sma hratt, atti samt erfitt med ad finna tig i ruminu tinu ;)
Bless i bili,
Magga
Halló elsku snúllinn minn þú ert svo flottur á myndunum en mér finnst þú flottastur inn í tjaldinu þú ert svo spekingslegur litli bókaormur. Stórt knús til þín frá ömmu sem elskar þig svo mikið.
Var að skoða babymyndir af Helga Sigurði.... vá hvað þau eru fljót að stækka þessi kríli!! þú ert algjör ofurtöffari Helgi Sigurður, líka ekkert smá duglegur með koppinn ;) Knús á ykkur,
kv. Erla og Hinrik Valur sem er orðinn 6 mánaða!!
Hæ frændi,
gaman að skoða nýju myndirnar, rosalega áttu flottan kopp, það líður ekki á löngu áður en foreldrar mínir splæsa einu svona tæki á mig.
Bless í bili,
þinn frændi
Hæ hæ Helgi!
Takk fyrir lánið á mömmu þinni um seinustu helgi. Ég veit að þú saknaðir hennar voða mikið. Ég hlakka ekkert smá til að hitta þig um jólin. Þú ert alltaf jafnsætur.
Þín vinkona,
Anna